Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1878, Síða 145
135
1878
og um skör fram, þá láti stjórnin á landsins kostnað rannsaka þetta málefni, og
ráða bót á þessu vandræði með því að sá mel í sandinn og verja melinn þar sem
bann enn þá er, og að hverjum leiguliða verði gjört að skyldu að friða melinn, að
viðlagðri útbyggingu og sektum, og loks að settar verði lagaákvarðanir og fyrirskip-
aðar þær ráðstafanir, sem nauðsynlogar eru þessu til framkvæmdar.
Reykjavík, 30. septemberm. 1878.
Bergur Thorberg.
Stjórnarbrjef og auglýsingar.
— Brjef ráðgjafans fyrir ísland til landshiifðingja um uppgjöf á skuld til
landssjóðs. — Með þóknanlegu brjoíi 22. marz þ. á. hafið þjer, herra landshöfð-
ingi sent hingað bœnarskrá, þar sem stjórn sjúkrahússins í Reykjavík beiðist þess, að
hún fái tilkynning um það frá ráðgjafanum, hvort telja megi gefið upp með fjárlögunum
1878 og 1879 lán það, að upphæð 2000 kr. er með konungsúrskurði 20. febrúar 1866,
var veitt sjúkrahúsinu vaxtalaust um 5 ár, og var undanþágan frá vaxtalúkningu lengd
til 11. júní f. á. með konungsúrskurði 8. janúar 1872.
Eins og yður herra landshöfðingi mun kunnugt, var í athugasemdunum við 4. grein
frumvarpsins til fjárlaga fyrir nefnd ár, sem lögð voru fyrir aiþingið, gjörð sú athugasemd,
að ráðgjafinn vegna meðmæla landshöfðingja um, að sjúkrahúsið mætti fá fyrtjeð lán
gefið upp, heföi sleppt áminstri uppliæð úr yfirlitinu yfir ástand viðlagasjóðsins, eigi held-
ur voru í tjeðri grein til fœrðir vextir af áminnztum höfuðstól.
Með því engin mótmæli komu fram frá alþingi á móti þessu, og þingið, þá er
það breytti greininni, til fœrði ekki vextina af þeim 2000 kr., sem Ijeðar voru sjúkrahús-
inu, en nú voru ekki lengur vaxtalausar, sjer ráðgjafinn ekki betur, en að ætla megi, að
alþingið liafi þegjandi samþykkt tíllöguna um, að höfuðstóllinn sje gefinn upp.
Samkvæmt þessu eruð þjer, herra landshöföingi, beðnir þóknanlega að tjá sjúkra-
liúss-stjórninni það, sem þörf er á.
— Brjef landsliöfðingja til amtmannsins yfir norður- og austurumdœminu utn styrk
til eflingar á sjáfarútvegi. —• Samkvæmt tillögum yðar, herra amtmaður, í
brjefi frá 20. þ. m. veitist hjer með alþingismanni Einari Bessa (íuðmundssyni frá Hraun-
um í Fljótum í Skagafjarðarsýslu af fé því, sem í fjárlögunum 10. gr. C 5 er ætlað þetta
ár til eflingar á sjáfarútvegi og jarðarrœkt 500 kr. styrkur til þess að ferðast til Noregs í
haust og kynna sjer þar bátasmíði Norðmanna, veiðigögn, aðfarir við veiðiskap, hirðingu
og meðferð á afla m. 11., og mun jeg eptir nánari tillögum yðar fúss á að veita tjeðum
Einari Guðmundssyni jafnmikinn styrk næsta ár, allt með því skilyrði, að hann rifci og
komi á prent skýrslu um ferð sína, og um það í hverju og hvernig bœndur hjer á landi
gætu tekið sjer veiðiskap Norðmanna til fyrirmyndar.
— Brjef landsllöfðingja til amtmannsins yfir suður- og vesturumdœminu um auka-
tekjur sýslumanna. — í tilefni af brjofi frá sýslumanninum í Rangárvallasýslu,
þar sem hann spyrst fyrir um, hvort sýslumaðurinn eða landssjóðurinn cigi aukatekjur
þær, er fjeliu til borgunar innan 6. júuí þ. á., hvernig, skuli fara með tokjur þær, sem
68. gr. aukattíkjureglugjörðarinuar veitir hcimild til að rcilaia, hvort sýslumonn cnga
l»9
140
4. júlí.
141
31. ágúst.
142
2. sept.