Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 83
MENNING 83
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Íþessu safni eru sex ljóðabæk-ur Vilborgar, hin fyrsta komút 1960, sú síðasta hálfri öldsíðar, 2010. Í safninu eru
einnig ljóð sem birtust í blöðum og
tímaritum og kvæði utan ljóðabóka
og loks þýdd ljóð; fyrstu ljóðin birti
hún í tímariti 1954. Athugasemdir og
skýringar eru í einni opnu og í bók-
arlok er efnisyfirlit, röð ljóðanna í
safninu. Öll eru ljóðin í frjálsu formi
nema tönkur og hækur að jap-
önskum hætti.
Ljóðmál Vilborgar er fjölbreytt og
markvisst, hún bregður upp bráð-
snjöllum myndum, beitir endurtekn-
ingum og andstæðum af mikilli hind
og lifandi nátt-
úran er sjaldan
fjarri; setn-
ingaskipan að
jafnaði skýr;
„fíngerðan rósa-
vef/ óf á rúðuna/
frostið“. Það er
þekkilegur
heildarsvipur á
þessari bók, Vil-
borg hefur verið
sjálfri sér sam-
kvæm frá fyrstu tíð. Hún vísar í
ýmsar bókmenntir, ekki síst Biblí-
una, og víst þurfa lesendur að kunna
nokkur skil á þeirri bók til þess að
lesa milli lína, hér eru ljóð sem vaxin
eru úr fornsögum, frá Ibsen, úr
goðafræði, bæði norrænni og klass-
ískri o.fl. Hún berst með stormum
tíðarandans, þeim sem strjúka henni
um vanga; róttækni, feminismi, and-
úð á stríði, þýðingar hennar eru
gjarnan af þessum meiði og bera
höfundareinkenni hennar. Hún hef-
ur tjáð skoðanir sínar og greint
býsna skorinort frá háttum sínum í
ævisögu, Úr þagnarhyl, sem Þorleif-
ur Hauksson skráði, og í ljómandi
bók eftir Kristínu Marju Baldurs-
dóttur sem heitir Mynd af konu.
Hún segir frá því að ljóð sín orti hún
öll samhliða fullri vinnu, bæði sem
kennari í fullu starfi í hartnær hálfa
öld og húsmóðir með gömlu lagi; hún
ætlaðist ekki til að hann Þorgeir
kæmi að heimilisverkum. Baráttu-
ljóð hennar fyrir hönd kvenna eru
ort fyrir næstu kynslóð. En um hvað
yrkir Vilborg?
„Enginn slítur þau bönd,/ sem
hann er bundinn heimahögum sín-
um“. Þannig yrkir Jón úr Vör og
þessi orð hæfa einkar vel ferli Vil-
borgar. Hún varð fyrir sárri reynslu
í æsku í bland við gleðistundir,
djúpri sorg vegna dauða systkina
sinna og höfnunar. Áhyggjuleysi
bernskunnar sigldi að miklu leyti
framhjá henni. Hún ólst upp í þorpi
undir háum fjöllum, sumarbjört
náttúra allt umhverfis, en vetrarógn
stafaði af fjöllum og sjó. Tónninn í
ljóðum sem að þessu lúta er hljóður
og tempraður. Sorg er í senn gott
dæmi um hófstillta framsögn ljóð-
mælanda og skarpa beitingu þver-
stæðna: „Þegar þjáningin ristir
brjóst mitt/ verður mér fyrst ljóst
hve stór/ gleði mín gæti verið./ Milli
hennar og mín/ er hið stutta/ ómæl-
isdjúp.“ Vilborg hefur sagt frá því að
lengi hafi hún byrgt inni sorgina, en
hún leiðir hana einkar fallega fyrir
sjónir lesenda í Ljóði: „Sorg mín er
bláklædd stúlka./ Bak við marglitan
glaum daganna/ bíður hún þögul/ og
baldýrar silfurrósir/ í svart flauel/
næturinnar// Fyrir löngu hefði ég
átt/ að gefa henni rauðan kjól/ og
leiða hana út/ í sólskinið.“ Engum er
hollt að byrgja inni sorg sína.
Ljóðin úr uppvextinum tengjast
líka leikjum, þar eru dregnar upp
myndir af foreldrum, ömmu, lífinu í
litlu þorpi í öllum sínum myndum,
stundum með saknaðarfullum blæ,
gróðrinum og alls konar veðri; fá-
tæktin jafnan í sjónmáli, vasarnir
voru ekki djúpir hjá þeim sem stund-
uðu sjálfsþurftarbúskap. Léttleiki
og kímni einkenna sum ljóðin (Mar-
íuljóð, Nú haustar að, Lóusöngur).
