Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 49
Þjóðmál SUmAR 2011 47
legu völdin til eftirmanna hans . Arftakar
þessara spámanna á tuttugustu öld hafa
ekki stuðst við hefðbundin trúar brögð,
held ur himnaríkisájörðukenningar
komm únista og nasista . Þeir hafa ekki
lof að eilífri sælu á himnum, heldur hér
á jörðu — kommúnisma eða þúsund ára
ríki . Þeir Lenin, Stalín, Mussolini, Hitler,
Mao, Castro og Kim Il Sung eiga það
sameigin legt með Móses og Múhammeð
að vera sjálfir að miklu leyti höfundar og
boðberar hugmyndafræðinnar og stjórna
í nafni hennar ásamt því að ráða yfir
lögreglu og her .
Kaþólska kirkjan hefur því aðeins völd, að fólk sé kaþólskt . Á sama
hátt hafa kommúnistar (og nasistar eða
islamistar) einungis völd, ef þegnarnir trúa
á hugmyndafræði og kenningar valdhafa .
Eitt allra sterkasta einkenni alræðisstjórna
er því gífurlega umfangsmikil innræting
og heilaþvottur þegnanna frá blautu
barnsbeini .
Kóngar fyrri alda og sömuleiðis flestar
einræðis og herforingjastjórnir samtímans,
t .d . í SuðurAmeríku eða Afríku, hafa látið
sér að mestu nægja hin veraldlegu völd .
Slíkar stjórnir byggja lítt á hugmyndafræði
og eiga því ekki áhangendur meðal erlendra
manna . Hugmyndafræði nasista, og þó
eink um kommúnistastjórna, hefur hins
vegar aflað þeim liðsmanna langt út fyrir
landamæri sín, meðal annars er það bláköld
staðreynd að tugþúsundir Íslendinga víða
í vinstrihreyfingunni hafa verið aðdáendur
og misjafnlega ákafir stuðningsmenn
erlendra alræðisstjórna í áratugi . Einn ís
lensk ur stjórnmálaflokkur hefur gengið
lengst allra í aðdáun á og virkum stuðningi
við þessa erlendu kúgara og böðla . Hann
hefur gengið undir ýmsum nöfnum, en
kallast nú Vinstri grænir (fyrirgefið, það
heitir víst „Vinstri græn“) . Til dæmis er
sjálf ur „mannréttindaráðherra“ þess flokks
al kunn ur Kúbuvinur .
Fjölmiðlalögin, sem Alþingi hefur nýlega samþykkt, bera með sér, að þótt
kalda stríðinu sé lokið, eru íslenskir alræðis
sinnar í fullu fjöri og þeir koma hér fram,
að orwellskum sið eins og alltaf, undir
formerkjum, „lýðræðis“ og „mannrétt
inda“ . Í þessu tilviki hyggjast þeir lögleiða
rit skoðun í nafni „tjáningarfrelsis“ .
Ég hef annars staðar sagt, að með sam
þykkt 233 . greinar almennra hegningarlaga
hafi fyrsta og stærsta skrefið í átt til alræðis
hér á landi verið stigið, en samkvæmt henni
getur hver sá sem ekki sýnir ýmsum svo
kölluðum „minnihlutahópum“, aðal lega
konum, hommum, svertingjum, múslím
um o .fl . tilhlýðilega nærgætni í orðum að
dómi stjórnvalda, átt von á allt að tveggja
ára fangelsi . Annað skref hefur nú verið
tekið í framhaldinu . Samkvæmt hinum
nýju fjöl miðlalögum er stofnað nýtt „hugs
ana mála ráðuneyti“ í mynd svo nefndr ar
„fjöl miðla nefndar“ . Um hana segir m .a . í
lög un um:
Fjölmiðlanefnd er sjálfstæð stjórnsýslu
nefnd sem heyrir undir mennta og
menningarmálaráðherra . Nefndin annast
eftirlit samkvæmt lögum þessum daglega
stjórn sýslu á því sviði sem lögin ná til .
Ákvörð unum fjölmiðlanefndar sam
kvæmt lögum þessum verður ekki skotið
til annarra stjórnvalda .
Stjórnvöld hafa þannig yfirumsjón með
öllu því sem birta má í fjölmiðlum . Rekstur
fjölmiðils má m .a . stöðva fyrirvaralaust
ef nefndin telur að fjölmiðill fylgi ekki
nægilega vel stefnu stjórnvalda í því sem
í daglegu tali er gjarnan kallað „pólitísk
rétthugsun“ .