Þjóðmál - 01.06.2011, Page 68
66 Þjóðmál SUmAR 2011
stofnunum vegna sagnfræðirannsókna minna
á gjaldþroti Hafskips hf . Ég hafði mikinn
hug á að kanna skjalasafn borgar fógeta em
bætt is ins í Reykjavík, nú sýslumannsins .
Skjöl sýslu mannsembættisins frá umræddum
tíma eiga að mestu leyti að hafa verið afhent
Þjóð skjala safni, en mér til mikillar undrunar
vantaði bréf frá mörgum árum inn í bréfasafn
embættis ins, til að mynda vantaði öll aðsend
bréf á árinu 1985 . Enn fremur fundust engin
vinnu gögn frá skiptaráðendum og bústjórum
þrotabús Hafskips í geymslum Þjóðskjala
safns . Ég óskaði því eftir umræddum gögn
um hjá embættis sýslumannsins í Reykjavík .
Eftir mörg bréf mín til ítrekunar á fyrra
erindi barst mér loks svohljóðandi svar frá
embætti sýslu manns ins í Reykjavík: „Öll
gögn er varða þrotabú Hafskips hf . hafa verið
send Þjóð skjala safni Íslands til varðveislu .“
Það tók embættið þrjá mánuði að komast að
þessari einföldu niðurstöðu .
Upplýsingar ekki skrásettar
Ég hef einnig talsvert rannsakað aðdraganda falls íslensku viðskiptabankanna
haust ið 2008 og viðað að mér töluverðu af
gögn um við þá vinnu . Í fjölmiðlum var á
sínum tíma mikið allmikið fjallað um fund
þáver andi viðskiptaráðherra, Björgvins
G . Sigurðsson ar, með Alistair Darling,
fjármálaráðherra Breta, sem haldinn var í
Lundúnum 2 . sept emb er 2008 . Með við
skipta ráðherra í för voru Jónína S . Lárus
dóttir, ráðuneytisstjóri við s kipta ráðuneytis,
Baldur Guðlaugsson, ráðu neytisstjóri
fjár málaráðuneytis, Jón Þór Sturlu son,
að stoðarmaður viðskiptaráðherra, Jón
Sig urðsson, formaður stjórnar Fjármála
eftir litsins, og Áslaug Árnadóttir, skrifstofu
stjóri í viðskiptaráðuneytinu og formaður
stjórnar tryggingasjóðs innstæðueigenda .
Að auki sat Sverrir Haukur Gunnlaugsson
sendi herra fundinn fyrir hönd sendiráðsins
í Lundúnum . Viðskiptaráðherra var krafinn
upplýsinga um þennan fund í fyrirspurnar
tíma á Alþingi, en þá kom í ljós að ekkert
hafði verið fært til bókar um þessi mál í
ráðu neytinu . Engar skýrslur samdar, engir
minnis punktar — ekkert . Sömu sögu var að
segja af öðrum hlutaðeigandi stofnunum .
Ég komst á snoðir um að þrátt fyrir allt
væru til minnispunktar um ofangreindan
fund, en þá hefði Sverrir Haukur sendi
herra tekið saman . Ég fór þess á leit við
utanríkisráðuneytið að fá aðgang að um
ræddu minnisblaði, en erind um mínum
var ekki svarað þrátt fyrir ítrekun . Ég kærði
þann óhæfilega drátt sem varð á svari til
úrskurðarnefnar um upplýsingamál og í
kjölfarið fékk ég viðkomandi gögn afhent,
en þó að fengnu formlegu leyfi rann sókn
ar nefndar Alþingis . Í minnisblaði Sverris
Hauks kom meðal annars fram að bresku
embættis mennirnir höfðu áhyggjur af því
að Íslendingarnir gerðu sér ekki grein fyrir
alvarleika málsins . Hins vegar höfðu engir
embættis mannanna í Reykjavík hirt um að
færa til bókar upplýsingar um fundinn .
Ég hef einnig unnið að sjálfstæðum rann
sóknum á atburðum sem leiddu til falls
StraumsBurðaráss fjárfestingarbanka hf . í
mars mánuði 2009 . Ég fór þess á leit við Fjár
mála eftir litið, fjármálaráðuneyti, efnahags
og við skipta ráðuneyti, forsætis ráðu neyti og
Seðla banka að mér yrði veittur aðgangur að
gögn um í vörslu viðkomandi stofn ana sem
vörð uðu StraumBurðarás frá áramótum
2009 og sér í lagi óskaði ég eftir gögnum sem
kynnu að varpa ljósi á þá ákvörðun sem tekin
var í mál inu . Fjármála eftirlitið neitaði alfarið
að af henda mér nokkur gögn um málið .
Engin gögn fundust í fjármálaráðuneyti og
efna hags og viðskipta ráðuneyti viðvíkjandi
þessa ákvörð un, þrátt fyrir að embættis menn
ráðu neyt anna hefðu setið fjölmarga fundi
með stjórn endum Straums, dagana áður en
Fjár mála eftir litið tók yfir rekstur bankans og