Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 80
80 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Nú er hvorki rétti tíminn til að lána
eða taka eitthvað að láni. Mættu mótspyrnu
af festu og láttu staðreyndirnar tala. Þér
hættir til að vinna of mikið.
20. apríl - 20. maí
Naut Það getur reynst heilladrjúgt að eiga
trúnaðarvin. Og mundu að þó að útlitið sé
svart þá bjargast hlutirnir alltaf fyrir horn.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þú ert opin/n fyrir fegurðinni í
kringum þig. Möguleikar koma í ljós þegar
þú tekur eitthvað af verkefnalistanum eða
hættir við framkvæmdir sem þú ert ekkert
spennt/ur fyrir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þótt þér finnist þú hafa lausnina
skaltu ekki blanda þér í annarra vandamál.
Vinur hjálpar til við erfið mál sem krefjast úr-
lausnar strax.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Vertu næm/ur og kát/ur í samskiptum
og taktu eftir að þau verða jákvæð. Komdu
þér út í góða veðrið og dragðu andann djúpt.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Mundu að þú ert sjálfur besti tals-
maður hugmynda þinna svo gættu þín bæði
til orðs og æðis. Taktu gagnrýni ekki óstinnt
upp. Taktu því með ró sem skoðunin leiðir í
ljós.
23. sept. - 22. okt.
Vog Láttu þér ekki bregða, þótt til þín verði
leitað í deilumáli. Sýndu fjölskyldu þinni þol-
inmæði. Hertu upp hugann því sókn er besta
vörnin.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Nú er hart sótt að starfsemi
þinni svo þú þarft að verja hana með kjafti
og klóm. Þér gengur best að vinna undir
álagi og afkastar með eindæmum.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert sérlega sannfærandi í dag
og átt því auðvelt með að fá vini þína til að
hjálpa þér. Segðu öðrum frá áformum þínum
því viðbrögð þeirra geta reynst þér nýtileg.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Í byrjun sambands varstu til í að
líta framhjá göllum ástvinar, hlæja og deila
með og vera eins og þú átt að þér. Brosið á
þér er nú stirðnað, gerðu eitthvað í málunum
þrátt fyrir að erfitt virðist að breyta til.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þótt gott sé að vera umkringdur
jábræðrum er það fyrst og fremst jákvæð
gagnrýni sem kemur hlutunum á hreyfingu
hjá þér.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert allra vinur þessa stundina og
ættir að láta þér vel líka í flestum tilvikum.
Ástvinur er í bobba, gáðu hvað þú getur
gert.
Það hefur verið fjörugt á Leirn-um. Undir hádegi á mánudag-
inn skrifaði Davíð Hjálmar Har-
aldsson:
Hún þjáðist af prumpi og pínu
svo pestina lagði af Stínu
sem hafði ekki gát
er hákarlinn át
en hringvöðvinn stóð fyrir sínu.
Sr. Skírnir Garðarsson gat ekki
orða bundist, – sagði að tími hinna
ógnvænlegu matvæla færi í hönd
„Súrmatur, grafinn, kæstur, mygl-
aður, úldinn, U name it …“:
Við allskonar andstyggðar neytum
af alifé, svínum og geitum,
þetta er úldið og kæst,
ég er örvinglan næst,
af illþef og kræsingum feitum.
Og bætti síðan við: „Ég hef upp-
götvað fæðubótarefni til mótvægis,
keypti nokkra skammta um dag-
inn f. 30 þús. kall, þetta er hverr-
ar KRÓNU VIRÐI.“
Hér er Davíð Hjálmar í öðrum
hugleiðingum:
Er Jónas og Freyr stunda fjölástir
oft fullir með Guðrúnu, ölástir,
og kornmat þau eta
þá öll sem þau geta
þá uppnefna sumir það mjölástir.
Hún fæddist án fóta, hún Tóta,
en fljótlega lærði að skjóta
af Remington-byssu.
Er roskna skaut hryssu
hún rauk upp til handa og fóta.
Ármann Þorgrímsson gat þess á
dögunum að skjaldmærin hefði
sagt á málþingi á Bifröst að öll
loforðin stæðu eins og stafur á
bók.
Oft hún þetta endurtók
ekki gat þó heimildar:
„Standa eins og stafur á bók
stærstu loforð sögunnar“.
Eftir leit um langan veg
læðist að mér vafinn
fjölda bóka fletti ég
finn samt ekki stafinn.“
Guttormur J. Guttormsson orti:
Vitrir menn eru minnihlutinn.
Meirihlutinn óvitringar.
Vegna þess er heimurinn heimskur.
Hann er ekki með fullu viti.
