Þjóðmál - 01.09.2010, Page 34

Þjóðmál - 01.09.2010, Page 34
32 Þjóðmál HAUST 2010 stórir, heimskir og gáfaðir, hommar og gagnkyn hneigðir, ljótir og fallegir o .s .frv . Skilningar vit un um, heilbrigðri skynsemi og sjálfum lög málum náttúrunnar er þannig afneitað alfarið . Don Quixote taldi illa galdra- og sjón- hverfingamenn hindra aðra í að sjá allt vonda sem hann þóttist sjá allt í kringum sig . Á sama hátt telja vinstri menn samtímans alla þá sem treysta sínum eigin skilningar- vitum og efast því um þessar nýju, aðallega amerísku kenningar, vera illmenni, „ras- ista“, „karlrembusvín“ eða „homma hatara“, gjarnan áhangendur hins nýja djöfuls 20 . aldar, Hitlers, en Hitler og nasistar hafa nú fengið það hlutverk, sem djöfullinn og árar hans gegndu á miðöldum . Fáir þora þess vegna að mótmæla, því þeir vita að minnsti efi um hinar nýju kenningar kostar sjálfkrafa mannorðs-sjálfsmorð . Þess vegna þorðu fáir að andmæla hinn 10 . desember 1996 þegar vinstri menn, með stuðningi og atfylgi talhlýðinna kjána fengu samþykkta þá útgáfu 233 . greinar almennra hegningarlaga sem nú gildir . Með þessari lagasetningu var tján ingar frelsið, undirstaða alls lýðræðis og allra mann- réttinda í raun afnumið á Íslandi . Einhver kann að segja að hér sé tekið of djúpt í ár- inni en ég tel svo ekki vera Samkvæmt þessari lagagrein getur hver sá sem ekki hefur hina kórréttu, opinberu, víðsýnu og umburðarlyndu skoðun stjórn- valda á svertingjum, femínistum, múslim- um og hommum lent í allt að tveggja ára fangelsi . Hér á nefnilega að þvinga fram víðsýni, ást og umburðarlyndi með valdi og lögregluofbeldi . Rasistar, karlrembusvín og hommahatarar eru vissulega til, en hvað með það? Enginn sæmilega skynsamur maður tekur mark á slíku og hvað kemur það lögreglunni við? Ég bara spyr . Þessi lagasetning verður án minnsta vafa í framtíðinni talin hið markverðasta sem gerðist í tíð Þorsteins Pálssonar sem dóms- málaráðherra . Fyrsta og stærsta skrefið í átt til alræðis var stigið og þau verða fleiri . Boðað hefur verið til „stjórnlagaþings“ og þar mun án nokkurs vafa vinstra fólk og þeir einfeldningar, sem sjá ekkert athugavert við 233 . greinina eða beinlínis styðja hana, vafalaust verða fyrirferðar- mestir . Hættan af vinstri mönnum er nefni-lega viðvarandi og mikil, þótt kalda stríðinu sé lokið og þeir hafi ekki lengur þann bakhjarl, sem alræðisherrar komm- ún istalandanna voru þeim þá . Margir þeirra teljast varla leng ur sósíalistar, hvað þá marx istar, en það breytir litlu . Hatrið á eigin þjóð félagi er samt við sig . Hinir „róttækari“ í þeirra hópi leita nú nýrra bandamanna með al íslam ista . Þegar fyrsta „bátafólkið“ fór að berast til landsins 1980 var stofnað sérstakt „vináttufélag“ við kvalara og ofsækjendur þessa fólks, Hanoi-stjórnina, til að dreifa athyglinni . Fyrsti formaður Víetnamfélags ins er nú formaður félagsins „Ísland-Palest- ína“ . Önnur helsta sprautan í því félagi er kvikmyndagerðarmaður nokkur, sem skrifaði langar greinar í Moggann á sínum tíma til stuðnings við Rauða Kmera og Pol Pot þegar blóðbaðið stóð sem hæst . Þeir eru nú stuðningsmennn Hamas og Hizbollah og munu áfram, eins og þá, með mannúð og manngæsku, lýðræði og mannréttindi á vörum óvitandi halda áfram að grafa undan vestrænu lýðræðisþjóðfélagi . Eitt besta dæmið um þá hættu sem af vinstri mönnum stafar enn í dag er stuðningur þeirra við óheftan innflutning á fólki af gjörsam- lega framandi uppruna og með framandi, beinlínis fjandsamleg trúarbrögð til Vestur- landa . Þeir skynja ósjálfrátt að þannig geta þeir tortímt Vesturlöndum innan frá, þótt

x

Þjóðmál

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.