Þjóðmál - 01.09.2010, Blaðsíða 38
36 Þjóðmál HAUST 2010
í Evrópusambandið í kosningabaráttunni .7
Í kjölfarið tók Sjálfstæðisflokkurinn upp
ríkisstjórnarsamstarf við Framsóknar lokk -
inn undir forystu nýs formanns hans, Hall-
dórs Ásgrímssonar, sem varð utan ríkisráð-
herra, en flokkarnir áttu ekki sízt sam leið
vegna hliðstæðrar afstöðu til Evrópu sam-
bands ins í meginatriðum .
Skipt um samstarfsflokk
Samstarfið við Framsóknarflokkinn stóð í 12 ár eða fram að alþingiskosningun um
2007 . Stefna þeirra ríkisstjórna sem flokk-
arnir tveir mynduðu var efnislega óbreytt í
Evrópumálum, innganga í Evrópusamband-
ið var ekki á dagskrá en fylgjast yrði með
þróuninni innan sambandsins með tilliti til
íslenzka hagsmuna .8 Sama er að segja um
þá stefnu sem samþykkt var á landsfundum
Sjálfstæðisflokksins á sama tíma . Eftir því
sem á leið varð Halldór hlynntari inngöngu
í Evrópusambandið sem reyndi nokkuð á
ríkisstjórnarsamstarfið . Aldrei þó þannig að
því væri stefnt í hættu .
Í ræðu sem Davíð Oddsson flutti á fundi
hjá Samtökum um vestræna samvinnu í maí
1997 ítrekaði hann að engir brýnir íslenzkir
hagsmunir kölluðu á inngöngu Íslands í
Evrópusambandið frekar en áður . Þá virtist
stefnan innan sambandsins vera sett á aukna
miðstýringu og vaxandi áhrifaleysi einstakra
ríkja þess um eigin málefni, nokkuð sem
gerði inngöngu í það varla fýsilegri fyrir
Íslendinga . Á meðan stefnan væri í þá áttina
væri tómt mál að tala um inngöngu Íslands
í Evrópusambandið .9
Þessi afstaða Sjálfstæðisflokksins átti eftir
7 Björn Bjarnason: „Kosningaskjálfti“ . Þjóðmál . 1 . hefti, 3 .
árg . 2007 . bls . 10 .
8 Vef . „Stefnuyfirlýsing ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks og
Framsóknarflokks 1995“ . <http://www .forsaetisraduneyti .
is/utgefid-efni/nr/443> .
9 „Ekki hægt að svara spurningu um aðild í eitt skipti fyrir
öll“ . Morgunblaðið 6 . maí, 1997 . bls . 12 .
að herðast samhliða því sem meiri samruni
átti sér stað innan Evrópusambandsins .
Margoft kom fram í máli Davíðs í ræðum
og viðtölum að sambandið væri að hans áliti
að þróast í áttir sem ekki væru fýsilegar fyrir
hagsmuni Íslendinga þar sem stöðugt væri
gengið meira á fullveldi aðildarríkjanna,
sífellt meiri völd yfir málefnum þeirra
færðust til stofnana þess og miðstýring innan
sambandsins færðist í aukana með sívaxandi
regluverki . Þá væri ljóst m .a . af samtölum
við ráðamenn innan Evrópusambandsins að
varanlegar undan þágur frá sjávarútvegsstefnu
sambands ins væru ekki í boði .10
Formannsskipti
Davíð Oddsson lét af formennsku í Sjálf stæð isflokknum á landsfundi
flokks i ns haustið 2006 og töldu þá margir
að for mannsskiptin yrðu til þess að áherzlur
flokks ins í Evrópumálum breyttust . Var sú
skoðun byggð á þeirri trú að afstaða Sjálf-
stæðis flokksins í málaflokknum byggð ist
fyrst og fremst og jafnvel alfarið á þeirri stað-
reynd að Davíð hefði vermt for manns stól-
inn . Ljóst er að óskhyggja hefur sennilega
eink um ráðið ferðinni hjá þeim sem þannig
hafa litið á málin fremur en raunsætt mat á
að stæð um .
Við formennsku í Sjálfstæðisflokknum
tók Geir H . Haarde sem verið hafði vara-
for maður flokksins og fjármálaráðherra .
Geir hafði ekki haft sig ýkja mikið í frammi
í umræðum um Evrópumál fram að því og
fyrir vikið var hann af mörgum talinn óskrif-
að blað . Hugsanlega hefur það verið með
vilja gert og hugmyndin verið að taka ekki
þá áhættu að stefna framtíðarmöguleikum
um formannsstólinn í hættu með því að
lýsa afgerandi afstöðu til málsins .
10 Vef . „Viðskiptaþing Verslunarráðs Íslands 2000“ .
<http://www .forsaetisraduneyti .is/radherra/raedurog-
greinar/nr/332> .