Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Side 18
Smásagan Hverfa út í heiminn eftir Ágúst Borgþór
Sverrisson hlaut fyrir skömmu fyrstu verðlaun í
smásagnasamkeppni sem efnt var til á strik.is. Um
350 sögur bárust í keppnina og var dómnefnd
einróma í vali sínu á sigursögunni. Í áliti hennar segir
meðal annars að sagan sé „ekki einasta ákaflega vel
stíluð og uppbyggð, heldur til marks um að
höfundurinn hefur þrauthugsað form smásögunnar
og notar möguleika hennar af listfengi og
kunnáttu.“ Önnur til þriðju verðlaun hlutu Einar
Kárason, rithöfundur, fyrir söguna Einhelti og
Margrét Jóelsdóttir, myndlistarmaður, fyrir söguna
Karlarnir í kjallaranum.
Höfundur sögunnar sem hreppti fyrstu verðlaun,
Ágúst Borgþór Sverrisson, er fæddur árið 1962 og
starfar sem blaðamaður á visir.is. Hann hefur
fengist við ritstöf árum saman enda segist hann
snemma hafa ákveðið að verða rithöfundur. Hann
hefur sent frá sér þrjú smásagnasöfn; Síðasta bílinn,
Í síðasta sinn og Hringstigann en það fjórða er
væntanlegt í haust. Ágúst segist hugsa hvert
smásagnasafn sem heild og reyna að hafa þema í
bókunum, þótt lesendum finnist það ef til vill
misáberandi. Hann segir að þema næstu bókar verði
fjölskyldubönd en í verðlaunasögunni Hverfa út í
heiminn er sögumaður að rifja upp bernsku sína og
sambandið við látinn bróður sinn. Ágúst er ekki frá
því að rokktónlist hafi mótað þessa heildarsýn hans
enda líkir hann smásagnasöfnum við hljómplötur:
„Á þeim eru mörg lög, mislöng og ólík að gerð en
samt mynda þau öll saman eina heild.“ Hann bendir
á að í raun séu mörg smásagnasöfn heildstæð eins
og skáldsögur og tekur verk Elínar Ebbu Gunnars-
dóttur og Þorsteins Guðmundssonar sem dæmi.
Hann segist hins vegar hrifnastur af bandarísku
raunsæishöfundunum sem fram komu í byrjun
níunda áratugarins, mönnum á borð við Raymond
Carver og Tobias Wolf. Þegar Ágúst er beðinn að
nefna einn íslenskan höfund sem hann hefur mætur
á þarf hann ekki að hugsa sig lengi um. „Indriði G.
Þorsteinsson er sá sem ég hef lært mest af,“ segir
hann. „Ef fólk langar til að skrifa smásögur ætti það
að kynna sér sögur Indriða og þá ekki síst mál-
notkun hans. Hann forðast allt skraut í stíl og virðist
leita endalaust að rétta orðinu.“ Ágúst segist sjálfur
leita lengi að réttu orðalagi. Hann segist ekki vera
afkastamikill höfundur því hann sé afar gagnrýninn á
eigin verk, svo mjög að heilu bækurnar hafi lent í
tunnunni. Hann hefur velt formi smásögunnar
rækilega fyrir sér og er lengi að fínpússa hverja
sögu. Ekki til að auka við eða skreyta söguna, miklu
frekar til að stytta textann og einfalda. „Það er
einfaldleiki og einlægni sem einkennir sögur eins og
ég vil skrifa,“ segir hann. „En þær þurfa um leið að
vera skrifaðar af fagmennsku og kunnáttu.
Raymond Carver sagði eitt sinn: „I hate tricks“ og
ég reyni að hafa það að leiðarljósi. Stílbrögð eru
gagnslaus ein og sér. Kannski er þetta einhvers
konar sannleiksleit hjá mér. Mér finnst mikilvægt að
trúa á sannleikann því ég trúi ekki á guð. Sann-
leikurinn er svo mikilvægur þeim sem hafa ekki
trúarbrögð.“ Verðlaun Ágústs voru 250 þúsund
krónur auk bókarinnar Hálendið í náttúru Íslands frá
Máli og menningu. Hann segir verðlaunin vissulega
koma sér vel en meira máli skipti að „sigurinn eflir
sjálfstraustið og er mér hvatning til að halda
áfram að skrifa smásögur,“ eins og hann
orðar það. Hann bendir á að smásögur séu oft
taldar minniháttar form og í raun njóti hvorki
smásögur né höfundar þeirra sannmælis.
„Upphaflega ætlaði ég að skrifa bæði
skáldsögur og smásögur af því að talið er
sjálfsagt að allir rithöfundar vilji skrifa skáld-
sögur. Núna er ég er alls ekki viss um að ég
eigi eftir að leggja skáldsagnagerð fyrir mig.
Hún kveikir ekki í mér. Mín listræna nautn og
ástríða tengist smásögum,“ segir Ágúst
Borgþór Sverrisson.
„Mín listræna nautn tengist smásögum“
Viðtal við Ágúst Borgþór Sverrisson, sigurvegara í smásagnasamkeppni strik.is
Ágúst Borgþór Sverrisson (f. 1962) hefur sent frá sér þrjú
smásagnasöfn en það fjórða er væntanlegt í haust.
Ágúst hlaut fyrstu verðlaun í smásagnasamkeppni sem
efnt var til á strik.is fyrir söguna Hverfa út í heiminn sem
birt er á næstu síðum tmm.
Um efni hennar sagði dómnefnd meðal annars:
„Sögumaður rifjar upp bernskuár í skugga bróður sem dó;
frásögnin einkennist af hlýju, mannskilningi og fínlegum
húmor.“
tmm júní 22x27 Ó 5.6.2001 19:57 Page 18