Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.04.1995, Side 44

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist - 01.04.1995, Side 44
Hann gekk alltaf álútur án þess að vera að hugsa um eitt eða neitt. Það var hægt að taka hringinn af fingri hans, matinn af diskinum hans, hattinn af höfðinu, skóna af fótunum, vindlinginn úr munnvikinu, börnin hans fyrir framan nefið á honum og stólinn, sem hann sat á, undan honum án þess að hann tæki eftir því. Einhverju sinni, þegar hann var úti að ganga, datt höf- uðið af honum. Það hlýtur að hafa setið eitthvað laust á búknum, varla hefði það dottið af mér og ekki heldur þér. Binggeli tók ekki eftir því að höfuðið vantaði á hann, hann hélt áfram höfuðlaus þangað til einhver sagði við hann: „Það vantar á yður höfuðið, herra Binggeli.“ En Binggeli heyrði þetta ekki, höfuðið var dottið af honum og þar af leiðandi hafði hann engin eyru lengur. Binggeli skynjaði nú alls ekkert, fann ekkert bragð og enga lykt og tók ekki eftir neinu. Trúir þú þessu? Ef þú trúir þessu í raun og veru færðu 20 aura, þú getur keypt þér eitthvað fallegt fyrir þá. Meðan ég er að segja þetta ævintýri má ég ekki gleyma hönskunum sem liggja þarna virðulegir og þreyttir út af borðbrúninni. Hver skyldi hún vera þessi virðulega og tigna dama sem var svona kærulaus að skilja þá hérna eftir? Þetta eru afskaplega fínir, háir, ljósgulir hanskar. Svona hanskar segja svo margt um eiganda sinn og rödd þeirra er blíð og elskuleg eins og líf þokkafullra kvenna. Þeir liggja svo failega þarna. Þeir ilma svo yndislega! Mig langar mest til að þrýsta þeim upp að andlitinu en það væri kannski dá- lítið kjánalegt. Það er bara svo oft sem mann langar til að gera eitthvað kjánalegt. 42

x

Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bjartur og frú Emilía: tímarit um bókmenntir og leiklist
https://timarit.is/publication/1206

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.