Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 64
64
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Bergljót Friðriksdóttir
beggo@mbl.is
„Starf veislustjóra er fjölbreytilegt
og nær yfir allan skalann – oft er
það stórskemmtilegt, en stundum
skelfilega erfitt og jafnvel leiðin-
legt,“ segir Jóhann G. Jóhannsson
leikari, en hann hefur áratuga
reynslu af veislustjórn og hefur í
gegnum tíðina stýrt mörgum eftir-
minnilegum veislum og viðburðum,
bæði fyrir fyrirtæki og smærri
hópa. „Það fer mikið eftir stemn-
ingunni í salnum hverju sinni
hvernig til tekst. Ef það gengur til
dæmis mikið á í fyrirtækinu, yfir-
maðurinn er leiðinlegur, uppsagnir
yfirvofandi eða stórar breytingar
framundan, þá er ekki ráðlegt að
halda árshátíð.
Ég hef lent í ýmsu þegar þannig
stendur á og sömuleiðis stýrt við-
burðum rétt fyrir kosningar, þá er
oft kurr í mannskapnum og léleg
stemning. En þegar kvöldið
heppnast vel; salurinn spilar með,
maturinn er góður og atriðin hitta
í mark þá getur þetta verið rosa-
lega skemmtilegt starf. Veislu-
stjórn er samt alltaf mjög krefj-
andi, ég er þrjá til fjóra daga að
setja saman efnið og undirbúa mig
og er yfirleitt alveg búinn á því í
einn til tvo daga á eftir.“
Grín í grunnskóla
Leikari og síðar veislustjóri –
þróuðust hlutirnir í þessari röð?
„Ég var í grunnskóla þegar ég
byrjaði bæði að leika og taka að
mér að kynna ýmsa viðburði og
með því bjó ég til skemmtiatriði.
Það vatt upp á sig í menntaskóla
og ég tók að mér skemmtanir af
ýmsu tagi. Svo færði ég mig yfir í
að stýra brúðkaups- og afmælis-
veislum, og loks veislum og árs-
hátíðum hjá fyrirtækjum og starfs-
mannafélögum. Ég fór svo í
leiklistarnám til Bandaríkjanna
strax að loknu stúdentsprófi.
Verkefnin hafa verið ótrúlega
fjölbreytt þar sem ég hef stýrt
veislum og uppákomum af ýmsum
tilefnum; afmælum, starfsmanna-
skemmtunum, íþróttasamkomum,
þorrablótum og verðlaunaafhend-
ingum, bæði hérlendis og erlendis,
á ensku og íslensku. Það er alltaf
gaman að vera veislustjóri í brúð-
kaupum, en ég lít þau reyndar öðr-
um augum og tek slík verkefni
bara að mér ef ég þekki brúð-
hjónin mjög vel, eða tengist þeim á
einhvern hátt. Brúðkaup eru svo
persónulegar veislur að mér finnst
að það verði að vera góð tenging á
milli brúðhjóna og veislustjóra.“
Leitað að snillum
Er starf leikarans og veislustjór-
ans nátengt?
„Auðvitað er þetta tengt að því
leyti að maður vinnur við það að
koma fram. En veislustjórn er
samt allt annað en leiklist, innan
þessa afþreyingarramma. Þó að
maður setji sig í ákveðinn karakt-
er er veislustjórastarfið mun líkara
starfi kennara, prests, stjórnmála-
manns eða þess sem stendur fyrir
framan fólk og flytur erindi.
Þú ert ekkert endilega góður
leikari þó að þú sért frábær veislu-
stjóri og að sama skapi eru góðir
leikarar ekki endilega góðir veislu-
stjórar. Í raun er veislustjórn mun
tengdari uppistandi en leiklist. Þó
að þú mætir vel undirbúinn til
veislu gengur starfið svo mikið út
á samspilið við salinn og því getur
allt gerst.“
Ertu vandlátur á verkefni?
„Ég passa mig núorðið að ofgera
ekki sjálfum mér og tek fyrst og
fremst að mér verkefni þar sem
mér sýnist stefna í skemmtilega
veislu. Það er auðvelt að brenna
hratt upp í slíku starfi, ef maður
vinnur of mikið. Fyrir 13 árum
færði ég út kvíarnar og stofnaði
fyrirtæki mitt Snilli, þar sem ég
býð veislustjórn, hljómsveitir,
plötusnúða og skemmtiatriði í
samstarfi við frábært fagfólk; leik-
ara, uppistandara og tónlistarfólk.
