Félagsbréf - 01.07.1960, Side 31

Félagsbréf - 01.07.1960, Side 31
l'KLAGSBRÉF l 29 á á lögþingi ríkisins). Það er auðséð réttast væri það væri afgjört af jafn- mörgum mönnum af fulltrúum Dana og íslendinga, og að konungur skæri úr þegar ágreiningur yrði, en að tillagið væri aðeins áskorðað fyrir nokkur ár í senn. En margir vildu liklega láta lslendinga ráða því sjálfa, hvað mikið þeir ættu að leggja til ríkisþarfanna. Ekki er samt held ég nokkurn tíma að búast við því. Nú er það, sem við eigum að ná í: jafn réttur til lög- gjafar fyrir okkur, sem allsherjarþingið hér fær fyrir Danmörku. f april mánuði vonast menn eftir að sjá frumvarpið til stjórnlaganna. Það er sagt konungur sjálfur sé fyrir að gefa sem mest frelsi, en þeir, sem kringum hann eru, vilja Iáta liann gefa minnst. Það var eitt af því fyrsta, sem kon- ungur gjörði, að hann sendi boð eftir Bardenfleth og gjörði hann að Ge- lieime Statsminister. Nú á hann frá 1. apríl að verða forseti í danska kansel- líinu, en þeir Stemann og Orsted eiga þá að fara frá. Allir halda hér muni verða „ansvarlige Ministre“ og verður þá þessum Collegiis steypt, sem hetur fer fyrir öll störf. En hvað verður þá úr mér og mínum líkum. Ég hugfea nú ekki svo mikið um það eins og hitt, hvað þeir muni þá gera við íslenzku málin, hvort þeir muni láta þau dúsa svona á víð og dreif, eða taka þau öll saman á einn stað.“ Brynjólfur fékk svar við þessari spurningu von bráðar. Ráðherrarnir þinguðu um stofnun sérstakrar stjórnardeildar fyrir fsland sumarið 1848. Hún var sett á stofn fyrir áramótin 1848—49. Brynjólfur var gerður að forstöðumanni hennar og réð mestu um skipulag hennar. Þegar fregnirnar um afsal einveldisins bárust til íslands var efnt til lundahalda um sumarið og samdar bænarskrár, þar sem óskað var eftir, að um hin væntanlegu stjórnarlög yrði fjallað á 'þingi í landinu sjálfu. Svar stjórnarinnar var konungsbréfið 23. sept. 1848, þar sem því var heitið, að engar ákvarðanir skyldu teknar í málinu, fyrr en innlent þing hefði tekið það lil meðferðar. Þetta loforð var mikill styrkur fyrir fulltrúa íslands á Orundvallarlagaþinginu, því að með þessu var 'þeirri hættu bægt frá, að danska Grundvallarlagaþingið skammtaði íslendingum sjálfstæði án þess að íslenzkt þing gæti lagt þar orð í belg. Það lá því næst fyrir að hefja undirbúning að slíku þingi. Fyrsta spor stjórnarinnar í þessa átt var að kveðja Pál Þórðarson Melsted til Kaupmannahafnar og útnefna hann sem konungsfulllrúa á aljjingi 1849. Páll tók þegar að búa sig undir starfið og m.a. lagði hann til, að þingið 1849 skyldi fjalla um stjórnlagamálið sem ráðgefandi Jnng, og taldi, að það skijiti ekki meginmáli, j)ó að lög-

x

Félagsbréf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Félagsbréf
https://timarit.is/publication/1060

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.