Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Blaðsíða 41

Tímarit Máls og menningar - 05.06.2001, Blaðsíða 41
erfiðisvinnu, hernaði og veiðum sem var nauðsynlegt fyrir tilveru hverrar fjölskyldu. Á sama hátt þurftu konur ekki að eyða tíma sínum í veiðar og hernað en þau störf voru að mestu ósamrýmanleg því að ala og fæða börn, sem konur sérhæfðu sig í. Þessi sérhæfing birtist glöggt í hjóna- böndum. Hægt er að líta á flest samskipti fólks sem viðskipti, óháð því hvort peningar skipta um hendur. Kynhegðun flokkast ekki nema í fáum tilfellum undir vændi en sú staðreynd má ekki leiða sjónir manns frá því að í flestum tilfellum eiga sér stað einhvers konar viðskipti. Hjónabönd eru viðskiptasamningar sem eru hagkvæmir fyrir báða aðila. Innan hjóna- bandsins hefur myndast verkaskipting þar sem eiginkonur hafa í gegnum tíðina hugsað meira um heimilishald og uppeldi barna. Eiginmenn hafa hins vegar aflað megin hluta tekna og hefur þessi tilhögun lengstum verið hagkvæm fyrir bæði kynin. Færa má rök fyrir því að dregið hafi úr hagkvæmni hjóna- bandsins á síðustu áratugum. Ástæða þess er sú að mörg þeirra starfa sem áður voru unnin innan veggja heimilanna hafa færst yfir á almennan markað. Að sama skapi hefur atvinnuþátttaka kvenna aukist til mikilla muna. Skynsamlegasta svarið við spurningunni af hverju fólk stundar kynlíf virðist vera að kynæxlun eykur líkurnar á því að tegundin lifi. Gera má ráð fyrir að í gegnum þróunarsöguna hafi náðst eins konar jafnvægi til að tryggja verndun ungbarna og ófrískra kvenna. Að sama skapi má gera ráð fyrir að þróast hafi kerfi sem hvetur karlmenn til að yfirgefa ekki konur eftir kynmök né heldur strax eftir fæðingu. Þeir karlmenn sem verndað hafa mæður og börn hafa átt meiri möguleika á því að koma genum sínum áfram. Mörg kyn- einkenni kvenna hvetja karlmenn til að yfirgefa þær ekki. Þannig eru konur færar um að stunda kynlíf nær allan ársins hring. Náttúran hefur stuðlað að fjölgun með því að láta karlmenn vera sífellt hungraða í kynlíf og svo virðist sem kynhvöt sé meiri hjá körlum en konum. Sem rök fyrir því má nefna að vændi þar sem karlmenn selja konum blíðu sína hefur ekki náð fótfestu svo neinu nemi, sjálfsagt vegna þess að alltaf er nægt framboð af viljugum karlmönnum. Þetta leiðir líka til þess að karlmenn ættu (að öðru óbreyttu) að vera tilbúnir til að greiða hærra verð fyrir kynlíf en konur, á sama hátt og þeim sem þykir ís góður eru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir hann en þeim sem finnst hann ekki eins góður. Helsta trompið sem konur hafa til að umbuna karlmönnum fyrir tryggð við sig er að fullnæging veitir karlmönnum mikla ánægju óháð því hvort getnaður hefur átt sér stað eða ekki. Með kynlífi allt árið um kring hafa þeir, í rás þróunarsögunnar, verið verðlaunaðir fyrir að yfirgefa ekki konur sínar. Á sama hátt hefur því verið haldið fram að ást sé einhvers konar útvalið fyrirbæri. Ást er frábrugðin kynferðislegri þrá að því leyti að litið er á einstaklinginn sem einstakan. Ást styrkir sambönd foreldra og dregur úr líkunum á því að upp úr sambandi þeirra slitni. Ástin hefur aukið líkurnar á því að karlmenn sjái fyrir börnum og mæðrum umfram það sem kynhvötin ein myndi gera. Skynsamlegasta hernaðaráætlunin hjá báðum kynjum gæti því hafa verið einhvers konar blönduð áætlun. Hjá körlum gæti hún hafa falist í því að hugsa um eina konu – í besta falli nokkrar – en nota um leið þau tækifæri sem gefast til að halda framhjá. Sérstaklega ef hægt hefði verið að komast hjá því að sjá fyrir barninu og móðurinni með því að láta annan karl um það. Hjá konum gæti hún hafa falist í því að finna sér einn mann en halda framhjá honum ef einhver betri tækifæri – eða einfaldlega betri gen – byðust. Þetta gefur vísbendingar um að framhjáhald sé manninum eðlislægra heldur en fjölkvæni. En ábati