Félagsbréf - 01.07.1960, Blaðsíða 57
félagsbréf
55
Frá Almenna bókaíélaginu
Aðalfundur.
Aðalfundur Almenna bókafélagsins var
Haldinn liinn 13. júní sl. Voru þar mættir
flestir fulltrúaráðsmenn félagsins, en fund-
inum stjórnaði formaður þess, Bjarni
Benediktsson, ráðherra.
Skýrði hann í upphafi fundar frá því,
að nú yrðu þær breytingar á stjórn félags-
ins, að Eyjólfur Konráð Jónsson, lög-
fræðingur, sem verið hefur framkvæmdar-
stjóri þess frá stofnun, léti nú af því
starfi, en í stað hans hefði verið ráðinn
Baldvin Tryggvason, lögfræðingúr. Þakk-
aði formaður og fundarmenn Eyjólfi frá-
bæra framkvæmdarstjórn, en fyrir hans
dugnað fyrst og fremst er félagið orðið
svo mikilsvirkt í hókaútgáfunni sem raun
er á.
Formaður bókmenntaráðsins, Gunnar
Gunnarsson, skáld, var staddur erlendis,
þegar fundurinn var haldinn, en hafði
heðið Bjarna Benediktsson að skila því,
að hann óskaði eindregið eftir að verða
ekki endurkjörinn í formannssætið, þar
eð hvorki tími hans né heilsa leyfði,
að hann hætti á sig þeim aukastörfum,
sem formennskan krefðist. Hlaut fund-
urinn að taka þessa ósk hans til greina.
Sendu fundarmenn honum símskeyti, þar
sem honum voru þökkuð ómetanleg störf
1 þágu félag9Íns á fimm ára ferli þess.
Hefur Gunnar Gunnarsson öllum öðrum
fremur markað félaginu stefnu, og bóka-
val og könnun hóka til útgófu hefur
hvilt mjög á herðum hans. í stað Gunn-
ars Gunnarssonar var dr. Þorkell Jóhann-
esson, háskólarektor, kjörinn formaður
bókmenntaráðsins.
f stjórn félagsins voru kosnir þessir
menn:
Formaður:
Bjarni Benediktsson, ráðherra.
Meðst j órnendur:
Dr. Alexander Jóhannesson, prófessor,
Jóhann Hafstein, alþingismaður.
Karl Kristjánsson, alþingismaður,
Þórarinn Björnsson, skólameistari.
f bókmenntaráð voru kjörnir:
Dr. Þorkell Jóhannesson, háskóla-
rektor, formaður.
Birgir Kjaran, alþingismaður,
Davíð Stefánsson, skáld,
Guðmundur G. Hagalín, rithöfundur,
Höskuldur Ólafsson, lögfræðingur,
dr. Jóhannes Nordal, bankastjóri,
Kristján Albertsson, rithöfundur,
Matthías Johannessen, ritstjóri,
Tómas Guðmundsson, skáld.
Fimm ára starf A B.
Um þessar mundir eru liðin fimm ár
frá því að Almenna bókafélagið tók til
starfa. Það var formlega stofnað 17. júní
1955. í janúar þ. á. höfðu 32 menn komið
saman á fund og ákveðið að stofna félagið
og vinna saman að velferð þess. Hlaut það
nafnið Almenna hókafélagið, en tilgangur
þess er „að vinna að alhliða menningar-
starfsemi á þjóðlegum grundvelli, fyrst
og fremst með bóka- og tímaritsútgáfu",
eins og stendur í fyrsta hefti Félagsbréfa.