Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 76

Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 76
74 Þjóðmál SUmAR 2011 gegn þessum framreikningum sínum önnur en skírlífi og hófsemi . En greining hans reyndist röng . Allur gangur er á því, hvort fólksfjölgun lýtur veldislögmáli eða ekki . Stundum dregur úr fólksfjölgun, en stundum er hún ör . Sums staðar fækkar fólki jafnvel . Og matvælaframleiðsla er ekki nauðsynlega jafnskrefa . Stundum hefur hún vegna ófyrir­ sjáanlegra tækniframfara vaxið hratt . Hið sama er að segja um aðrar mannlegar þarfir og fullnægingu þeirra . Fólki fjölgaði hægar, matvælaframleiðsla jókst hraðar Mannkyni fjölgaði vissulega ört um og eftir 1950, en það var aðallega vegna lægri dánartíðni, sem stafaði af greiðari aðgangi að mat, lyfjum og hreinu vatni . (Eins og einn sérfræðingur Sameinuðu þjóðanna komst að orði, fór fólk ekki að fjölga sér eins og kanínur, heldur hætti það að drepast eins og flugur .)20 En síðan dró smám saman úr vaxtarhraðanum, því að fólk tók víðast þann kost að eignast færri börn, þótt auðvitað væri það misjafnt eftir löndum og menningarsvæðum . Því var spáð í Endimörkum vaxtarins, að mannkyn yrði sjö milljarðar árið 2002 . En það gerðist ekki fyrr en 2011, nær áratug síðar . Jafnframt óx landbúnaðarframleiðsla hröðum skrefum, ekki síst vegna „grænu byltingarinnar“, en Norman Borlaug og öðrum vísindamönnum tókst að rækta frjósamari korntegundir en áður höfðu þekkst, svo að uppskera stórjókst, sérstaklega í Indlandi og öðrum fátækum löndum . Lætur nærri, að matvælaframleiðsla hafi tvöfaldast í heiminum síðustu þrjátíu ár tuttugustu aldar, þótt fullyrt væri í Heimi á helvegi, að ekkert gæti „komið í veg fyrir víðtæka hungursneyð“ . Framleiðslan er nú talsvert meiri á hvern einstakling en hún var, þegar þessi rit voru skrifuð um og eftir 1970 . Dagleg neysla hitaeininga á mann jókst í heiminum öllum um 15% tímabilið 1966–1995, en um 25% í þróunarlöndum . Jafnframt lækkaði matvælaverð um 50% frá 1960 fram yfir aldamótin 2000, þótt eftirspurn ykist mjög .21 Matvælaverð hefur að vísu rokið upp aftur um og eftir 2008, meðal annars vegna verðhækkunar á olíu og aukinnar spurnar eftir matvælum í Kína og á Indlandi, en vonir eru bundnar við, að það verði tímabundið .22 DDT, krabbamein og mýrakalda Viðvörun Rachel Carson í Raddir vorsins þagna hefur líka reynst mjög orðum aukin . Það er rétt, að eiturefnið DDT getur valdið tímabundinni ófrjósemi í nokkrum fuglategundum, sem hafast við á svæðum, þar sem það er notað í óhófi, en eftir að notkun efnisins er hætt, kemst allt í eðlilegt horf . Sá skaði, sem efnið getur valdið, er þannig bætanlegur . Aðalatriðið er, að DDT er nánast hættulaust mönnum, sé það notað í hófi . Ekki hefur til dæmis tekist að sýna fram á, að DDT sé krabbameinsvaki þrátt fyrir rækilegar rannsóknir .23 Krabbamein hefur raunar ekki orðið algengara með árunum, heldur lifa menn að jafnaði lengur, og þetta mein leggst frekar á roskið fólk en ungt, svo að það er sýnilegra en áður . Mjög margt getur hleypt af stað krabbameini samkvæmt rannsóknum vísindamanna, svo sem reykingar lungnakrabbameini og sterkt sólarljós húðkrabbameini, en eiturefni eru miklu minni áhættuþáttur en til dæmis kaffi og önnur algeng neysluvara . Hvort tveggja er, að svo lítið af eiturefnum er þrátt fyrir allt í mannslíkamanum miðað við önnur efni og að mælanleg, neikvæð áhrif þeirra hafa reynst mjög óveruleg . Danski tölfræðingurinn Björn Lomborg bend ir síðan á, þegar rætt er um tengsl eitur­ efna og krabbameins, að horfa þurfi á allar hliðar málsins, en blindast ekki af hræðslu­
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.