RM: Ritlist og myndlist - 01.12.1947, Síða 102
ERLENDAR BÆKUR
RM
BÆKUR Á DÖNSKU:
Danviarks Digtekunst. Anden Bog.
Kla8sicismen. Eftir F. J. Billeskov
Jansen. Munksgaard 1947. Verð 16,50
danskar kr. Þetta annað bindi danskr-
ar bókmenntasögu nær yfir timabil-
ið frá því um 1700 og til P. A. Hei-
berg. Höfundurinn er prófessor i
dönskum bókmenntum við háskólann
i Kaupmannahöfn.
Digteren, Elskeren og den Afain-
dige, greinar um bókmenntir, eftir
Frederik Schyberg. Thaning & Ap-
pel 1947. Höfundurinn er einn af
kunnari ritdómurum Dana, skrifar
að staðaldri um bækur og leiksýn-
ingar í Politiken.
BÆKUR Á NORSKU:
J. P. Jacobsen og andre essays, rit-
gerðasafn eftir Carl Burchardt. Cap-
pelen, 1947. Burchardt er norskur
bókmenntafræðingur. I bók þessari
erd ritgerðir um ýmsa norska og
danska rithöfunda, auk Jacobsens,
þar á meðal Amalie Skram, Herman
Bang og Sigbjöm Obstfelder.
Fest i Port des Galets, skáldsaga
eftir Arne Skouen. Aschehoug. Verð
9 kr. norskar. Þetta er verðlauna-
saga. Um bókmenntagildi hennar
skal ekkert fullyrt.
BÆKUR Á ENSKU:
From Pushlcin to Mayakovsky, bók
um rússneskar bókmenntir, eftir Jan-
ko Lavrin. Sylvan Press, London.
Verð 10 s. 6 d.
The History of American Paintmg,
eftir Samuel Isham og Royal Cor-
tissoz. Machmillan, London. Verð 5 s.
Greinargott yfirlit um ameríska mál-
aralist frá dögum Benjamíns West
til þessa dags.
The Dark Tower and Other Broad-
cast Plays, eftir Louis Mac Neice.
Faber, London. Verð 7 s. 6 d. Skáld-
ið Mac Neice hefur að undanförnu
samið allmörg útvarpsleikrit og fært
önnur í útvarpshæfan búnirtg. Þykir
honum hafa tekizt hvorttveggja mjög
vel. Þessi bók hefur að geyma fjögur
leikrit fyrir útvarp, ásamt einkar
fróðlegri ritgerð um útvarpsleikrit.
The Age of Anxiety, ný ljóðabók
eftir W. H. Auden. Random House,
New York. Verð $ 2,50. Auden kall-
ar hina nýju bók sína „A barocque
eclogue“. Þetta er ljóðabálkur, sam-
tal á styrjaldartíma milli þriggja
manna og einnar konu, sem sitja
inni i veitingakrá á Manhattan. Bók
þessa telja ritdómarar mikið lista-
verk. Þar gætir mjög kaþólskra
áhrifa. Heimsafneitun og svartsýni
einkenna bókina.
Proud Destiny, skáldsaga eftir
Lion Feuchtwanger. Viking, New
York. Verð $ 3,50. Þetta er skáld-
saga um Maríu Antoinettu, Beau-
marchais og Benjamín Franklin.
Hinn frægi höfundur þykir hafa
nálgast helzt til mikið hina ,,billegu“,
sögulegu skáldsögu, sem alltaf virð-
ist jafnmikill sölumatur. En hann
hefur líka uppskorið geysihá ritlaun
og ennþá gildari sjóð frá kvikmynda-
félagi einu, sem ætlar að kvikmynda
söguna.
The Times of Melville and Whit-
man, eftir Van Wyck Brooks. Dut-
ton, NeW York. Verð $ 5. Þetta er
talin góð bók og fróðleg um ame-
rískar bókmenntir á tímabilinu 1850-
1890, og þann þjóðfélagslega jarð-
veg, sem þær spruttu úr.
Nothing so Stange, skáldsaga eft-
ir James Hilton. Little, Brown, Bost-
on. Verð $ 2,75. Þessi nýja skáld-
saga Hiltons gerist í Ameríku, en þar
er höfundurinn nú búsettur.
BÆKUR Á FRÖNSKU:
Réflexiona aur la question juive,
eftir Jean-Paul Sartre. Paul MorihÞ
96