Ég hef sjálfur séð um skemmt-
anir og stýrt veislum hjá sömu að-
ilum ár eftir ár, en það er nauð-
synlegt fyrir fyrirtæki að breyta
stundum til og þá hjálpa ég mínum
kúnnum að finna rétta veislustjór-
ann og skemmtikraftana í gegnum
snilli.is.“
Besta stemningin
Vel heppnuð veisla – stendur
allt og fellur með veislustjóranum?
„Lykillinn að góðri veislu er
rétta stemningin, þar á eftir kem-
ur maturinn og loks er það veislu-
stjórinn og skemmtiatriðin, sem
þurfa að hitta í mark. Ef fólk kem-
ur illa stemmt til veislu, eða það
eru erfiðleikar í fjölskyldunni eða
fyrirtækinu, er erfitt að stýra sam-
komunni þannig að hún verði
skemmtileg. Þá skiptir ekki máli
hvernig maður stendur sig sem
veislustjóri.“
Hvað einkennir góðan veislu-
stjóra?
„Veislustjórinn þarf að vera létt-
ur og skemmtilegur, sveigjanlegur
en ákveðinn. Hann stýrir veislunni
og þarf að geta haldið prógramm-
inu gangandi, líka þegar hlutirnir
fara ekki alveg eins og ætlað var.
Góður veislustjóri þarf að búa yfir
skipulagshæfni, geta brugðist við
því óvænta og vera húmoristi.
Sjálfur nota ég söng, dans og húm-
or þegar ég er í hlutverki veislu-
stjórans, það er mjög góð blanda.“
Hringt á lögreglu
Hvernig undirbýrðu þig fyrir
veislu?
„Ég byrja á því að setjast niður
með veisluhaldara, finn út hvað
hann langar helst að gera og leið-
beini honum með skemmtilega út-
færslu á hugmyndinni. Hjá honum
fæ ég allar nauðsynlegar upplýs-
ingar, skrifa hjá mér punkta um
fyrirtækið og fólkið og byggi pró-
grammið á þeim. Svo er ég yfir-
leitt sjálfur með eitthvað uppi í
erminni, sem ég nota og aðlaga
dagskránni. Það er mjög mikil-
vægt fyrir veislustjóra að vera í
góðu sambandi við starfsfólkið í
eldhúsinu og passa að maturinn
komi inn á réttum tíma, því það
vill enginn kalda steik eða heitan
ís.
Viðburðir, hvort heldur er
árshátíðir, starfsmannafögnuðir
eða annað, eru jafnmisjafnir og
þeir eru margir. Þótt ég sé í starfi
veislustjóra get ég auðvitað ekki
haft stjórn á öllu og það hefur
reynst mér best að mæta hverju
verkefni með æðruleysi, leyfa hlut-
unum að flæða og láta mig fljóta
með. Aðalmálið í mínum huga er
að vera afslappaður og taka því
sem að höndum ber – maður veit
aldrei hvað gerist.“
Hefurðu oft þurft að bregðast
við óvæntum uppákomum?
„Ég hef lent í ýmsu óvæntu, en
minnisstæðust er án nokkurs vafa
veislan þegar kalla þurfti til
sjúkrabíl í þrígang og lögreglan
mætti jafnframt á staðinn. Fyrst
datt ung kona á dansgólfinu og
lenti á borðbrún og tveir sjúkrabíl-
ar birtust, eins og títt var um út-
köll þá.
Síðar um kvöldið hneig fullorð-
inn veislugestur niður og aftur
voru tveir sjúkrabílar mættir fyrir
utan. Loks kom til handalögmála
úti milli tveggja veislugesta, þar
sem annar skall með höfuðið í göt-
una, og áður en varði renndu tveir
sjúkrabílar og lögreglubíll upp að
húsinu. Þetta var allt mjög sér-
stakt, ekki síst vegna þess að gest-
irnir kröfðust þess að veislan héldi
áfram og fyrir mig var ekkert ann-
að að gera en hlýða.“
Allt getur
gerst
Jóhann G. Jóhannsson leikari bregður sér oft í hlut-
verk veislustjórans þar sem hann beitir húmornum
óspart, fléttar saman dans og söng, leggur sig fram
um að vera afslappaður og sveigjanlegur og er alltaf
viðbúinn hinu óvænta
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Röng tímasetning Jóhann G. Jóhannsson, leikari og veislustjóri: „Ef það gengur mikið á í fyrirtækinu, yfirmað-
urinn er leiðinlegur, uppsagnir yfirvofandi eða stórar breytingar framundan, þá er ekki ráðlegt að halda árshátíð.“
» Starfið er oft stór-skemmtilegt, en
stundum erfitt og jafn-
vel leiðinlegt
Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is
Heyrnarhlífar
í vinnuna
Hjá Dynjanda færðu heyrnarhlífar og samskipta-
búnað sem uppfyllir ströngustu kröfur.
Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð.