Þjóðmál - 01.06.2011, Side 23
Þjóðmál SUmAR 2011 21
höfn . Markmiðið var að fólk nyti náttúr
unnar í heilsulindinni á Klampenborg . Í
fóru m Jóns og Ingibjargar var ódagsettur
reikn ingur fyrir 5 kaffibollum og fleiru frá
Klampen borg BadeHôtel .15 Einnig annar
reikningur þaðan, dagsettur 4 . september
1866, fyrir sjerrý og kaffi .16
Nútímalegar leiðir til dægradvalar var svo sannarlega að finna í Kaup
mannahöfn . En gönguferðir um bæinn og í
útjaðri hans voru þó ein vinsælasta upplyft
ing borgarbúa . Jón gekk sér til heilsubótar
dag lega . Oft var hann í för með ungum
í s lensk um stúdentum en fáum sögum fer
af heilsu bótargöngum Ingibjargar og Jóns
saman . Ingibjörg hefur þó sjálfsagt gengið
sér til heilsubótar uppábúin með og án Jóns .
Fólk gekk gjarnan út að borgarmörkunum
og rétt út fyrir bæinn . Þar hafði verið komið
fyrir bekkjum þar sem hægt var að hvílast
um stund og njóta útsýnisins . Það var hluti
15 ÞÍ . E . 10 . 20 og JS . 145 . fol . a .
16 JS . 145 fol . a .
af lífsmáta borgaranna í Kaupmannahöfn
að fara í gönguferðir á sunnudögum og
einnig við og við að kvöldlagi . Fólk gekk
ekki alltaf langar vegalengdir því markmið
göngu ferðanna var, ekki síður en heilsubót,
að fá tækifæri til þess að hitta annað fólk .17
Ingibjörg Jensdóttir minntist þess að hún
hefði farið í gönguferð um bæinn með
Jóni daglega veturinn sem hún dvaldi hjá
hjónunum en Ingibjörg hefði verið inni
allan þann vetur af heilsufarsástæðum .18
Orð Jóns, sem nefnd voru hér fyrr, um
að Kaupmannahöfn væri fjörug borg voru
sann yrði .19 Ólíku var saman að jafna menn
ingar lífinu og bæjarbragnum í höfuð borg
inni Kaupmannahöfn og litla þorpinu
Reykja vík, höfuðstað Íslands . En þó að
stór borgin hafi verið heillandi á sína vísu
þá blundaði heimþráin í hjörtum hjónanna
Jóns og Ingibjargar alla tíð .
17 Skov, Sigvard, „Have og park“, bls . 566 .
18 Valtýr Stefánsson, „Gamlar myndir og minningar . Frú
Ingibjörg Jensdóttir segir frá“, bls . 145 .
19 Jón Sigurðsson, Blaðagreinar II, bls . 220 . Sjá einnig:
Indriði Einarsson, Séð og lifað, bls . 123 .
Borgarbúar á heilsubótargöngu á virkisveggnum . Hjónin fremst á myndinni horfa yfir svæðið þar sem
Tívolí var opnað nokkrum árum eftir að myndin var máluð . Friðriksborgarhöll í fjarska .