Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Ökutæki eru nú farin að ferðast um nýjan Álftanesveg í gegn-
um Gálgahraun í landi Garðabæjar. Þetta vegarstæði hefur
löngum verið umdeilt og olli meðal annars mótmælum fjölda
fólks við upphaf framkvæmda.
Um tíma þurfti, í tengslum við mótmælin, að kalla til lög-
reglu vegna fólks sem settist niður fyrir framan stórtækar
vinnuvélar og kom þannig í veg fyrir vinnu verktaka. Var
fólkið, alls 25 einstaklingar, fjarlægt af lögreglumönnum og
fengu níu þeirra síðar á sig dóm í Hæstarétti Íslands vegna at-
hæfis síns á framkvæmdasvæðinu, en fólkinu var gefið að sök
að hafa ekki farið eftir ítrekuðum tilmælum lögreglu. Voru
mótmælendur dæmdir til að greiða 100.000 króna sekt en
Hæstiréttur frestaði ákvörðun refsingar um tvö ár. Fellur
hún niður að þeim tíma liðnum haldi nímenningarnir skilorð.
G. Pétur Matthíasson, upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar,
segir hinn nýja veg auka mjög öryggi vegfarenda. „Gamli
vegurinn var hættulegur og illmögulegt við hann að eiga.
Þessi mun þjóna byggð til framtíðar.“
Morgunblaðið/RAX
Ekið á nýju malbiki með mosa og hraun til beggja handa
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
„Við Húsvíkingar eigum stóra hlut-
deild í könnunarsögu heimsins.
Hingað komu Garðar Svavarsson og
Náttfari fyrstir
norrænna manna
og með æfingum
geimfaraefna
áttu tunglferðir
Bandaríkja-
manna fyrir 45
árum upphaf sitt í
Þingeyjar-
sýslum,“ segir
Örlygur Hnefill
Örlygsson, for-
stöðumaður
Könnunarsögusafnsins – The Exp-
loration Museum á Húsavík.
Í gær voru kynntar fyrirætlanir
um byggingu eftirgerðar tunglferju
sem verður komið fyrir á safninu.
Ferjan verður, ef allt gengur eftir,
afhjúpuð vorið 2019, þegar 50 ár
verða liðin frá lendingu Neil Arm-
strong og Buzz Aldrin á tunglinu,
sem þangað fóru með geimskipinu
Erninum. „Það verður heilmikið mál
að smíða tunglferju. Þetta er hins
vegar komið nokkuð áleiðis. Við er-
um komnir með teikningar að þessu
fleyi, peningar sem til þarf koma
smátt og smátt og rætt hefur verið
um að járnsmíðanemar við skóla á
Akureyri hafi verkið með höndum,“
segir Örlygur Hnefill.
Schmitt fékk verðlaunin
Í gær voru jafnframt kynnt könn-
unarverðlaun Leifs Eiríkssonar.
Tunglfarinn Harrison Schmitt fékk
aðalverðlaunin fyrir rannsóknir á
tunglinu árið 1972. Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Íslands, afhenti
honum verðlaunin fyrir hönd safns-
ins er hann var hér á landi í sumar.
Ástralska siglingakonan Jessica
Watson hlaut verðlaunin í flokki
ungra landkönnuða fyrir siglingu
umhverfis hnöttinn á suðurhveli árið
2010. Í flokki sagnfræðinga hlaut
verðlaunin Huw Lewis-Jones frá
Bretlandi, sem hefur skrifað mikið
um heimskautaferðir.
Tunglferja Húsvíkinga
verði smíðuð á Akureyri
Geimskip á Könnunarsafnið Verðlaun afhent í gær
Ferja Svona leit Örninn út og þetta er fyrirmyndin sem höfð er í huga.
Örlygur Hnefill
Örlygsson
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
forsætisráðherra fundaði í gær
með framkvæmdastjóra EASO,
Stuðningsskrifstofu Evrópu í mál-
efnum hælisleitenda, og fékk kynn-
ingu á starfsemi og verkefnum
stofnunarinnar.
Sigmundur Davíð er staddur á
Möltu á fundi leiðtoga í Evrópu um
flóttamannavandann. Var hann
upplýstur um umfang vandans og
mögulega þróun hans, að því er
segir í tilkynningu frá forsætis-
ráðuneytinu.
Meðal þess
sem kom fram á
fundinum var að
EASO teldi
mikilvægt að
samræma að-
gerðir ríkja bet-
ur en nú er og að
mikilvægt væri
að gera meira til
að gera fólki
kleift að dvelja
áfram í flóttamannabúðum og kom-
ast heim.
Upplýstur um stöðu hælisleitenda í Evrópu
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Úrval Útsýn | Hlíðasmára 19 | 585 4000 | uu.is
SÉRTILBOÐ
TENERIFE
HOTEL LA SIESTA ****
Verð frá 109.900 KR.
á mann m.v. 2 fullorðna með morgunverði.
Skelltu þér í sólina í jólastressinu
og gerðu jólainnkaupin í leiðinni.
Vel staðsett fjögurra stjörnu hótel
og eitt vinsælasta hótelið okkar á
Tenerife. Fararstjórar, Jói og Fjalar.
1. - 12. DES.