Þjóðmál - 01.06.2011, Blaðsíða 78
76 Þjóðmál SUmAR 2011
Mörg vestræn ríki, sem veittu fátækum
þjóðum í suðri þróunaraðstoð, bundu hana
því skilyrði, að notkun DDT væri bönnuð .
Þetta hafði skelfilegar afleiðingar . Talið
er, að allt frá einni og upp í þrjár milljónir
manna í þróunarlöndum látist nú árlega úr
mýraköldu, aðallega börn . Þetta fólk hefði
fæst dáið, hefði verið leyfilegt að nota DDT
gegn mýraköldu .24
DDT er miklu ódýrara og auðveldara í
notk un en flest önnur úrræði, sem völ er á með
fá tækum þjóðum, svo sem lyfjagjöf eða net
yfir rúmum . Eiturefninu er ekki úðað á skóga
eða gresjur, heldur á innveggi íbúðarhúsa,
þar sem það er hættulaust mönnum, dýrum
og jurtum . Þótt vissulega hafi sum skordýr
myndað mótefni gegn DDT, svo að það
drepur þau ekki, fælir það þau burt .25 Þegar
Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin, WHO,
ákvað eftir miklar umræður árið 2006 að
mæla með notkun DDT gegn mýraköldu,
höfðu sennilega hátt í fimmtíu milljónir
manna hnigið að þarflausu í valinn næsta
aldarfjórðunginn á undan . Þótt WHO
felldi meðmæli sín úr gildi árið 2009 fyrir
áhrif ýmissa háværra friðunarsamtaka, lætur
stofnunin notkun DDT gegn mýraköldu
afskiptalausa .26
Glæpum hefur fækkað
þrátt fyrir þéttbýlisþróunina
Þróun glæpa í heiminum hefur gengið í þveröfuga átt við það, sem höfundar
Heims á helvegi ímynduðu sér . Það var
raunar vitað, þegar þeir settu bók sína
saman, að ofbeldisglæpir voru miklu tíðari
fyrir iðnbyltinguna en eftir hana . Að fornu
og á miðöldum bjuggu Vesturlandamenn
við miklu meira öryggisleysi en síðar varð .
Til dæmis hefur morðum fækkað stórlega
hlutfallslega á Vesturlöndum . Á þrettándu
öld voru meira en 20 morð á hverja 100
þúsund íbúa á ári í Bretlandi . Nú er þessi
tala um 1,3 . Í lok 19 . aldar var hlutfallið í
Svíþjóð 2 morð á hverja 100 þúsund íbúa á
ári . Nú er það 0,9 . Á Ítalíu hefur tíðni morða
á sama tíma (þegar stríðin tvö á tuttugustu
öld eru undanskilin) lækkað úr 5 í 1,1 .27 En
mesta breytingin hefur orðið síðustu áratugi
í Bandaríkjunum, þar sem hlutfall morða
var lengi miklu meira en í Evrópu, um 10 á
hverja 100 þúsund íbúa á ári . Nú hefur það
lækkað niður í 5 . Öðrum ofbeldisglæpum
hefur líka fækkað í Bandaríkjunum .28
Margar skýringar eru hugsanlegar á fækkun
glæpa í Bandaríkjunum, svo sem hert
löggæsla, aðallega fjölgun lögreglumanna,
og tvær lýðfræðilegar staðreyndir: Þeir, sem
líklegastir eru til að fremja ofbeldisglæpi,
eru ungir karlar . Hvort tveggja er, að
hærra hlutfall þeirra er í fangelsi en áður,
og hlutfall þeirra af þjóðinni hefur lækkað,
þar sem dregið hefur úr fólksfjölgun .29 Því
má bæta við, að í tveimur þéttbýlustu og
iðnvæddustu löndum heims, Japan og
Singapore, eru morð fátíð: Hlutfallið er 1,0
í Japan og í Singapore 0,4 (sem er eitthvað
hið lægsta í heimi) .30
Höfundum Heims á helvegi skjátlaðist um
framtíðarþróun glæpa vegna þess, að þeir
framreiknuðu þróunarlínur . Þeir ályktuðu
af þeirri staðreynd, að glæpum fjölgaði
á einu tímabili, að þeim myndi fjölga á
næsta tímabili . En svo þarf ekki að vera .
Þróunarlínur eru endurspeglanir síkviks
veruleika, þar sem menn bregðast við því, sem
gerist, og ýmis fyrirbæri rísa og hníga . Hitt
er annað mál, að sennilega höfðu höfundar
Heims á helvegi rétt fyrir sér um það, að
lauslæti hefði aukist á Vesturlöndum, þótt þar
hefðu þeir ekki fyrir sér neinar framreiknaðar
þróunarlínur . Það kann að skýra eitt, sem
umhverfisverndarmenn halda á lofti til marks
um umhverfisspjöll af völdum eiturefna,
að frumur í sæði karla mælast (í sumum
mælingum) færri en áður . Því fátíðari sem
mök eru, því fleiri frumur eru í sæðinu, og