Þjóðmál - 01.03.2010, Qupperneq 80
78 Þjóðmál VOR 2010
einasta um mikilvægt atriði, heldur leyndi
hann gjörningi, sem lögfróðir menn telja
að vart eigi sér fordæmi og áhöld eru um
að standist lög . Í ofanálag tók hann þátt í
að blekkja stjórnarformann eins stærsta
viðskiptavinar bankans .
Þá um nóttina hafði Lárus, meðal annarra
Útvegsbankamanna, undirritað skjal þar
sem hann og aðrir stjórnendur bankans
hétu Eimskipafélagi Íslands að gera allt sem
í þeirra valdi stæði til að Hafskip hf . yrði
tekið til gjaldþrotaskipta . Fram til þessa tíma
höfðu viðræður forsvarsmanna Hafskips og
bankastjórnar Útvegsbankans snúist um
lausnir á grundvelli þess að Hafskip hf . færi
í nauðasamninga .
Grein Lárusar er uppfull af innan tóm-um gífuryrðum, sem gera ásakanir
hans í minn garð enn alvarlegri en ella
og aðdróttanir hans fela í sér grófa aðför
að fræðimannsheiðri mínum . Mér er
fyrirmunað að skilja hvað honum gengur
til með viðlíka árás sem hefur það eina
auðsjáanlega markmið að sverta mannorð
þess er þetta ritar . Lárusi Jónssyni væri
hollara að tileinka sér í skrifum sínum
æðsta takmark sagnfræðinnar, sem er að
leita sannleikans . Færi betur á því ef Lár-
us Jónsson léti af þeirri iðju að ásaka aðra
um lygar og rangfærslur, þegar hann hefur
sjálfur vikið svo víðsfjarri af vegi sann leik-
ans .
Tveir prófessorar við Háskóla Íslands hafa lát-ið talsvert á sér bera í þjóðfélagsumræðunni
undanfarið .
Annar þeirra er Svanur Kristjánsson sem hefur
stór orð um spillingu og útrás og auðjöfra . En
þetta er sami Svanur og flutti erindið „For seti
Íslands og utanríkisstefnan: Sveinn Björns son og
Ólafur Ragnar Grímsson“ á fundi Sagn fræð inga -
félagsins 25 . mars 2006 . Þar sagði hann með mik-
illi velþóknun að forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, hefði verið höfundur útrásar stefn unn ar
sem auðjöfrarnir íslensku fylgdu frá 2004 . Raun-
ar hefði Ólafur Ragnar barist fyrir henni á með an
hann var formaður Alþýðu banda lagsins!
Svanur sagði líka í ræðu á fundi stjórn mála-
fræðinga í nóvember 2009 að prófkjör væru eitur í
íslenskum stjórnmálum . En Svanur var síðan einn
af þeim sem skrifuðu sig á prófkjörsauglýsingu
séra Bjarna Karlssonar í Fréttablaðinu aðeins
mánuði seinna, en með þessari auglýsingu brutu
séra Bjarni (og stuðningsmenn hans) sam komu lag
innan Samfylkingarinnar um að ekki skyldi ausið
fé í slíkar auglýsingar . Var nema von að Press an
spyrði hvort nokkuð væri að marka prófessorinn?
Hinn einkennilegi prófessorinn er Þórólfur
Matthías son sem flytur mál Breta og Hollend-
inga á Íslandi af miklu kappi . Hann sagði í
Fréttablaðinu 24 . júní 2009:
„Samþykki Alþingi ekki ríkisábyrgð á Icesave-
lánið gæti skapast stríðsástand í efnahagslífinu
hérlendis, Ísland fengi hvergi fyrirgreiðslu,
fyrirtæki færu unnvörpum í þrot og við yrðum
sett á sama stall í samfélagi þjóðanna og Kúba og
Norður-Kórea .“
Nú synjaði forseti lögunum um ríkisábyrgð
staðfestingar . En höfum við verið sett á sama
stall í samfélagi þjóðanna og Kúba og Norður-
Kórea? Nei, alls ekki . Bretar og Hollendingar
hafa látið líklega um að semja á ný við okkur .
Ýmis Evrópuríki, t .d . á Eystrasalti, hafa lýst yfir
stuðningi við okkur, einnig margir álitsgjafar .
Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn er að hörfa frá hand-
rukkarahlutverki sínu að því er virðist .
Hefðu þessir tveir skrýtnu prófessorar ekki
getað sparað sér stóryrðin? Hafa þeir reynst
miklir spámenn?
Skafti Harðarson á bloggi sínu
á Eyjunni 11 . febrúar 2010 .
____________
Tveir skrýtnir prófessorar