felst ekki aðeins í vellíðan af fullnægingu heldur einnig í ánægju yfir því að hafa fjölgað sér. Börn veita fólki ánægju en þeim fylgir líka kostnaður sem stöðugt fer vaxandi. Þær tekjur sem konur fara á mis við vegna barneigna hafa hækkað og það skýrir að hluta hvers vegna konur á Vesturlöndum eignast nú færri börn en áður. Mörg rök hníga þó að því að á sama tíma hafi lífsgæði barna aukist. Foreldrar eru nú færir um að veita börnum sínum meiri gæði sem kemur t.d. fram í því að foreldrar eyða nú meira í menntun barna sinna en áður. Ljóst er að fólk vegur og metur þessa þætti þegar kemur að kynhegðun. Kynhegðun ræðst því ekki af ábatanum einum saman heldur samspili ábata og kostnaðar. Gera má ráð fyrir að eftirspurnarferillinn eftir kynlífi sé niðurhallandi. Það þýðir að því meira kynlíf sem fólk stundar, því minni verður viðbótarvellíðanin – jaðarábatinn – og því er fólk reiðubúið að borga sífellt minna fyrir viðbótarkynlíf. Kostnaður Kostnaður er fórnarkostnaður athafnar, ábati næst- bestu athafnar sem fórnað er. Kynlífskostnaður getur verið af ýmsum toga. Kostnaður við að hafa samfarir getur falist í því að kona verði ófrísk og ali barn, töpuðum tíma og hættu á kynsjúkdómi. Löggjöf á sviði kynferðismála getur einnig aukið kostnað athafna. Strangari löggjöf um sam- kynhneigð þýðir hærri kostnað af kynlífi með sama kyni og frjálsleg skilnaðarlöggjöf þýðir hærri kostnað við framhjáhald. Ein tegund kostnaðar er leitarkostnaður. Hann er lægstur við sjálfsfróun þar sem hann er enginn en það þýðir þó ekki að sjálfsfróun sé ókeypis. Hún tekur tíma auk þess sem neikvæð viðhorf gagnvart sjálfsfróun geta valdið tilfinningalegum kostnaði. Leitarkostnaður útskýrir t.d. af hverju gæði þeirrar þjónustu sem konur og karlar í vændi veita eru minnst hjá þeim sem starfa á strætum stórborganna og mest hjá þeim sem starfa við „fylgdar þjónustu“. Leitarkostnaður er hlutfallslega hærri þegar gæði eru lítil en þegar gæði eru mikil. Eftir því sem gæðin eru minni er fólk síður tilbúið að taka á sig mikinn kostnað og öfugt. Sambærilegt dæmi er verslun með kavíar. Fólk er fremur tilbúið til að flytja inn góðan kavíar en slæman þar sem flutningskostnaður hefur minni áhrif á verð gæðakavíars en þess sem lakari er. Því meira aðlaðandi sem einstaklingur er því lægri leitarkostnað hefur hann og þarf (að öðru jöfnu) ekki að leita eins lengi að félaga. Þannig má gera ráð fyrir að þeir sem eru aðlaðandi stundi meira kynlíf en þeir sem ekki eru eins aðlaðandi vegna þeirrar einföldu staðreyndar að kynlíf er ódýrara fyrir þá. Ætla má að þessum einstaklingum hafi fjölgað í rás þróunarsögunnar. Með náttúruvali má ætla að þær konur hafi valist úr sem voru tryggar, aðlaðandi og hæfar til að ala börn. Hjá karlmönnum má ætla að þeir sem voru sterkir og árásargjarnir hafi fremur komið genum sínum áfram. Samkeppni um konur hefur ekki eingöngu stafað af því hve tiltölulega fáir karlar hafa getað einokað allar konur í nánd við sig, heldur einnig af því að konur eru misjafnlega hæfar til að eiga börn. Kynferðislegt aðdráttarafl kvenna er tengt hæfni þeirra til að eignast börn. Karlmönnum finnast konur á barneignaraldri meira aðlaðandi kynferðislega en konur sem eru eldri eða yngri. Karlmönnum finnast lögulegar konur meira kynæsandi en ólögulegar. Kynferðislegt aðdráttar- afl karla virðist ekki í sama mæli vera tengt ákveðnum útlitseinkennum. Konur virðast fremur taka eftir því hvort karlmaðurinn sé hæfur til að sjá fyrir þeim og afkvæmum þeirra og er ekki óskynsamlegt í þróunarsögulegu samhengi. Það er líka áhugavert að skoða hvernig áhrif þessa munar karla og kvenna koma fram hjá sam- kynhneigðum. Það er áberandi að samkynhneigðir karlmenn leggja meiri áherslu á útlit sitt en gagn- bls. 41 tmm júní 22x27 Ó 5.6.2001 19:58 Page 41
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.