Guð er jafnan nálægur, ekki síst í
biblíutengdu ljóðunum. En Jave er
harður guð, miskunnarlaus, boðorð
hans voru ekki samin handa konum,
heldur húsbændum. Annar guð er
henni nær og birtist í ljóði sem heitir
Guð. Það hefst á þessum línum: „Al-
staðar finn ég þig/ yndisleg návist
þín/ umvefur mig// sem ljúfur sum-
arvindur.“ Og ljóðinu lýkur á þessu
erindi: „En dýrð þín er/ Drottinn/
uppi yfir mér/ og allt um kring.“ Hún
segir með kankvísi í ævisögu sinni að
hún hafi aldrei gert uppreisn gegn
foreldrum sínum, „en ég gat látið
eins og óþekkur krakki við Guð“.
Í safninu eru pólitísk ádeiluljóð og
tækifæriskvæði, deilt er á stríð (Og
enn sem fyrr, Kyndilmessa), „ann-
arlegir spilamenn“ ráðskast með „líf
mitt“, Heimsstjórnarmenn fá litlu
áorkað nema fyrir sjálfa sig, sjálf-
stæði landsins er fyrir borð borið,
selt. Hér er tónninn einatt býsna
stríður. Þessi pólitísku ljóð eru bein-
línis barn síns tíma, háskinn er því sá
að þau eldist illa. Þau fjalla að
nokkru leyti um ákveðna viðburði og
ljóðmælandi dregur af þeim sínar
ályktanir. Sumpart missa þessi ljóð
marks núna af því margir lesendur
kannast ekki við gerendurna eða at-
burðina (6 daga stríðið, Moshe Day-
an, jafnvel ekki þá kumpána Lenín
og Stalín; Biafra löngu gleymt, Víet-
nam undir fönn gleymskunnar).
Tíminn hefur að sumu leyti læst
kuldatönnum sínum í þessi kvæði
þótt ádeilan sé enn tímabær. Fem-
inísku brýningarljóðin standa þó
fyrir sínu, þau eru hárbeitt og ríma
vel við samtímann; Óðinn er enn á
ferðinni. Afmæliskveðja til Þ.Þ.,
Haustkveðja til Jóhannesar úr Kötl-
um, Veturinn, í minningu Snorra
Hjartarsonar, eru dæmi um tæki-
færisljóð og hnippa þó ögn í lesanda;
það er dapurlegur tónn í Haust-
kveðjunni. Ljóðið um Fjallkonuna er
hins vegar prýðilegt tækifærisljóð
og hefur ekkert látið á sjá, það mun
lifa tímana tvenna. Í Síðdegi, síðustu
ljóðabók Vilborgar, lýkur ljóðinu
Viðhorf á þessu erindi: „Á hverju
kvöldi/ hvísla ég glöð/ út í myrkrið:/
Enn hefur líf mitt/ lengst um heilan
dag.“ Sá sem svona yrkir er sáttur.
Ljóðunnendur geta glaðst yfir
þessari bók. Hún fyllir hugann ró, en
vekur jafnframt áleitnar spurningar.
Á henni er hugþekkur blær sem les-
andi skynjar og samsamar sig við;
„snjófargið á þekjunni“ lætur alltaf
undan um síðir fyrir vori, sumri og
sól – þótt jökullinn bráðni seint. Inn-
gangur Þorleifs er góður lykill að
lestri bókarinnar. Heimanbúnaður
hennar af hálfu forlagsins er öllum
til sóma.
Morgunblaðið/Kristinn
Skáldið „Ljóðunnendur geta glaðst yfir þessari bók. Hún fyllir hugann ró,
en vekur jafnframt áleitnar spurningar,“ skrifar rýnir um safn Vilborgar.
Harpan er mín hugarbót
Ljóð
Ljóðasafn bbbbn
Eftir Vilborgu Dagbjartsdóttur.
Þorleifur Hauksson ritar inngang.
JPV útgáfa 2015. Innbundin, 288 bls.
