Þjóðmál - 01.03.2010, Side 96
94 Þjóðmál VOR 2010
fyrstir til að segja að ekkert sé nýtt und ir
sólinni og því eru söguleg sjónarmið, sem
hafa verið geymd eða gleymd í einhvern
tíma, kærkomin . Peningarnir sigra heiminn
eftir sagnfræðiprófessorinn Niall Ferguson
er mögn uð yfirferð um sögu peninga og
fjár mála markaða; yfirferð sem er
minnistæð vegna skemmtilegra
skírskotana og athyglis verðra
dæma úr sögunni .
Fæstir hafa velt því fyrir sér
hvað peningar eru . Meira að segja
hagfræðingar hafa gefið peningum
furðu lítinn gaum . Miðað við
að peningar eru mest notaða
mælieining í alþjóðlegu samfélagi
er sérkennilegt að um þá skuli
ekki meira fjallað . Það þykir t .d . sjálfsagt
í grunnskólum að kenna nemendum að
jörðin sé ekki miðja sólkerfisins, sem fæstir
jarðarbúar átta sig á af sjálfsdáðum, en
ekkert er kennt um gangverk fjármála og þá
sérstaklega peninga, sem er forsenda skilnings
á viðskiptalífinu, sem allir taka þátt í .
Saga peninga nær langt aftur fyrir Krists burð
eins og bókin lýsir, en það peninga kerfi sem
flestir kannast við er ekki gamalt . Þannig var
sænski seðlabankinn, hinn fyrsti sem starfaði
nokkurn veginn eins og seðlabankar eru í
dag, stofnaður fyrir 350 árum . Peningakerfið
hélst síðan á gullfæti, fyrir utan stríðstíma
þegar verðgildi var aftengt gulli en þegar
friður komst á jafnan tengt aftur, allt fram til
Bretton Woods-myntsamstarfsins árið 1944,
en sama ár eru AGS og Alþjóðabankinn
stofnaðir til að vinna gegn veikleikum fyrir-
komulagsins . Við það samkomulag, sem
Keynes var höfuðarkitektinn að, urðu allir
gjaldmiðlar tengdir amerískum dollar, sem
aftur var á gullfæti . Bretton Woods-sam-
komulagið sprakk árið 1971, eftir mikla
skulda söfnun ríkja, og því hefur núverandi
peninga fyrirkomulag einungis verið við lýði
í nokkra áratugi .
Ólíkt mörgum hagfræðingum er Fergu-
son ekki í neinu sérstöku trúboði . Hann
er laus við kreddur og reynir á upplýsandi
hátt að fræða lesendur um kosti og galla
peninga og þeirra mismunandi kerfa .
Gárungar hafa sagt að hagfræðingar séu
góðir að spá þróun, allri þróun
nema fram tíðarþróun . Með
lærdóma sög unn ar í huga var
Ferguson mun for spárri en nóbels-
verð launahafar í hagfræði um
núverandi ástand . Ferguson gefur
út bók sína árið 2008 en hafði þá
í ræðu og riti um tveggja ára skeið
varað við afleiðingum óhófl egr ar
peningaprentunar . Ferguson er
ekki í neinum fílabeinsturni, ekki
fastur í stærð fræðiformúlum, heldur treystir
á dómgreind sína og heilbrigða skynsemi .
Einnig er hann manna upplýstastur um það
að saga mannkyns er saga af sveiflum . Þeir
sem telja sig geta stýrt hagkerfinu í gegn-
um öldudali sveiflna hafa jafnan beðið
skipbrot .
Ferguson hefur nýverið staðið í mjög
athyglisverðri ritdeilu við næstsíðasta nób-
els verðlaunahafa í hagfræði, Paul Krugman .
Upphaf deilunnar var þróun langtímavaxta
en Ferguson heldur því fram að aukinn
fjárlagahalli hækki vexti á markaði, því
ríkið sogi til sín allt fjármagn og tefji því
hagvöxt . En Krugman telur að í samdrætti
þurfi ríkið að grípa inn í og slakinn í hag-
kerfinu leyfi slíkt án áhrifa á vexti . Þó að
þetta kunni að hljóma sem léttvæg deila,
þá er hún óskaplega mikilvæg . Ef Ferguson
hefur rétt fyrir sér getur komið langvinnt
alþjóðlegt samdráttarskeið er vextir hækka
og mikill niðurskurður ríkisútgjalda er
nauð synlegur . Inngrip ríkisins, sem áttu
að hjálpa hagkerfinu, hafa þá snúist upp í
and hverfu sína .
Bókin er sannkallað stórvirki . Sjaldan
hefur jafn mikil saga verið sögð á jafn skýr-