Þjóðmál - 01.06.2011, Side 29
Þjóðmál SUmAR 2011 27
saknæmi í fréttina . Vitnað var í Jón Ásgeir
og var hann eina munnlega heimildin sem
getið var um í fréttinni . „Jón Ásgeir sagði
við Fréttablaðið að hann gæti staðfest það
eitt að Hreinn hefði gert stjórn Baugs grein
fyrir fundinum með Davíð þar sem Jón
Gerald Sullenberger hefði borið á góma .“
Orðalagið „staðfest það eitt“ átti að gefa
til kynna að Jón Ásgeir hefði mest lítið
komið nálægt vinnslu fréttarinnar og hann
væri aðeins heimildarmaður úti í bæ . Til að
blekkja lesendur enn frekar stóð í niðurlagi
fréttarinnar að „Hreinn Loftsson vildi í
samtali við Fréttablaðið í gær ekkert tjá sig
um þessi mál .“
Jón Ásgeir er eini maðurinn sem hafði
aðgang að gögnum Baugs og átti beina
aðild að fréttinni með því að til hans var
vitnað . Síðar kom í ljós, í hádegisfréttum
RÚV þann 4 . mars, að Hreinn Loftsson var
einnig heimildarmaður blaðsins .
Tveir stjórnarmenn í almennings hluta
félaginu Baugi, Þorgeir Baldursson og
Guð finna Bjarnadóttir, sögðu í fjölmiðlum
að trúnaðarbrestur hefði orðið og sögðu sig
úr stjórninni . Með afsögn sinni sendu þau
skýr skilaboð um að Jón Ásgeir bæri ábyrgð
á trúnaðarbrestinum .
Í Fréttablaðinu 2 . maí 2003 var loks tilkynnt hverjir væru eigendur útgáfufélags
ins . Auk leppanna tveggja, Gunnars Smára
rit stjóra og Ragnars Tómassonar, áttu félagið
Jón Ásgeir, kona hans Ingibjörg Pálmadóttir
og Jóhannes faðir hans, Árni Hauksson og
viðskiptafélaginn Pálmi Haraldsson . Það var
engin tilviljun að eignarhaldið var upplýst
skömmu eftir að Baugur var af skráður sem
al menn ingshlutafélag . Aug lýs ingafé al menn
ingshlutafélagsins borgaði einka fjár festingu
Jón Ásgeirs .
Samfylkingin rétti hlut sinn í kosn ing
un um 2003, bætti við sig rúmum fjórum
prósentu stigum og fór í 31 prósent . Flokk
urinn komst ekki í ríkisstjórn, sam starf við
Sjálf stæðisflokkinn var útilok að eftir það sem
á undan var geng ið og Framsóknarflokkurinn
var ekki til kippi legur . Ingibjörg Sólrún náði
ekki kjöri á þing og í hönd fór tímabil þar
sem hún var á milli vita, borgarstjóraárin
að baki en þingseta ekki í sjónmáli . Össur
Skarp héð insson var endurkjörinn formaður
á landsfundi haustið 2003, Ingibjörg Sólrún
varð varaformaður .
Vorið 2004 lagði ríkisstjórnin fram frum varp
sem miðaði að því að takmarka sam þjöpp un á
eignarhaldi fjölmiðla enda var svo kom ið að
hvergi á Vesturlöndum var viðlíka sam þjöpp
un á eignarhaldi fjölmiðla og á Íslandi .
Meðferðin, sem Davíð Oddsson for sætis
ráðherra fékk hjá fjölmiðlum Baugs, hefur
væntanlega ekki dregið úr áhuga hans að
setja lög um fjölmiðla . Einmitt vegna þess að
Baugsmiðlar höfðu hamast á for sætisráð herra
varð það þeim auðvelt að draga upp þá mynd
að fyrirhuguð laga setning væri hefnd Davíðs .
Þráðurinn sem fjölmiðlasmiðja Baugs óf úr
var spunninn úr hugarburði Sam fylkingar
innar um ofurvald Davíðs Oddssonar á
öllum sviðum þjóðlífsins .
Grundvöllur frumvarpsins var nefnd arstarf undir formennsku Davíðs Þórs
Björg vinssonar, prófessors í laga deild Há skól
ans í Reykjavík . Í nefndar áliti stóð m .a . að það
væri skoðun nefnd arinnar „að það hljóti að
teljast afar æski legt að löggjafinn bregðist við
þessu með laga setningu, einkum þannig að
settar verði reglur sem miði að því að hamla
gegn óæski legum áhrifum samþjöpp unar
sem þegar er til staðar á fjölmiðlamarkaði
og einnig til að hamla frekari samþjöppun á
þessum markaði í fram tíðinni .“
Baugur beitti fjölmiðlum sínum kerfis
bundið gegn frumvarpinu . Þar sem Baug
ur stjórnaði þrem ritstjórnum (Frétta blað ið,
DV og Stöð 2/Bylgjan) af sex sem daglega
fluttu fréttir (hinar þrjár voru Morgun