Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.04.1995, Qupperneq 30
heldur áfram að snjóa í gríð og erg, það er eins og aldrei ætli að stytta upp.
Allir litirnir, rautt, grænt, brúnt og blátt eru hjúpaðir hvítu. Hvert sem mað-
ur lítur, allt er snjóhvítt; hvert sem þú horfir, allt er snjóhvítt. Og það er
hljótt, það er hlýtt, það er mjúkt, það er hreint. Það er áreiðanlega nokkuð
erfitt, ef ekki alveg útilokað, að óhreinka sig í snjó. Trjágreinarnar eru þakt-
ar snjó. Þær svigna niður að jörð undan hvítu þykku farginu og loka göt-
unni. Götunni! Eins og það sé til einhver gata. Maður bara gengur og vonar
að maður sé á réttri leið. Og það er hljótt. Það hefur fennt yfir öll hljóð, all-
an hávaða, skarkala og háreysti. Maður heyrir ekkert nema kyrrð, þögn og
ekki lætur hátt í henni. Það er hlýtt í öllum þessum mjúka kafasnjó, hlýtt
eins og í notalegri stofu þar sem frómar manneskjur hafa hist til að eiga
saman Ijúfa stund. Allt er slétt og fellt. Brúnir, hom og broddar hafa hjúpast
snjó. Það sem var kantað og oddhvasst hefur nú fengið hvíta ávala hettu.
Snjórinn hefur með mestu vinsemd og alúð þakið allt hart, gróft og hnubb-
ótt. Hvar sem þú drepur niður fæti stígurðu á mjúkt, hvítt og hvað sem þú
snertir er milt, vott og mjúkt. Allt er hulið blæju, allt er orðið slétt og
hnökralaust. Þar sem áður kenndi margra grasa er nú aðeins eitt og aðeins
eitt, snjór; og það sem áður var andstætt hefur nú verið sameinað í eitt og
aðeins eitt, snjó. Hversu ljúflega, hversu friðsamlega hafa ekki hin margvís-
legu fyrirbæri sameinast í einni einustu mynd, tekið á sig einn heildarsvip.
Það er aðeins ein mynd sem ríkir. Það sem var sterkt hefur nú verið mildað,
það sem hóf sig upp lýtur nú, í besta skilningi þess orðs, einni ljúfri, fagurri
og háleitri heild. En bíðið við, ég er ekki búinn að segja allt. Mér dettur
nefnilega í hug að stríðshetja nokkur, sem vildi ekki láta taka sig höndum
heldur gerði það sem einni hetju ber að gera og varðist ofureflinu þar til yfir
lauk, gæti hafa fallið í snjó. Það snjóar án afláts á andlitið og höndina, á
aumingja líkamann með blóðugu sárinu, hina göfugu lund, hina karlmann-
legu einurð og hina hreinlyndu hugrökku sál. Hver sem er getur gengið yfir
gröfina án þess að verða nokkurs var en honum sem liggur undir snjónum
líður vel. Hann hefur öðlast frið og ró, hann er kominn heim. - Konan
hans stendur við gluggann heima, horfir á iðandi drífuna og hugsar: „Hvar
skyldi hann vera og hvemig skyldi honum líða? Honum líður áreiðanlega
28