Þetta kallaði hann öfugmæli:
Betra er að vera af guði ger
greindur bónda stauli
heldur en vera, hvar sem er,
„hámenntaður“ auli,
Um „orð og gerðir“ sagði hann:
Ég hirði ekki um hvað þú „segir“,
en hitt: hvað þú lætur gert.
Hvað þú segir þegar þú þegir
er það sem er mest um vart.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Af hákarli, súrmat og Guttormi
Í klípu
„FYRIRTÆKIÐ KREFST ANNARRAR
BELTISÞRENGINGAR, ERTU TILBÚINN AÐ
VINNA FYRIR MINNI MAT?”
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG ER AÐ SEGJA ÞÉR ÞAÐ; ÞÚ
GLÍMIR EKKI VIÐ VANMÁTTARKENND.
ÞÚ ERT ÓÆÐRI.”
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gefa sér tíma fyrir
ykkur tvö.
ÉG SÁ
HANN
FYRST!
GEFÐU
MÉR
HANN!
NEI!
HANN ER
MINN!
ÉG SAGÐI;
VIÐ BERJUMST
Á MORGUN.
Í KVÖLD
HÖLDUM VIÐ
HÁTÍÐ...
... ÞVÍ AÐ Á MORGUN
BERJUMST VIÐ!
ÞETTA
ER MINN
LEGGUR!
MUN
VINNA
FYRIR
MAT
BRÁÐUM VERÐ ÉG
ÁRINU ELDRI.
ÆTLI ÉG FÁI ALDURS-
MARTRAÐIRNAR AFTUR
Á ÞESSU ÁRI?
HALLÓÓÓ!
ÞARNA ER
AFMÆLIS-
DRENGURINN.
SPURNINGU
SVARAÐ.
ÓNÁÐ
IÐ
EKKI
Víkverji finnur sig stundum utan-gátta í menningarlífi landans.
Sú tilfinning náði hápunkti sínum
um liðna helgi þegar tónlistarhátíðin
Iceland Airwaves stóð sem hæst. Þá
halda um það bil allir einstaklingar
sem falla í flokk unga fólksins af stað
í miðbæinn til að sýna sig og sjá aðra
ásamt því að hlusta á íslenska og er-
lenda tónlist.
x x x
Víkverji ákvað að gefa þessu öllutækifæri. Hann væri nú sér-
legur tónlistarunnandi, hlustaði á út-
varpið og hefði nýlega fengið sér
tónlistarveituna Spotify. Það var þó
aðallega þegar hann gafst upp á aug-
lýsingunum á Youtube.
En þá tók við leitin að Airwaves,
því Víkverji vissi varla hvar hann
ætti að bera niður. Eftir að hafa ráð-
fært sig við aðra tónlistarunnendur
komst hann þó á leiðarenda.
Hann hafði líka heyrt að það væru
um sex hundruð hljómsveitir sem
myndu stíga á svið á hátíðinni og
hann hlyti að geta fundið sér stað á
einhverjum þeirra viðburða. Hann
gat ekki verið það úr takti. En sá
vonarneisti kulnaði fljótt þegar ná-
kvæmlega ekkert hljómaði kunn-
uglega. Þessu skyldi hann þó halda
leyndu á hátíðinni. En þegar Vík-
verji hafði haft sig í að stíga út fyrir
rammann og sökkva sér í málið var
uppselt. Og það fyrir mörgum mán-
uðum. Nú voru góð ráð dýr.
x x x
Víkverji fylgdist þó grannt meðhátíðinni úr fjarska og las allar
fréttir af áfergju. Það sem hann átt-
aði sig hins vegar á er að það eru
ekki bara tónlistaratriðin sem
trekkja heldur er hátíðin hálfgerð
tísku- og týpusýning. Eftir að hafa
kíkt inn í fataskápinn sinn áttaði
Víkverji sig á að það væri ekki
seinna vænna að byrja að búa til
airwaves-týpuna.
Árið gæti hann svo tekið í að
sanka að sér viðeigandi klæðnaði og
mætt sterkur til leiks. Veðrið skyldi
engan stoppa og kuldaúlpunni skyldi
lagt með kuldaskónum.
Víkverji lendir því hlaupandi á
jörðinni eftir Airwaves 2015 og
stimplar sig endanlega inn í menn-
ingarlífið að ári! víkverji@mbl.is
Víkverji
Allra augu vona á þig, þú gefur þeim
fæðu þeirra á réttum tíma, lýkur upp
hendi þinni og seður allt sem lifir með
blessun. Sálmarnir 145:15-16
Nýr Sproti með viðarfótum - ýmsir litir í boði
STOFNAÐ 1956
Bæjarlind 8–10
201 Kópavogur
s: 510 7300
www.ag.is
Sproti 405
Hönnuður Erla Sólveig Óskarsdóttir