Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Síða 19

Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Síða 19
bls. 19 Verðlaunasagan í sagnasamkeppni strik.is (1975) Þó að veikindi bróður míns hafi lagt undir sig heimilislífið er hann orðinn enn fyrirferðarmeiri eftir að hann dó. Ég velti því stundum fyrir mér hvort ég muni nokkurn tíma losna við hann. Stofan er ekki stór og núna rúmar hún ekki annað en hann. Áður lagði hann bara undir sig gólfið. Reisti búgarð í einu horninu: brún plastgirðing, kýr kindur og hundar; og bóndinn hjó gólfteppið með ljá sem var fastur við hendur hans. Í hinu horninu reisti hann borg úr legókubbum og borgin stækkaði og teygði sig sífellt lengra inn á gólfið, eins og nýju húsin í hverfinu sem sífellt spretta upp og færast nær okkur. Stundum átti bóndinn leið til borgar- innar í bíl sem hafði verið smíðaður þar, og þá var hvergi hægt að stíga niður fæti á gólfinu. Núna er dótið hans hvergi sjáanlegt en ofan á stofuskápnum er raðað mörgum litlum ljósmyndum af honum í leðurrömmum á fæti. Á miðri skápröndinni stendur græni minningar- vasinn frá spítalanum. Á morgnana hrekk ég stundum upp af draumi um boltaleik í stofunni um leið og boltinn skellur á vasanum. Á veggjunum hanga tvær stórar myndir af honum. Önnur er ljósmynd með dökkgrænum máluðum bakgrunni. Kinnarnar eru þykkar af bjúg en ásjónan björt og skær. Svipurinn alvarlegur og augun ekki laus við ásökun. Hin myndin er málverk, önnur minningargjöf frá spítalanum. Andlitið á þeirri mynd er ekki mjög líkt honum en skyrtan er gamalkunnug: marglitar rendur í bítlastíl. Við áttum báðir svona skyrtur en þær hafa fyrir löngu verið klipptar niður í afþurrkunarklúta. Um daginn sá ég mömmu þurrka af myndinni með leifum af annarri skyrtunni. Ég vona að það hafi verið mín skyrta þó að það skipti ekki máli. Daglega þarf ég að fara í kirkjugarðinn með mömmu. Þetta geta orðið langar gönguferðir því mamma hefur ekki bara áhuga á legstað bróður míns heldur þarf hún að fræða mig um lífshlaup fjölda annarra hvíldargesta garðsins. Mest talar hún þó um allt það sem hún vill gera fyrir leiði bróður míns. Á einu ári hefur hún skipt þrisvar um legstein og þeir hafa verið hver öðrum glæsilegri. Mömmu virðist stundum einkar hlýtt til mín þegar ég geng með henni um kirkjugarðinn. „Þú verður ábyggilega læknir,“ segir hún og horfir ástúðlega á mig. „Þú verður læknir og bjargar mannslífum.“ Ég hugsa með hrolli til þess að eyða fullorðinsárunum á spítala klæddur í hvítan slopp. Ég hef alltaf ímyndað mér að fullorðinn verði ég loksins frjáls. Geti eytt dögunum í að búa til blóðugar bíómyndir og setið við sérhannað spilaborð á kvöldin og drukkið úr viskíglasi sem fellur niður í kringlótt hólf á borðinu þegar ég legg það frá mér. En þegar mamma segir þetta og horfir svona ástúðlega á mig þá virðist læknisferillinn óhjákvæmilegur. Lengi vel langar mig ekkert heitar en að verða læknir. Upptendraður skrifa ég ritgerð um það í skólanum. Svo kemur eftirsjáin en ég leiði hana hjá mér. Í stað þess að losna við einn bróður hef ég fengið yfir mig tvo. Annar þeirra hvílir í kirkjugarðinum en um hinn talar mamma við morgunverðarborðið: „Þú veist að bróðir þinn lifir áfram. Og ekki nóg með það: núna er hann ekki veikur lengur. Hann lifir í annarri vídd og fylgist með okkur. Hann sér okkur þó að við getum ekki séð hann. En af því að þú ert næmur drengur þá má vera að þú getir kannski einhvern tíma séð hann eða í það minnsta heyrt í honum. Þig hlýtur að langa til þess?“ Mamma túlkar þögnina sem samþykki og heldur áfram: „Þegar þú ert einn hérna uppi þá geturðu sest inn í stofu og gert dálítið. Það er aðferð sem næmt fólk getur stundað. Þú lætur handleggina hvíla á stólörmunum og opna lófana snúa upp. Þú lokar augunum og reynir að hugsa ekki um neitt. Tæma hugann. Þá er aldrei að vita nema að þú getir heyrt í honum. Ef þú heyrir í honum skaltu opna augun og þá getur verið að þú sjáir hann líka!“ Mamma leggur brúna stílabók og bláan bic-penna á eldhúsborðið. Stílabókin lítur nákvæmlega eins út og þær sem ég nota í skólanum, en þessi er óskrifuð. Og þessa bók þarf ég ekki að geyma í skólatöskunni og ég þarf ekki að leysa í henni Hverfa út í heiminn tmm júní 22x27 Ó 5.6.2001 19:57 Page 19

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.