Þjóðmál - 01.03.2010, Page 97

Þjóðmál - 01.03.2010, Page 97
 Þjóðmál VOR 2010 95 an og skemmtilegan hátt . Bókin er að gengi- leg og hentar jafn vel áhugasömum ung- ling um og fræðimönnum . Þýðing Elínar Guðmundsdóttur er mjög læsileg . Fyrir þá sem ekki vilja eða nenna að lesa bókina má geta þess að Ferguson gerði frábæra sjónvarpsþætti, fjóra talsins, samhliða samn ingu bókarinnar . Þar er ferðast um sögu slóðir og helstu atriði bókarinnar kynnt . Þættirnir unnu Emmy-verðlaun 2009 í flokki heimildarmynda . Bókin tek- ur samt þáttunum fram . Viðvörun gegn stalínisma Simon Sebag Montefiore: Stalín ungi, Elín Guðmundsdóttir þýddi, Skrudda, Reykjavík, 2009, 458 bls . Eftir Björn Bjarnason Hér var nýlega rússneskur fræðimaður, dr . Tatyana Parkhalina . Hún flutti erindi á vegum Samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál, Varðbergs og Alþjóða mála- stofnunar Háskóla Íslands . Dr . Parkhalina er sannfærð um, að Rússar muni halla sér enn frekar í vestur á komandi árum af ótta við Kínverja í austri og „hryðjuverkaríki“ í suðri . Þótt Rússar leggi ekki NATO hernaðarlegt lið í Afganistan, vegna þess að þeir hafi ekki náð sér eftir að hafa tapað stríði þar, sé þeim mikið í mun, að takist að hemja öfgaöfl þar og annars staðar meðal múslíma . Þegar dr . Parkhalina sagði frá ástandinu í Rússlandi, hafði hún á orði, að meðal ungs fólks gætti vax andi aðdáunar á Jósep Stalín . Þetta væri ógnvekjandi þróun og sýndi aðeins, að í Rússlandi hefði mönn- um mistekist að miðla sögulegum sannleika til yngri kynslóðarinnar . Hún teldi Stalín fyr ir mynd hins sterka manns, sem Rússar þörfn uðust til að öðlast virðingu umheims- ins . Það væri í raun dýpsta þrá Rússa að vera mikils metnir út á við . Þeim væri skipað á bekk með stórþjóðum . Þess vegna væri til dæmis haldið úti sprengjuflugvélum, sem flygju út á Norður-Atlantshaf og umhverfis Ísland . Ungir Rússar teldu miklu skipta, að hernaðarvél lands þeirra væri sem öflugust í anda Stalíns og yrðu undrandi, þegar vakið væri máls á því, að efnahagur Rússlands gæti ekki í senn tryggt íbúunum mannsæmandi lífskjör og staðið undir þróun og smíði hátæknilegs herbúnaðar . Ég spurði dr . Parkhalinu, hvort bækur á borð við Stalín unga væru þekktar í Rússlandi og hvort það hefði ekki áhrif á fólk þar, ungt og gamalt, að kynnast því hvílík óhemja og glæpamað ur Stalín hefði verið allt frá ungum aldri . Hún virtist ekki þekkja bókina, og það kom mér á óvart, en sagði, að auðvitað vissu allir Rússar, sem vildu vita, hvaða mann Stal ín hefði haft að geyma . Þeim þætti ill mennska hans þó skipta minna máli en blekk ingin um, að Rússland gæti ekki orðið stór veldi án hins sterka manns . Bókin Stalín ungi eftir Simon Sebag Montefiore kom fyrst út í Kanada 2007 og er mikill fengur að því, að Elín Guðmundsdóttir hefur þýtt hana á íslensku . Að sögn höfundar er bókin afrakstur nærri tíu ára rannsókna á Stalín . Hún lýsir lífi Stalíns áður en hann komst til valda og fram til þess að hann settist í ríkisstjórn eftir byltinguna 1917 . Árið 2004 sendi Montefiore frá sér bókina Stalin: the Court of the Red Tsar, sem er um Stalín á valdastóli fram að andláti hans árið 1953 . Í Stalín unga er þess nokkrum sinnum getið, að frekari frásagnir af því, sem á er minnst, sé að finna í bókinni um hirð hins rauða zars eða Rússakeisara . Bækurnar eru þó hvor um sig sjálfstæð verk af hálfu

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.