Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Side 5
Nokkur erlend listatímarit hafa fjallað um það og svo er
listasagan svo hröð að það sem er að gerast í listalífinu
berst strax inn í akademíuna. Þannig hefur verið skrifað um
Gula húsið í nokkrum ritgerðum í Listaháskólanum og á
dögunum var unnið lokaverkefni um húsið í skólanum,“
segir Unnar og upplýsir um leið að verið sé að skrifa bók
um Gula húsið. Hann segir að ætlunin sé að gera fyrsta ári
þess strax skil því annars sé hætt við því að umfjöllunin
verði goðsagnakennd. „Við höfum vilyrði fyrir 40%
kostnaðarins frá NIFCA sem er norrænn sjóður,“ segir
hann. „NIFCA segist líka vilja dreifa bókinni fyrir okkur en
við viljum endilega að henni verði dreift ókeypis. NIFCA
hefur einnig líst áhuga á að fá hópinn út til Sveaborg til
sýningahalds en þetta er allt í vinnslu.“ Guðni bætir því við
að menntamálaráðuneytið á Íslandi hafi ekki tekið eins vel í
að veita styrk til útgáfunnar en segir að þau bíði þó eftir
svari við nýrri umsókn.
Listamennirnir segjast ekki kvíða framtíðinni þótt búið sé
að teikna nýtt hverfi þar sem Gula húsið stendur. „Það er
nóg af húsum,“ segja þau öll í kór en vilja alls ekki benda á
næsta „fórnarlamb“. Þau segjast efast um að húsið eigi
eftir að fylgja þeim, þótt Eimskip vilji losna við það. „Það
væri reyndar flott að flytja Gula húsið á Klambratúnið, við
hlið Kjarvalsstaða,“ segir Berglind, „en húsið sjálft skiptir í
raun ekki máli. Það er ekkert atriði að hafa þak yfir höfuðið,
aðalatriðið er að nýta ónotað pláss til listsköpunar:
„Aksjónin er statement!“.“
Þau sem hafa verið með frá upphafi Gula hússins eru: Gunnhildur Hauksdóttir,
Berglind Ágústsdóttir, Ingibjörg Magnadóttir, Darri Lorenzen, Guðni Gunnars-
son, Unnar Örn Auðarson og Melkorka Huldudóttir. Meðal annarra sem komið
hafa að starfseminni eru: Bjargey Ólafsdóttir, Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Þór
Sigurþórsson, Örn Helgason og Aðalheiður Halldórsdóttir.
tmm júní 22x27 Ó 5.6.2001 19:55 Page 5