Þjóðmál - 01.09.2010, Síða 48
46 Þjóðmál HAUST 2010
2 .
Það var í þessum andbyr sem ég hóf að skrifa greinaflokkinn Á vígvelli sið
menningar og benda á og vara við þeirri
þróun sem leiddi að lokum til hrunsins
mikla; notaði einnig sögulegar skírskotanir
til skilningsauka .
En semsagt, allt var þetta skrifað fyrir
hrun og meðan almenningsálitið var kúgað
af Baugs pressunni . Í slíkri kúgun koma
gall ar lýðræðisins bezt í ljós, ekki sízt þegar
aðil ar, sem í hlut eiga, beita fjölmiðlum eins
og í þessu tilfelli .
Það voru fáir sem töldu þessi skrif þókn-
anleg og einatt var ég flokkaður með þeim
sem mest voru rakkaðir niður í þessum
átök um, en það voru þeir sem báru ábyrgð
á réttarríkinu, ríkislögreglustjóri og dóms-
málaráðherra, svo ekki sé talað um þá ver-
andi ritstjóra Morgunblaðsins og forsætis-
ráð herrann .
Það er ekki úr vegi að nefna að bæjar stjórn
Seltjarnarness hafnaði byggingarkröf um
Baugs og staðsetningu þar í bæ á fagleg um
grund velli, en bæjarstjórinn uppskar for-
síðu níð í DV sem ætlað var að eyði leggja
æru hans vegna persónulegra vanda mála
sem rata yfirleitt ekki inní dagblöð; koma
raun ar engum öðrum við . Persónuleg atlaga
var einnig gerð að ritstjóra Morgun blaðsins,
bæði í Fréttablaðinu og DV . Og lyga herferð
gegn ríkis lögreglustjóra sem gat aldrei borið
hönd fyrir höfuð sér vegna embætt is síns,
en þá var margvegið í sama knérunn .
Og einelti DV heldur enn áfram .
Andi Baugs svífur yfir vötnunum . Í raun
hefur lítið breytzt, þótt ýmsir, sem þátt tóku
í blindingsleiknum, segi nú fátt og reyni að
leyna því að þeir voru blekktir .
Á allt þetta er minnzt í Á vígvelli sið
menningar og þá auðvitað að gefnu tilefni .
3 .
Þjóðin var ærð af góðæri sem spratt af frjálshyggju krata og sjálfstæðismanna
(EES og evrópufrelsið), Sjálfstæðisflokks og
Framsóknar (einkavæðing) og Sjálfstæðis-
flokks og Samfylkingar (markaðsfrelsi) . En
góðærið var veikur gróður eins og nýrækt er
að öðru jöfnu .
Þá komu þeir til skjalanna sem þóttust
vera öðrum meiri ræktunarmenn og ætluðu
sér alla uppskeruna, en skildu illgresið
eitt eftir (útrásin) . Vinstri grænir og
Samfylkingin tóku til við að plægja visinn
akurinn á ný með gömlum handplógum,
en nýræktin náði sér ekki á strik .
Aska við rótina og fýkur jafnvel í logni .
Og loks kom Eyjafjallajökull!
4 .
Baugsmál voru fyrstu merki um and-stöðu við þá óheillaþróun sem leiddi
til hrunsins . Þetta vita náttúrlega allir, þótt
reynt hafi verið að sniðganga þessa sögulegu
staðreynd og halda í þá firru að hér hafi
verið um pólitíska aðför að ræða . Ég vissi
þegar á þessum tíma að svo var ekki . Samt
var á þessu hamrað og einhver setti þessa
flugu í munn viðskiptafræðiprófessors,
líklega einn af eigendum Baugs, og reyndu
þeir að sýna fram á þetta með tilvitnun í
eitt ljóða minna, þar sem orðið innmúrað
kemur fyrir, en í staðinn fyrir að hlæja
að þessum innmúraða fíflaskap og lævísa
uppspuna fóru einhverjir að taka mark á
honum!
Og ekki bætti Borgarnesræða Ingibjargar
Sólrúnar Gísladóttur úr skák; eða burgeisa-
dekur forsetans (sem síðar færði sér Icesave-
málið í nyt til að slá striki yfir gamlar útrás-
arsyndir) .