Þjóðmál - 01.09.2010, Side 34
32 Þjóðmál HAUST 2010
stórir, heimskir og gáfaðir, hommar og
gagnkyn hneigðir, ljótir og fallegir o .s .frv .
Skilningar vit un um, heilbrigðri skynsemi
og sjálfum lög málum náttúrunnar er
þannig afneitað alfarið .
Don Quixote taldi illa galdra- og sjón-
hverfingamenn hindra aðra í að sjá allt
vonda sem hann þóttist sjá allt í kringum sig .
Á sama hátt telja vinstri menn samtímans
alla þá sem treysta sínum eigin skilningar-
vitum og efast því um þessar nýju, aðallega
amerísku kenningar, vera illmenni, „ras-
ista“, „karlrembusvín“ eða „homma hatara“,
gjarnan áhangendur hins nýja djöfuls 20 .
aldar, Hitlers, en Hitler og nasistar hafa
nú fengið það hlutverk, sem djöfullinn og
árar hans gegndu á miðöldum . Fáir þora
þess vegna að mótmæla, því þeir vita að
minnsti efi um hinar nýju kenningar kostar
sjálfkrafa mannorðs-sjálfsmorð .
Þess vegna þorðu fáir að andmæla hinn 10 . desember 1996 þegar vinstri menn,
með stuðningi og atfylgi talhlýðinna kjána
fengu samþykkta þá útgáfu 233 . greinar
almennra hegningarlaga sem nú gildir . Með
þessari lagasetningu var tján ingar frelsið,
undirstaða alls lýðræðis og allra mann-
réttinda í raun afnumið á Íslandi . Einhver
kann að segja að hér sé tekið of djúpt í ár-
inni en ég tel svo ekki vera
Samkvæmt þessari lagagrein getur hver
sá sem ekki hefur hina kórréttu, opinberu,
víðsýnu og umburðarlyndu skoðun stjórn-
valda á svertingjum, femínistum, múslim-
um og hommum lent í allt að tveggja ára
fangelsi . Hér á nefnilega að þvinga fram
víðsýni, ást og umburðarlyndi með valdi
og lögregluofbeldi . Rasistar, karlrembusvín
og hommahatarar eru vissulega til, en hvað
með það? Enginn sæmilega skynsamur
maður tekur mark á slíku og hvað kemur
það lögreglunni við? Ég bara spyr .
Þessi lagasetning verður án minnsta vafa
í framtíðinni talin hið markverðasta sem
gerðist í tíð Þorsteins Pálssonar sem dóms-
málaráðherra . Fyrsta og stærsta skrefið í
átt til alræðis var stigið og þau verða fleiri .
Boðað hefur verið til „stjórnlagaþings“
og þar mun án nokkurs vafa vinstra fólk
og þeir einfeldningar, sem sjá ekkert
athugavert við 233 . greinina eða beinlínis
styðja hana, vafalaust verða fyrirferðar-
mestir .
Hættan af vinstri mönnum er nefni-lega viðvarandi og mikil, þótt kalda
stríðinu sé lokið og þeir hafi ekki lengur
þann bakhjarl, sem alræðisherrar komm-
ún istalandanna voru þeim þá . Margir
þeirra teljast varla leng ur sósíalistar, hvað
þá marx istar, en það breytir litlu . Hatrið
á eigin þjóð félagi er samt við sig . Hinir
„róttækari“ í þeirra hópi leita nú nýrra
bandamanna með al íslam ista . Þegar fyrsta
„bátafólkið“ fór að berast til landsins
1980 var stofnað sérstakt „vináttufélag“
við kvalara og ofsækjendur þessa fólks,
Hanoi-stjórnina, til að dreifa athyglinni .
Fyrsti formaður Víetnamfélags ins er
nú formaður félagsins „Ísland-Palest-
ína“ . Önnur helsta sprautan í því félagi
er kvikmyndagerðarmaður nokkur, sem
skrifaði langar greinar í Moggann á sínum
tíma til stuðnings við Rauða Kmera og Pol
Pot þegar blóðbaðið stóð sem hæst . Þeir eru
nú stuðningsmennn Hamas og Hizbollah
og munu áfram, eins og þá, með mannúð
og manngæsku, lýðræði og mannréttindi
á vörum óvitandi halda áfram að grafa
undan vestrænu lýðræðisþjóðfélagi .
Eitt besta dæmið um þá hættu sem af vinstri
mönnum stafar enn í dag er stuðningur þeirra
við óheftan innflutning á fólki af gjörsam-
lega framandi uppruna og með framandi,
beinlínis fjandsamleg trúarbrögð til Vestur-
landa . Þeir skynja ósjálfrátt að þannig geta
þeir tortímt Vesturlöndum innan frá, þótt