Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Búist er við að fjótlega verði dælur á
Ægisgarði ræstar og hafist verði
handa á nýjan leik við að reyna að ná
Perlunni upp úr sjónum. Dimma
haustdaga fyrir
29 árum stóðu
menn í sömu spor-
um á sömu
bryggju, aðeins
nokkrum tugum
metra vestar.
Tveimur bátum
Hvals hf. hafði
verið sökkt 9. nóv-
ember og lýstu
samtökin Sea
Shepherd ábyrgðinni á hendur sér.
Kristbjörn Þórarinsson og hans
menn hjá Köfunarstöðinni tóku að
sér að koma bátunum á flot og tókst
það á rúmri viku í nóvember 1986.
Kraftmiklar dælurnar
þurftu sérstaka rafstöð
„Þetta var verkefni sem varð að
leysa,“ rifjar Kristján Loftsson, fram-
kvæmdastjóri Hvals hf., upp. „Krist-
björn kafari og hans menn voru
hörkukarlar, sem og okkar menn og
fleiri sem komu að þessu.
Lykillinn að því að þetta tókst voru
öflugar dælur sem Kristbjörn fékk
frá Landsvirkjun. Hann hafði unnið
mikið fyrir hana á hálendinu og víðar
og vissi af dælunum. Þær voru svo
kraftmiklar að það þurfti að setja upp
sérstaka rafstöð á bryggjunni því
kaplarnir sem þar voru fyrir þoldu
ekki álagið. Þetta var mikil aðgerð, en
þeim tókst þetta körlunum.“
Talsverður viðbúnaður var við að
ná skipunum upp og meðal annars
var prammi með stórum krana flutt-
ur að Ægisgarði.
Kristján segir að Hvalur hf. hafi
verið tryggður hjá norsku trygginga-
félagi, Hvalfangerenes Assurancefor-
ening í Sandefjord, en Norðmenn
ráku öflugan hvalveiðiflota langt
fram eftir síðustu öld. Í trygginga-
skilmálum var klausa um tryggingu
gegn skemmdarverkum.
Tryggingafélagið fékk sérfræðinga
frá Englandi til að meta aðstæður.
Verkið var síðan boðið út og Krist-
björn og Köfunarstöðin buðu lægst í
verkið. Fram kemur í Morgunblaðinu
13. nóvember 1986 að Köfunarstöðin
hafi boðið 1,1 milljón í verkið á gengi
þess tíma.
„Fyrst var botnlokum lokað og síð-
an fóru kafarar í að þétta skipin; sett
var fyrir brotin kýraugu, hurðir hert-
ar og loftgötum lokað,“ segir Krist-
ján. „Brúin á hvalbátunum stóð að
mestu upp úr, ólíkt því sem er með
Perluna, sem er á meira dýpi. Það var
reyndar nýbúið að dýpka við Ægis-
garðinn, en dýpkunarskipið hafði
ekki komist að þar sem bátarnir lágu.
Byrjað var að dæla á stórstraums-
fjöru, minnir mig, en það var sama
hvað þeir dældu úr skipunum það lak
alltaf inn í þau að framan. Þá kom í ljós
að láðst hafði að þétta loftrör sem lágu
í svokallaða snellukjallara frammi í
skipunum. Þegar þessu hafði verið
lokað tókst að ná þeim upp.“
Gufuvélarnar stóðu fyrir sínu
Skipin voru löðrandi í olíu að innan
og utan þegar þau náðust upp aðfara-
nótt 18. nóvember og var þegar farið í
að hreinsa og þurrka upp vélarrúm,
lestar og annars staðar neðan þilja.
Rafleiðslur, innréttingar og ýmis
tæki voru ónýt. Gamlar gufuvélar
stóðu hins vegar fyrir sínu, en skipin
voru smíðuð í Englandi 1945 og 46.
Skömmu eftir að skipin náðust upp
tókst að gangsetja vélarnar.
„Um leið og skipin komu upp var
farið í að kynda katlana og ræsa gufu-
vélarnar,“ segir Kristján. „Það tók
ekki langan tíma að ná upp dampi og
fá vélarnar í gang. Það skipti öllu máli
að gera þetta sem fyrst til að koma í
veg fyrir að vélarnar ryðguðu og síð-
an var þetta allt opnað, þurrkað og
smurt inn aftur.
Tryggingarnar borguðu þennan
brúsa við að ná skipunum upp. Þær
hefðu líka greitt fyrir að gera upp
íbúðir, endurnýja rafmagn og tæki og
annað sem skemmdist. Við höfum
hins vegar ekki þurft á skipunum að
halda og því var samið um greiðslu á
ákveðinni upphæð upp í þennan
kostnað.“
Hvalur 8 og 9 höfðu verið að veið-
um um sumarið. Þegar kom fram í
nóvember var annar þeirra í slipp, en
hinn lá við Ægisgarð, þar sem Perlan
situr núna. Hvalur 6 og 7 voru eldri
skip og höfðu ekki verið notaðir sum-
arið 1986 og hafa reyndar ekki farið
til hvalveiða síðan.
Í Hvalfirði síðustu árin
„Hvalur 6 og 7, voru fluttir upp í
Hvalfjörð seinni partinn í ágúst 2011
og liggja skammt frá Hvalstöðinni.
Þarna var stutt niður á klöpp og eftir
smávegis lagfæringar fengum við
Magna til að draga bátana uppeftir á
stórstraumsflóði. Þar var þeim lagt
og um 100 tonnum af vatni dælt í
hvorn bát. Þeir eru tengdir við hita-
veitu og rafmagn og standa þarna
stöðugir á klöppinni,“ segir Kristján
Loftsson.
Þegar hvalbátarnir voru fluttir í
Hvalfjörð höfðu þeir legið við Ægis-
garð í um aldarfjórðung.
Verkefni sem varð að leysa
Rúma viku tók að ná tveimur hvalbátum á flot eftir að þeim hafði verið sökkt Menn í svipuðum
sporum á Ægisgarði nú og fyrir 29 árum Hörkukarlar sem komu að þessu, segir Kristján Loftsson
Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon
Við Ægisgarð í nóvember 1986 Hvalur 6 og 7 mara í hálfu kafi eftir að þeim hafði verið sökkt við bryggjuna. Fyrir aftan má m.a. sjá Grindvíking GK.
Morgunblaðið/Eggert
Í Hvalfirði Elstu hvalbátunum var lagt skammt frá Hvalstöðinni fyrir fjór-
um árum. Þar eru þeir tryggilega festir og tengdir rafmagni og hitaveitu.
Kristján Loftsson
Hvalbátunum var sökkt aðfaranótt sunnudagsins 9. nóvember 1986 og
voru botnlokar beggja skipanna opnaðir. Talið var að tveir menn sem
tengdust Sea Shepherd, David Howitt og Rod Coronado, hefðu unnið
skemmdarverkin, en þeir komust úr landi að morgni sunnudagsins.
Paul Watson, talsmaður samtakanna, sagði að gripið hefði verið til
þessara aðgerða vegna þess að Íslendingar hefðu brotið samþykktir Al-
þjóða hvalveiðiráðsins. Sömu helgi unnu samtökin mikið tjón á búnaði í
Hvalstöðinni í Hvalfirði.
Einnig skemmdir í Hvalstöðinni
ÞEIR SEM SÖKKTU HVALBÁTUNUM KOMUST AF LANDI BROTT
www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olísog er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf.
Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins
Öflug fjáröflun
fyrir hópinn
Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi
í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.