Stjórnartíðindi fyrir Ísland: B-deild - 01.12.1880, Blaðsíða 26
1880
16
|5 ir viðhaldi hans framvegis. Virtist ráðinu bezt til fallið. að sýslunefnd Eyfirðinga
tœki að sjer stjórn kvcnnaskólans eptirleiðis, og að hún útvegaði honum fje að
láni á sína ábyrgð, ef skólinn þyrfti lán að taka. Samþykki til að taka slíkt lán,
er sýslunefndinni jiœtti nauðsynlegt, vildi amtsráðið fúsloga gefa henni. f>á vildi
og amtsráðið gefa umboðsmanni Eggert Gunnarssyni sín beztu meðmæli til þess að
útvega þessari jrarflegu stofnun fjárstyrk erlendis.
21. Amtsráðið samdi tillögur um breyting á búnaðarskýrslum þeim, er hreppstjórar
liafa hingað til gefið eptir framtali í fardögum ár hvert, þannig að í staðinn fyrir
þessa skýrslu skyldu koma. tvær skýrslur, önnur um lausafje, og hin um landeign,
ábúð og landsnytjar. Voru skýrslusnið til búin að laga skýrslur þessar eptir svo
sem amtsráðið hugsaði sjer þær, og ályktað að senda landshöfðingja jrau með álits-
skjalinu um frumvarp til reglugjörðar fyrir hreppstjóra.
22. Að síðustu samþykkti amtsráðið að voita 25 kr. þóknun úr jafnaðarsjóðnum fyrir
skriptir við amtsráðið á yfirstandanda ári.
Fleiri mál komu eigi til umrœðu á þessum fundi.
Akureyri 27. desbr. 1879.
Cliristiansson.
Sljórnarbrjef og auglýsingar.
10 — ÚrslturBur landsliöfðingja um styrk handa ættfrœði ngi. — Bjarni Guð-
20. jan. muniisson tómthúsmaður í Kirkjuvogi suður í Höfnum hafði samkvæmt vottorðum áreið-
anlegra manna lagt í 28 ár mjög mikla stund á að rita ættartölur og að rckja ættir
merkismanna frá fyrri öldum niður til núlifandi manna og komið upp ættartölusafni á
lijer um bil 750 arkir. Til þess að halda áfram þessum störfum var honum veittur
100 kr. styrkur af fje því, sem 15. gr. fjárlaganna um árin 1880 og 1881 ætlar til vís-
indalegra og verklegra fyrirtœkja.
17 — Brjef landsliöfðingja til stiptsyfirvaldanna um styrk til dýra- og mynda-
20. jan. safns> — Samkvæmt tillögum stiptsyfirvaldanna í þóknanlegu brjefi frá 17. þ. m. hefi
jeg af fje því, som í 15. gr. fjárlaganna fyrir árin 1880 og 1881 er ákveðið ti! vísinda-
legra og verklegra fyrirtœkja veitt skólakcnnara Benedikt Gröndal 200 kr. styrk fyrir árið
1880 til að halda áfram dýrasafni því og myndasaf'ni íslenzkra dýra, sem hann nokkur
ár hefir unnið að, og sem á sínum tíma á að taka inn í náttúrusögusafn lærða skólans.
Af þessari upphæð er búið að voita nefndum skólakennara 100 kr. Hinn helminginn
getur hann samkvæmt beiðni sinni fengið útborgaðan um lok júlímánaðar næstkomandi.
Jafnframt því að tjá yður þetta til þóknanlegrar leiðbeiningar og birtingar fyrir
hlutaðeiganda, vil jeg skjóta því til yðar að sjá um, að Benedikt skólakennara Gröndal verði
gefinn kostur á að auglýsa í næstu skólaskýrslu, hvað honum hafi orðið ágengt með nefnt
dýra- og mvndasafn, frá því að hann fyrst fór að fást \ið það, sbr. brjef landshöfðingja
frá 8. marz 1875 (stjórnartíð. f. á. B. 11) og til útgöngu skólaársins 1879—80, svo og
að eptirleiðis verði á sama liátt prentuð skýrsla um þetta í skólaskýrslu hvers einstaks
skólaárs.