Þjóðmál - 01.06.2011, Side 74
72 Þjóðmál SUmAR 2011
fyrir sjáanlegur . Hann fer eftir beinni línu .
Dæmi um slíkan vöxt er, að barn hækki um
2 cm á ári eða nirfill leggi þúsundkrónuseðil
til hliðar á mánuði . Einfalt er að reikna út, að
eftir fimm ár hefur barnið hækkað um 10 cm
og 60 þúsund krónur bæst við seðlafúlguna í
fórum nirfilsins . Veldisvöxtur er annars eðlis .
Setjum svo, að nirfillinn leggi ekki sparnað
sinn til hliðar í peningaseðlum, heldur setji
þær í banka með 4% vöxtum . Þá tvöfaldast
upphæðin á 18 árum . Ef vextirnir eru 5%, þá
tvöfaldast hún á 14 árum, og ef þeir eru 10%,
þá tvöfaldast hún á sjö árum . Veldisvöxtur
leynir þannig á sér . Þar getur margt smátt
óvænt orðið eitt stórt .
Höfundar Endimarka vaxtarins rifjuðu upp
gamla persneska þjóðsögu . Hirðmaður einn,
sem kunnur var að kænsku, færði konungi
sínum fagurt taflborð að gjöf . Þegar hann
var spurður, hvaða laun hann vildi þiggja
fyrir borðið, svaraði hann hógværlega, að þau
gætu verið eitt hrísgrjón fyrir fyrsta reitinn,
tvö fyrir annan reitinn, fjögur fyrir hinn
þriðja, átta fyrir hinn fjórða og svo framvegis .
Tala hrísgrjónanna átti með öðrum orðum að
tvöfaldast, þegar farið væri á næsta reit, en reitir
taflborðsins eru 64 . Konungur uggði ekki að
sér, heldur gekk fúslega að þessu . Hann lét
sækja hrísgrjón í forðabúr sitt . Fyrir fimmta
reitinn þurfti 16 grjón, fyrir hinn tíunda 512
grjón og fyrir hinn fimmtánda 16 .384 grjón .
Fyrir 21 . reitinn hreppti hirðmaðurinn meira
en eina milljón hrísgrjóna, og þegar kom að
40 . reitnum, þurfti að flytja einn milljarð
grjóna úr forðabúrinu . Allar hrísgrjónabirgðir
konungs voru þrotnar, löngu áður en kom að
64 . reitnum .
Stærð, sem undirorpin er veldisvexti, getur
allt í einu orðið mjög stór . Til þess að sýna
þetta enn betur fóru höfundar Endimarka
vaxtarins með franska barnagátu . Vatnalilja
vex í tjörn . Hún er í upphafi smávaxin, en ef
hún fær að vaxa óáreitt, þá þekur hún tjörnina
eftir þrjátíu daga og hefur þá kæft allar aðrar
lífverur í vatninu . Á hvaða degi þekur liljan
hálfa tjörnina? Svarið er á 29 . degi . Þá er
aðeins einn dagur til stefnu . Ef ekki er gripið
í taumana, þá kæfir liljan allar aðrar lífverur
í vatninu daginn eftir . Þessari hugsun beittu
höfundar Endimarka vaxtarins síðan á jörðina
og íbúa hennar . Þótt gæði jarðarinnar væru
endanleg, fjölgaði fólki eftir veldislögmáli .
Léti að líkum, yrðu íbúar jarðar sjö milljarðar
um aldamótin 2000 . Þetta fólk þyrfti matvæli
og iðnvarning, svo að matvælaframleiðsla og
iðnframleiðsla yxu líka eftir veldislögmáli .
Þetta hefði í för með sér mengun, sem þá yxi
líka eftir veldislögmáli, og nefndu höfundar í
því sambandi DDT .
Höfundar reyndu meðal annars að meta,
hversu hratt notkun ýmissa tæmanlegra
jarðefna ykist . Settu þeir hraðanum efri og
neðri mörk og tóku síðan meðaltalið . Það
notuðu þeir síðan til að reikna út, hvenær
þessi efni yrðu uppurin, fyndust ekki nýjar
birgðir . Hér skulu aðeins nefnd þau jarðefni,
sem áttu eftir því mati að vera þrotin fyrir
árið 2012 . Ál átti að endast til ársins 2003,
blý til 1993, gull til 1981, jarðgas til 1994,
jarðolía til 1992, kopar til 1993, kvikasilfur
til 1985, mólybden til 2006, silfur til 1985,
sink til 1990, tin til 1987 og wolfram til
2000 .13 Fyndust nýjar birgðir, lengdist end
ing ar tíminn auðvitað, eins og höfundar tóku
fram .
Niðurstöðurnar í Endimörkum vaxtarins
voru ótvíræðar:
Ef svo heldur fram sem horfir um fólks
fjölgun, iðnvöxt, mengun, matvæla fram leiðslu
og þrot auðlinda, verður endi mörkum vaxtar
á þessari reikistjörnu náð innan aldar héðan í
frá . Endirinn verður að öllum líkindum sá, að
fólki fækkar og framleiðslugeta iðnaðar dregst
saman, hvort tveggja nokkuð snögglega og án
þess að við verði ráðið .14
Til þess að afstýra slíkum ósköpum þyrfti
mannkynið „að veita þessum vaxtar hneigðum
í nýjan farveg og koma á vist og hagfræðilegu