Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 25
Þjóðmál SUmAR 2011 23
Samfylkingin fékk aðeins 26,8 prósent fylgi í þingkosningunum árið 1999 og
voru það gífurleg vonbrigði . Sameining Al
þýðu bandalags, Alþýðuflokks og Kvenna
lista átti að leiða til mikilla breytinga í ís
lenskum stjórn málum, sambærilegum þeim
sem urðu við sigur Rlistans í höfuðborginni
1994 þegar áratuga löngu valdaskeiði Sjálf
stæðisflokksins var hnekkt . Vonbrigðin
vegna niður stöðunnar nístu inn að beini .
Miklu hafði verið kostað til, flokkar með
langa og merka sögu voru komnir á ösku
haugana, forystumenn féllu útbyrðis og
klofnings draugur vinstrimanna gekk aftur
með stofnun Vinstri grænna .
Undir þessum kringumstæðum var hætta
á borgarastyrjöld innan Samfylkingarinnar
ef flokkurinn hefði tekið sjálfan sig til
endurmats að loknum kosningum sumarið
1999 . Traust á milli manna risti grunnt,
enda höfðu þeir þar til fyrir skemmstu skipst
í þrjá flokka og átt í langvarandi átökum .
Ein faldara og sársaukaminna var að kenna
Davíð Oddssyni, forsætisráðherra og for
manni Sjálfstæðisflokksins, um kosninga
ósig ur inn .
Í samfylkingarkreðsum var sögunum um
of ríki Davíðs haldið á lofti og völd hans
ýkt úr hófi til að ríma við kenninguna
um að hann bæri höfuðábyrgð á niður
lægingu Samfylkingarinnar . Rauður þráð
ur í samsæriskenningunni var að Davíð
hefði hamast á Samfylkingunni í kosn
inga baráttunni en látið vel að Vinstri
græn um . Samkvæmt fyrirætlun Sam fylk
ingar foringjanna áttu Vinstri græn að vera
jaðarflokkur með fimm prósent fylgi . Stein
grímur J . og Ögmundur náðu 9,1 prósent
fylgi og festu þar með tvíveldi vinstri manna
í sessi en leikurinn var ekki til þess gerður af
hálfu forkólfa Samfylkingar .
Minnst af umræðunni kom upp á yfir
borðið í blaðagreinum eða umræðum á opn
um fundum . Orðræðan um tapið í kosn
ingunum var sjálfhverft hópefli . Grýlan,
sem hélt flokknum saman, var formaður
Sjálf stæðis flokksins . Skortur á sjálfsgagnrýni
og stöðu mati að loknum kosningum leiddi
flokk inn úr einu klúðrinu í annað .
Málefnin, sem Samfylkingin bar fyrir
brjósti, voru í orði kveðnu í ætt við sígild
sjónar mið vinstrimanna, m .a . um vernd
al mennings gegn ofríki voldugra viðskipta
jöfra . Þau sjónarmið voru þó fljót að gleym
ast þegar í boði var málafylgja í opin berri
umræðu sem munaði um, til dæmis eins og
eitt fjölmiðlaveldi .
Össur Skarphéðinsson var málshefjandi í utan dagskrárumræðu á alþingi í janúar
2002 . Formaður Samfylkingarinnar gagn
rýndi harkalega yfirþyrmandi stöðu Baugs
á matvörumarkaðnum . „Stóru keðj urnar
hafa í skjóli einokunar keyrt upp matar verð .
Hreðjatak þeirra á markaðnum hefur kallað