Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 31

Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 31
 Þjóðmál SUmAR 2011 29 blaðið, Ríkisútvarpið og Sjónvarpið) var yfirþyrmandi slagsíða á fréttaflutningi af frumvarpinu . Tilburðir þeirra miðla sem ekki voru í eigu Baugs til að fjalla á hlut­ lægan og sanngjarnan hátt um fjölmiðla­ frumvarpið voru kaffærðir í einsleitum mál­ flutn ingi Baugsmiðla . Róbert Marshall, fréttamaður á Stöð 2 og formaður Blaðamannafélagsins og síðar þingmaður Samfylkingar, skrifaði tölvupóst 14 . maí til blaðamanna og sagði fjöl miðla­ frumvarpið „fantafrumvarp“ . Hann bað blaða menn að safna undirskriftum til að mót mæla frumvarpinu . „Við höfum tíma á meðan stjórnarandstaðan heldur uppi mál þófi . Sendið tölvupóst á ALLA sem þið þekkið, hringið í fjarskylda ættingja úti á landi sem þið hafið ekki heyrt í í sjö ár . Nú er tíminn til að endurnýja kynnin . Fáið fólk til að skrifa nafn og kennitölu á áskorun .is Sé fólk fylgjandi frumvarpinu, fáið það samt til að skrifa undir sem persónulegan greiða við ykkur . Mætið í vinnuna á morgun og á sunnudag eða sitjið við tölvuna heima við, hringið, djöflist, látið öllum illum látum, söfnum þessum undirskriftum, fáum þess­ um ólögum hrundið . . .“ Móðursýkin, sem Róbert og félagar hans á Baugsmiðlum pískuðu upp í samfélaginu, greip þá sjálfa heljartökum . Orð Róberts um að blaðamenn ættu að fá fólk til að breyta gegn betri vitund sýnir hversu langt var seilst og að engu skyldi eirt í baráttunni fyrir hagsmunum Baugs . Eins og fram kemur í tölvupósti Róberts var náin samvinna með vinstriflokkunum og Baugs miðlum í andófinu gegn fjöl miðla frum ­ varpinu . Stjórnarandstaðan sá sér leik á borði og vildi tryggja sér velvild öflugasta fjöl miðla­ fyrirtækis landsins . Í kaupbæti var hægt að gera sér vonir um að ríkisstjórnin yrði felld . Með samræmdum málflutningi Baugs­ miðla og vinstriflokkanna tókst að draga upp þá mynd að frumvarpið væri einkamál Davíðs Oddssonar forsætisráðherra og að eng in ástæða væri til að stemma stigu við valdasam þjöppun fjölmiðla . Það hrikti í stjórnar s amstarfi Sjálfstæðisflokks og Fram ­ sókn ar flokks, m .a . vegna þess að Krist inn H . Gunn ars son, þingmaður Fram sókn ar­ flokks ins, notaði málið til að skapa sér sér­ stöðu í þing flokknum . Baugs miðlar launuðu Kristni greið ann með við hafnarviðtölum . Í bókinni rek ur Björn nokkur dæmi um hálf­ velgju for manns Framsóknarflokksins gagn­ vart Baugsveldinu . Ef ekki hefði verið fyrir viðbrögð stjórn­ar and stöðunnar á Alþingi hefðu ýfi ng­ ar Baugs miðla verið stormur í vatnsglasi . Þing flokkar Samfylkingar og Vinstri grænna höfðu báðir gefið til kynna að þeir væru hlynntir lagasetningu til að bregðast við valdasamþjöppun á fjölmiðla mark aði . Þegar á hólminn var komið kusu flokk arnir að fylkja sér að baki Baugs miðlum . Vinstri­ flokkarnir á þingi gáfu hags muna baráttu nýauðvaldsins lögmæti og pólitíska þyngd sem það annars hefði ekki haft . Vinstri­ flokk arnir mögnuðu upp draug sem óx saman lögðu ríkisvaldinu yfir höfuð með þeim afleiðingum að auðræðinu héldu engin bönd . Þrátt fyrir hatramma andstöðu var frum­ varpið samþykkt á Alþingi . Þá kom Baugi til aðstoðar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti lýðveldisins, sem 2 . júní 2004 tilkynnti að hann myndi ekki staðfesta fjölmiðlafrum­ varpið . Í fyrsta sinn í lýðveldissögunni beitti forsetinn neitunarvaldi . Fyrrum formaður Alþýðubandalagsins og ákafur gagnrýnandi auðræðis á yngri árum gekk fram fyrir skjöldu og tók hagsmuni auðhrings fram yfir almannahagsmuni . Í bók Björns eru tilgreind atvik sem án efa ýttu undir ákefð Ólafs Ragnars að koma höggi á Davíð Oddsson . Forsætisráðherra efndi til ríkisráðsfundar í tengslum við
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Þjóðmál

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.