Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 29

Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 29
 Þjóðmál SUmAR 2011 27 saknæmi í fréttina . Vitnað var í Jón Ásgeir og var hann eina munnlega heimildin sem getið var um í fréttinni . „Jón Ásgeir sagði við Fréttablaðið að hann gæti staðfest það eitt að Hreinn hefði gert stjórn Baugs grein fyrir fundinum með Davíð þar sem Jón Gerald Sullenberger hefði borið á góma .“ Orðalagið „staðfest það eitt“ átti að gefa til kynna að Jón Ásgeir hefði mest lítið komið nálægt vinnslu fréttarinnar og hann væri aðeins heimildarmaður úti í bæ . Til að blekkja lesendur enn frekar stóð í niðurlagi fréttarinnar að „Hreinn Loftsson vildi í samtali við Fréttablaðið í gær ekkert tjá sig um þessi mál .“ Jón Ásgeir er eini maðurinn sem hafði aðgang að gögnum Baugs og átti beina aðild að fréttinni með því að til hans var vitnað . Síðar kom í ljós, í hádegisfréttum RÚV þann 4 . mars, að Hreinn Loftsson var einnig heimildarmaður blaðsins . Tveir stjórnarmenn í almennings hluta­ félaginu Baugi, Þorgeir Baldursson og Guð finna Bjarnadóttir, sögðu í fjölmiðlum að trúnaðarbrestur hefði orðið og sögðu sig úr stjórninni . Með afsögn sinni sendu þau skýr skilaboð um að Jón Ásgeir bæri ábyrgð á trúnaðarbrestinum . Í Fréttablaðinu 2 . maí 2003 var loks til­kynnt hverjir væru eigendur útgáfufélags­ ins . Auk leppanna tveggja, Gunnars Smára rit stjóra og Ragnars Tómassonar, áttu félagið Jón Ásgeir, kona hans Ingibjörg Pálmadóttir og Jóhannes faðir hans, Árni Hauksson og viðskiptafélaginn Pálmi Haraldsson . Það var engin tilviljun að eignarhaldið var upplýst skömmu eftir að Baugur var af skráður sem al menn ingshlutafélag . Aug lýs ingafé al menn­ ingshlutafélagsins borgaði einka fjár festingu Jón Ásgeirs . Samfylkingin rétti hlut sinn í kosn ing­ un um 2003, bætti við sig rúmum fjórum prósentu stigum og fór í 31 prósent . Flokk­ urinn komst ekki í ríkisstjórn, sam starf við Sjálf stæðisflokkinn var útilok að eftir það sem á undan var geng ið og Framsóknarflokkurinn var ekki til kippi legur . Ingibjörg Sólrún náði ekki kjöri á þing og í hönd fór tímabil þar sem hún var á milli vita, borgarstjóraárin að baki en þingseta ekki í sjónmáli . Össur Skarp héð insson var endurkjörinn formaður á landsfundi haustið 2003, Ingibjörg Sólrún varð varaformaður . Vorið 2004 lagði ríkisstjórnin fram frum varp sem miðaði að því að takmarka sam þjöpp un á eignarhaldi fjölmiðla enda var svo kom ið að hvergi á Vesturlöndum var viðlíka sam þjöpp ­ un á eignarhaldi fjölmiðla og á Íslandi . Meðferðin, sem Davíð Oddsson for sætis ­ ráðherra fékk hjá fjölmiðlum Baugs, hefur væntanlega ekki dregið úr áhuga hans að setja lög um fjölmiðla . Einmitt vegna þess að Baugsmiðlar höfðu hamast á for sætisráð herra varð það þeim auðvelt að draga upp þá mynd að fyrirhuguð laga setning væri hefnd Davíðs . Þráðurinn sem fjölmiðlasmiðja Baugs óf úr var spunninn úr hugarburði Sam fylkingar­ innar um ofurvald Davíðs Oddssonar á öllum sviðum þjóðlífsins . Grundvöllur frumvarpsins var nefnd ar­starf undir formennsku Davíðs Þórs Björg vinssonar, prófessors í laga deild Há skól­ ans í Reykjavík . Í nefndar áliti stóð m .a . að það væri skoðun nefnd arinnar „að það hljóti að teljast afar æski legt að löggjafinn bregðist við þessu með laga setningu, einkum þannig að settar verði reglur sem miði að því að hamla gegn óæski legum áhrifum samþjöpp unar sem þegar er til staðar á fjölmiðlamarkaði og einnig til að hamla frekari samþjöppun á þessum markaði í fram tíðinni .“ Baugur beitti fjölmiðlum sínum kerfis­ bundið gegn frumvarpinu . Þar sem Baug­ ur stjórnaði þrem ritstjórnum (Frétta blað ið, DV og Stöð 2/Bylgjan) af sex sem daglega fluttu fréttir (hinar þrjár voru Morgun­
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.