Frón - 01.04.1943, Qupperneq 6

Frón - 01.04.1943, Qupperneq 6
68 Jakob Benediktsson (Tímarit Bókmenntafél. 24. árg. bls. 178). Bjarni mátti vel fara nærri um ástandið, því að hann hafði í meira en áratug verið fulltrúi í rentukammerinu, auk afskipta sinna af stjórnarráðunum eftir að hann varð íslenzkur amtmaður; og ekki þarf að rengja þessa lýsingu hans af því að hann væri í flokki þeirra frjáls- lyndari íslendinga sem fyrstir risu gegn stjórnarvöldunum. Með þessu fyrirkomulagi æðstu stjórnar og slíku hugarfari þeirra manna sem með hana fóru var ekki mikilla né nýstárlegra umbóta að vænta úr þeirri átt. Og sé nú litið til Islands sjálfs og stjórnarskipulags þar, verður það skjótt Ijóst, að þar tók ekki miklu betra við. öll innanlandsstjórn var í höndum embættis- manna. Æðstir þeirra voru stiftamtmaður, sem var um leið amt- maöur í suðuramtinu, og amtmennirnir tveir, annar i vestur- amtinu, hinn í norður- og austuramtinu. Amtmennirnir tveir voru ekki undir stiftamtmanninn settir, heldur áttu beinan aðgang að kansellíi og höfðu yfirstjórn allra veraldlegra mála í umdæmum sínum. Undir þeim stóðu sýslumenn og hreppstjórar, en þeir áttu engan kost á að ná til stjórnarvaldanna öðruvísi en um hendur amtmanna. Andlegu málin voru að því leyti betur farin að stjórn þeirra var ein, því að biskup, og að nokkru leyti stift- amtmaður, fóru þar meS æðstu völd innan lands. öll löggjöf fór fram í stjórnarráSunum, og lögin voru síÖan án frekari umsvifa birt á íslandi meS þeim hætti að þau voru lesin upp í landsyfirrétti, sem á þennan hátt hélt áfram hlutverki hins gamla Alþingis, eins og það var eftir að einveldi komst á. Fyrst framan af 19. öld fór löggjöfin aS mestu fram að íslending- um meS öllu fornspurSum, en eftir 1820 fór þaS meir og meir aS tíSkast að stjórnarráSin ráSguSust viS æðstu embættismenn landsins um helztu nýmæli. En á þessari aSferS voru ýms vand- kvæði. Samgöngur viS ísland voru allt annað en greiðar, bréfa- samband hvora leiS oft aðeins einu sinni á ári, á vorin frá Höfn og á haustin frá íslandi. Nokkru síðar, árið 1841, lýsti Jón SigurSsson ástandinu ennþá þannig: »Málefni þau sem kljá mætti aS öllu á 1—2 árum standa fyrir fjarlægðar sakir yfir 5—10 ár, því að samgöngur vorar og Danmerkur eru minni en Englands og Indlands« (Ný félagsrit 1,92). Samgöngur innan- lands voru engu betri, svo að embættismenn hver á sínu lands- horni áttu engan kost á aS bera saman ráð sín um tillögur stjórnarinnar, og urSu því svör þeirra oft æði sundurleit. Gat þá tilviljun ein eSa misjöfn hylli embættismanna á hærri stöS-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Frón

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frón
https://timarit.is/publication/1208

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.