Þjóðmál - 01.09.2011, Side 79

Þjóðmál - 01.09.2011, Side 79
 Þjóðmál HAUST 2011 77 Nýlega kom út 1 . bindi ritverksins Reykv íkingar – Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg eftir Þorstein Jóns- son . Áætlað er að verkið verði alls tíu bindi sem komi út með reglulegu millibili á næstu árum . Í bókinni fer höf undurinn í eins konar visitasíu ferð um götur Reykja- víkur árið 1910 og segir frá húsum og fólkinu sem þá byggði bæinn . Húsin í bæn um voru þá 1 .186 og íbúar 11 .449 . Birtir eru stutt ir þættir um hvert heim ili í bænum en þau voru þá um 2 .400 . Í upphafi verks- ins eru birt nokkur kort af þróun bæjarins frá 1786 þegar Reykjavík fékk kaup- staðarréttindi og þéttbýli tók að myndast . Ítarlegasta kortið er af Reykja vík árið 1910 og þekur það allmargar blaðsíður . Það var gert sérstaklega fyrir útgáfuna og gefur glögga leiðsögn um bæinn . Gríðar legar breyt ing ar urðu á Reykja- vík á fyrsta áratug 20 . aldar . Aldamótaárið 1900 bjuggu 5 .802 í bænum . Íbúa fjöld inn nær tvöfaldaðist þennan áratug . Á sama tíma varð mikill vöxtur í húsbygg ingum og lífsskilyrði fólks breyttust mjög til batn aðar . Um miðja nítjándu öld var helmingur íbúðar húsa í bæn um torf bæir en árið 1910 voru aðeins fjórtán torf bæir uppi stand - andi í Reykja vík . Í verkinu er fjall- að um götur bæjar- ins í stafrófs röð . Byrj að er á elstu götu bæj ar ins, Aðal- stræti, síðan far ið upp Amt manns stíg o .s .frv . Fyrsta bind- ið endar í Berg staða - stræti . Í tíunda og síðasta bindi verks- ins verður sagt frá Sel tjarn ar nes hreppi sem til heyrði Reykja - vík ur sókn . Þar verð ur líka nafna skrá yfir alla þá sem koma við sögu í rit inu . Við hvert heimili bæjarins er sagt frá hús ráðendum, upp runa þeirra, börnum, tengda börnum og barnabörnum . Ævi ágrip hvers og eins er rakið eftir því sem heimildir hrökkva til og birtar eru ljósmyndir af hús- ráð end um og börnum þeirra . aðalstræti - bergstaðastræti 8 sögusteinn 1 REYK V ÍK IN G A R aðalstræti bergstaðastræti 8 Fólkið sem breytti Reykjavík úr bæ í borg Þorsteinn Jónsson REYKVÍKINGAR Stórvirkið Reykvíkingar

x

Þjóðmál

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðmál
https://timarit.is/publication/1175

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.