Þjóðmál - 01.06.2011, Síða 47
Þjóðmál SUmAR 2011 45
Sjálfstæðismenn verða að endur heimta
dagskrárgerðarvaldið . Við getum ekki lengur
sætt okkur við að vinstri menn stjórni og
móti þjóðmálaumræðuna .
Sjálfstæðisflokkurinn hefur aldrei gegnt
mik il vægara hlutverki en einmitt nú þegar
skipu lega er reynt að útrýma millistéttinni .
Rík is stjórn hinnar „norrænu velferðar“
telur það sérstaklega eftirsóknarvert að kæfa
millistéttina — kæfa hinn venjulega Íslend
ing — sjó manninn, kennarann, bóndann,
iðn að ar mann inn og verslunarmanninn .
Milli stétt in — bak beinið í íslensku sam
félagi — á undir högg að sækja og lítur til
Sjálfstæðis flokksi ns . Hið inngreypta loforð
að gjöra rétt og þola ei órétt er krafa milli
stéttarinnar til sjálf stæðis manna . Þeirri
kröfu verður að svara .
Við sjálfstæðismenn vitum að þessi fá menna
þjóð, sem hefur tekist að byggja upp velferðar
ríki sem er öfundsvert, hefur lyft Grettis taki
þegar allir hafa lagst á eitt, þegar stétt hefur
stað ið með stétt hefur okkur farnast vel . Íslend
ing ar skilja af hverju Sjálf stæðis flokkurinn
hefur haft það sem leiðar ljós í liðlega 90 ár að
sam eina Íslend inga en ekki sundra þeim . Stétt
með stétt er annað grunnstefið í hugmynda
fræði okkar sjálfstæðismanna .
Við treystum fólkinu í landinu en and
stæð ingar okkar byggja allt sitt á van trausti,
tor tryggni og sundurþykkju . Við sjálf
stæðis menn segjum traust en and stæðingar
okkar tortryggni . Við trúum á samstöðu
þjóð ar innar en vinstri menn eru fulltrúar
sund ur lyndisfjandans . Við trúum því og
við vitum að íslenskri þjóð farnast best
þegar við stöndum saman, stétt með stétt .
Hug mynda barátta vinstri manna byggir á
átökum þar sem nágrönnum er att saman,
stétt standi gegn stétt, landsbyggð gegn
höfuðborg . Pólitískir hagsmunir and stæð
inga okkar krefjast þess að fleygur sé rekinn
á milli þeirra sem yngri eru og þeirra eldri,
á milli launamanna og atvinnurekenda .
Sósíal istar ala á öfund en við hægri menn
samfögnum þegar einhverjum gengur vel .
Með skipulegum og ógeðfelldum hætti hefur
verið rekinn rýtingur í þjóðarsálina, sem
sótt hefur styrk sinn í frelsi einstaklingsins
og samvinnu fólksins í landinu . Þann rýting
eigum við sjálfstæðismenn ekki aðeins að
fjarlægja heldur brjóta í mél .
Við munum sækja fram í nafni atvinnu
frelsi s og sjálfstæðis þjóðarinnar . Við mun um
aldrei samþykkja framsal á auðlind um þjóð
arinnar . Við munum aldrei fórna full veldi
þjóð arinnar vegna löngunar örfárra . Við
sjálf stæðismenn eigum að standa vörð um
það sem hefur áunnist á undanförnum ára
tugum, annað er svik við söguna og þá sem á
undan komu og byggðu upp glæsilegt þjóð
félag . Við eigum að blása ungu fólki bjart
sýni í brjóst í stað þess að fylla það bölmóði
og við eigum sameiginlega að vera stolt af
því að vera Íslendingar . Með því að vera trúir
grunn stefnu sjálfstæðistefnunnar munum
við aftur öðlast fyrri styrk og stuðla að því
að hér byggist upp öflugt og þróttmikið
atvinnu líf, fjölbreytt mannlíf, öflugt
menntakerfi og velferðarkerfi sem verður
talið til fyrir mynd ar í öðrum löndum .
Almenningur horfir til Sjálfstæðisflokksins
en hann hefur ekki öðlast fyrra traust á
störf um flokksins . Kjósendur bíða eftir því
að flokkurinn endurnýi sáttmála sjálf stæðis
stefnunnar við íslensku þjóðina: Sáttmála sem
er í senn einfaldur — stétt með stétt og gjör
rétt, þol ei órétt — en um leið marg slunginn .
Sáttmála sem er sam ofinn þjóð ar sálinni —
sáttmála sem við sjálf stæðismenn stóðum ekki
tryggan vörð um . Til að öðlast tiltrú og traust
landsmanna verð um við sjálfstæðismenn að
endurnýja sátt málann sem grunnhugsjón
okkar byggir á .
En til að þetta verði að veruleika þarf að
tala skýrt og forystumenn flokksins mega í
engu hvika frá hugsjónum og grunnstefinu
sem hefur sameinað flokksmenn .