SÖLVI
SVEINSSON
BÆKUR
Tveir fyrir-
lestrar í fyrir-
lestraröð Mið-
aldastofu
Háskóla Íslands
um Sturlungaöld
verða haldnir í
dag kl. 16.30 í
Öskju, stofu 132,
og báðir helg-
aðir Guðmundi
biskupi Arasyni. Hjalti Hugason,
prófessor í kirkjusögu við Háskóla
Íslands, flytur erindi sem hann
nefnir „Guðmundur Arason –
áhrifavaldur í aðdraganda Sturl-
ungaaldar“ og Árni Hjartarson
jarðfræðingur flytur erindi um
brunna Guðmundar biskups Ara-
sonar.
Tveir fyrirlestrar
um Sturlungaöld
Hjalti Hugason
Billy Elliot –★★★★★ , S.J. Fbl.
Billy Elliot (Stóra sviðið)
Fim 12/11 kl. 19:00 Sun 22/11 kl. 19:00 Fös 4/12 kl. 19:00
Fös 13/11 kl. 19:00 Fös 27/11 kl. 19:00 Fös 11/12 kl. 19:00
Fös 20/11 kl. 19:00 Lau 28/11 kl. 19:00 Lau 12/12 kl. 19:00
Lau 21/11 kl. 19:00 Fim 3/12 kl. 19:00 Lau 26/12 kl. 19:00
Fjölskyldusýning í hæsta gæðaflokki - ósóttar pantanir seldar daglega
Kenneth Máni (Litla sviðið)
Fim 12/11 kl. 20:00 aukas. Fös 20/11 kl. 20:00 10.k Fös 11/12 kl. 20:00
Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Lau 5/12 kl. 20:00 Fös 18/12 kl. 20:00
Kenneth Máni stelur senunni
Lína langsokkur (Stóra sviðið)
Sun 15/11 kl. 13:00 Sun 29/11 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 13:00
Sun 22/11 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 13:00 Sun 27/12 kl. 13:00
Sterkasta stelpa í heimi kemur aftur
Öldin okkar (Nýja sviðið)
Fim 12/11 kl. 20:00 8.k. Lau 14/11 kl. 20:00 Lau 21/11 kl. 20:00
Fös 13/11 kl. 20:00 9.k Fös 20/11 kl. 20:00
Sýningum fer fækkandi
Sókrates (Litla sviðið)
Lau 14/11 kl. 20:00 13.k Mið 25/11 kl. 20:00 Lau 12/12 kl. 20:00
Lau 21/11 kl. 20:00 14.k Lau 28/11 kl. 20:00 Sun 13/12 kl. 20:00
Sun 22/11 kl. 20:00 15.k Fös 4/12 kl. 20:00 Lau 19/12 kl. 20:00
Trúðarnir hafa tekið yfir dauðadeildina
Vegbúar (Litla sviðið)
Sun 15/11 kl. 20:00 13.k Fös 27/11 kl. 20:00 17.k Sun 6/12 kl. 20:00
Mið 18/11 kl. 20:00 14.k Sun 29/11 kl. 20:00 aukas. Fim 10/12 kl. 20:00
Fim 19/11 kl. 20:00 15.k Mið 2/12 kl. 20:00
Fim 26/11 kl. 20:00 16.k Fim 3/12 kl. 20:00
Nýtt verk þar sem KK sýnir á sér óvænta hlið
Mávurinn (Stóra sviðið)
Lau 14/11 kl. 20:00 9.k Sun 29/11 kl. 20:00 Sun 13/12 kl. 20:00
Fim 19/11 kl. 20:00 Sun 6/12 kl. 20:00
Fim 26/11 kl. 20:00 Fim 10/12 kl. 20:00
Takmarkaður sýningartími
Hystory (Litla sviðið)
Þri 24/11 kl. 20:00 allra
síðasta sýn.
Allra síðustu sýningar!
Og himinninn kristallast (Stóra sviðið)
Sun 15/11 kl. 20:00 Mið 2/12 kl. 20:00 Lau 5/12 kl. 20:00
Inniflugeldasýning frá Dansflokknum
TJARNARGÖTU 12, 101 REYKJAVÍK SÍMI 527 2100 TJARNARBIO.IS
.. — —
Nazanin (Salur)
Mið 18/11 kl. 20:30
Lokaæfing (Salur)
Fös 13/11 kl. 20:30
Lífið (Salur)
Sun 15/11 kl. 13:00 Lau 21/11 kl. 13:00
KATE (Salur)
Fim 26/11 kl. 20:00 Fim 3/12 kl. 20:00 Lau 5/12 kl. 20:00
Fös 27/11 kl. 20:00 Fös 4/12 kl. 20:00 Sun 6/12 kl. 20:00
Þroskastríðið - Hugleikur Dagsson UPPISTAND (Salur)
Fim 12/11 kl. 21:00 Lau 14/11 kl. 20:00 Lau 14/11 kl. 22:00
Ævintýrið um Augastein (Salur)
Sun 29/11 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 13:00
Sun 6/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 13:00
65 20151950
5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is
Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið)
Fim 12/11 kl. 19:30 23.sýn Lau 28/11 kl. 19:30 29.sýn Mið 30/12 kl. 19:30 38.sýn
Fös 13/11 kl. 19:30 24.sýn Sun 29/11 kl. 19:30 30.sýn Lau 2/1 kl. 15:00 39.sýn
Lau 14/11 kl. 15:00 Aukas. Lau 5/12 kl. 19:30 31.sýn Lau 2/1 kl. 19:30 40.sýn
Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Sun 6/12 kl. 19:30 32.sýn Sun 10/1 kl. 19:30 41.sýn
Lau 21/11 kl. 19:30 27.sýn Fös 11/12 kl. 19:30 35.sýn Fim 14/1 kl. 19:30 42.sýn
Sun 22/11 kl. 19:30 28.sýn Lau 12/12 kl. 19:30 36.sýn
Fim 26/11 kl. 19:30 Aukas. Mið 30/12 kl. 15:00 37.sýn
Eldfjörug fjölskyldusýning, uppfull af leikhústöfrum í anda Vesturports!
Móðurharðindin (Kassinn)
Lau 14/11 kl. 19:30 26.sýn Fös 20/11 kl. 19:30 30.sýn Lau 5/12 kl. 19:30 32.sýn
Sun 15/11 kl. 19:30 27.sýn Lau 28/11 kl. 19:30 31.sýn
Gamanleikur um samskipti móður og barna og harkaleg átök kynslóðanna.
Yfir til þín - Spaugstofan 2015 (Stóra sviðið)
Fim 19/11 kl. 19:30 6.sýn Mið 25/11 kl. 19:30 8.sýn Mið 9/12 kl. 19:30 10.sýn
Lau 21/11 kl. 22:30 7.sýn Mið 2/12 kl. 19:30 9.sýn Fim 10/12 kl. 19:30 11.sýn
Sprellfjörug gleðisýning fyrir alla fjölskylduna!
Heimkoman (Stóra sviðið)
Sun 15/11 kl. 19:30 9.sýn Fös 27/11 kl. 19:30 11.sýn Sun 13/12 kl. 19:30 13.sýn
Fös 20/11 kl. 19:30 10.sýn Fös 4/12 kl. 19:30 12.sýn
Meistaraverk Nóbelsskáldsins Pinters.
Leitin að jólunum (Þjóðleikhúsið)
Lau 28/11 kl. 13:00 Sun 6/12 kl. 13:00 Lau 19/12 kl. 11:00
Lau 28/11 kl. 14:30 Sun 6/12 kl. 14:30 Lau 19/12 kl. 13:00
Sun 29/11 kl. 13:00 Lau 12/12 kl. 11:00 Lau 19/12 kl. 14:30
Sun 29/11 kl. 14:30 Lau 12/12 kl. 13:00 Sun 20/12 kl. 11:00
Lau 5/12 kl. 11:00 Lau 12/12 kl. 14:30 Sun 20/12 kl. 13:00
Lau 5/12 kl. 13:00 Sun 13/12 kl. 11:00 Sun 20/12 kl. 14:30
Lau 5/12 kl. 14:30 Sun 13/12 kl. 13:00
Sun 6/12 kl. 11:00 Sun 13/12 kl. 14:30
Sívinsælt aðventuævintýri Þjóðleikhússins komið í sölu 11 leikárið í röð.
(90)210 Garðabær (Kassinn)
Fim 12/11 kl. 19:30 5.sýn Lau 21/11 kl. 19:30 aukasýn Mið 25/11 kl. 19:30 9.sýn
Fös 13/11 kl. 19:30 6.sýn Sun 22/11 kl. 19:30 7.sýn
4:48 PSYCHOSIS (Kúlan)
Lau 28/11 kl. 17:00 9.sýn Sun 29/11 kl. 17:00 10.sýn
Klókur ertu, Einar Áskell (Brúðuloftið)
Sun 15/11 kl. 14:00 Sun 15/11 kl. 16:00
Hinn uppátækjasami Einar Áskell í fallegri og skemmtilegri brúðusýningu
DAVID FARR
HARÐINDIN