Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015 BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Búist er við að fjótlega verði dælur á Ægisgarði ræstar og hafist verði handa á nýjan leik við að reyna að ná Perlunni upp úr sjónum. Dimma haustdaga fyrir 29 árum stóðu menn í sömu spor- um á sömu bryggju, aðeins nokkrum tugum metra vestar. Tveimur bátum Hvals hf. hafði verið sökkt 9. nóv- ember og lýstu samtökin Sea Shepherd ábyrgðinni á hendur sér. Kristbjörn Þórarinsson og hans menn hjá Köfunarstöðinni tóku að sér að koma bátunum á flot og tókst það á rúmri viku í nóvember 1986. Kraftmiklar dælurnar þurftu sérstaka rafstöð „Þetta var verkefni sem varð að leysa,“ rifjar Kristján Loftsson, fram- kvæmdastjóri Hvals hf., upp. „Krist- björn kafari og hans menn voru hörkukarlar, sem og okkar menn og fleiri sem komu að þessu. Lykillinn að því að þetta tókst voru öflugar dælur sem Kristbjörn fékk frá Landsvirkjun. Hann hafði unnið mikið fyrir hana á hálendinu og víðar og vissi af dælunum. Þær voru svo kraftmiklar að það þurfti að setja upp sérstaka rafstöð á bryggjunni því kaplarnir sem þar voru fyrir þoldu ekki álagið. Þetta var mikil aðgerð, en þeim tókst þetta körlunum.“ Talsverður viðbúnaður var við að ná skipunum upp og meðal annars var prammi með stórum krana flutt- ur að Ægisgarði. Kristján segir að Hvalur hf. hafi verið tryggður hjá norsku trygginga- félagi, Hvalfangerenes Assurancefor- ening í Sandefjord, en Norðmenn ráku öflugan hvalveiðiflota langt fram eftir síðustu öld. Í trygginga- skilmálum var klausa um tryggingu gegn skemmdarverkum. Tryggingafélagið fékk sérfræðinga frá Englandi til að meta aðstæður. Verkið var síðan boðið út og Krist- björn og Köfunarstöðin buðu lægst í verkið. Fram kemur í Morgunblaðinu 13. nóvember 1986 að Köfunarstöðin hafi boðið 1,1 milljón í verkið á gengi þess tíma. „Fyrst var botnlokum lokað og síð- an fóru kafarar í að þétta skipin; sett var fyrir brotin kýraugu, hurðir hert- ar og loftgötum lokað,“ segir Krist- ján. „Brúin á hvalbátunum stóð að mestu upp úr, ólíkt því sem er með Perluna, sem er á meira dýpi. Það var reyndar nýbúið að dýpka við Ægis- garðinn, en dýpkunarskipið hafði ekki komist að þar sem bátarnir lágu. Byrjað var að dæla á stórstraums- fjöru, minnir mig, en það var sama hvað þeir dældu úr skipunum það lak alltaf inn í þau að framan. Þá kom í ljós að láðst hafði að þétta loftrör sem lágu í svokallaða snellukjallara frammi í skipunum. Þegar þessu hafði verið lokað tókst að ná þeim upp.“ Gufuvélarnar stóðu fyrir sínu Skipin voru löðrandi í olíu að innan og utan þegar þau náðust upp aðfara- nótt 18. nóvember og var þegar farið í að hreinsa og þurrka upp vélarrúm, lestar og annars staðar neðan þilja. Rafleiðslur, innréttingar og ýmis tæki voru ónýt. Gamlar gufuvélar stóðu hins vegar fyrir sínu, en skipin voru smíðuð í Englandi 1945 og 46. Skömmu eftir að skipin náðust upp tókst að gangsetja vélarnar. „Um leið og skipin komu upp var farið í að kynda katlana og ræsa gufu- vélarnar,“ segir Kristján. „Það tók ekki langan tíma að ná upp dampi og fá vélarnar í gang. Það skipti öllu máli að gera þetta sem fyrst til að koma í veg fyrir að vélarnar ryðguðu og síð- an var þetta allt opnað, þurrkað og smurt inn aftur. Tryggingarnar borguðu þennan brúsa við að ná skipunum upp. Þær hefðu líka greitt fyrir að gera upp íbúðir, endurnýja rafmagn og tæki og annað sem skemmdist. Við höfum hins vegar ekki þurft á skipunum að halda og því var samið um greiðslu á ákveðinni upphæð upp í þennan kostnað.“ Hvalur 8 og 9 höfðu verið að veið- um um sumarið. Þegar kom fram í nóvember var annar þeirra í slipp, en hinn lá við Ægisgarð, þar sem Perlan situr núna. Hvalur 6 og 7 voru eldri skip og höfðu ekki verið notaðir sum- arið 1986 og hafa reyndar ekki farið til hvalveiða síðan. Í Hvalfirði síðustu árin „Hvalur 6 og 7, voru fluttir upp í Hvalfjörð seinni partinn í ágúst 2011 og liggja skammt frá Hvalstöðinni. Þarna var stutt niður á klöpp og eftir smávegis lagfæringar fengum við Magna til að draga bátana uppeftir á stórstraumsflóði. Þar var þeim lagt og um 100 tonnum af vatni dælt í hvorn bát. Þeir eru tengdir við hita- veitu og rafmagn og standa þarna stöðugir á klöppinni,“ segir Kristján Loftsson. Þegar hvalbátarnir voru fluttir í Hvalfjörð höfðu þeir legið við Ægis- garð í um aldarfjórðung. Verkefni sem varð að leysa  Rúma viku tók að ná tveimur hvalbátum á flot eftir að þeim hafði verið sökkt  Menn í svipuðum sporum á Ægisgarði nú og fyrir 29 árum  Hörkukarlar sem komu að þessu, segir Kristján Loftsson Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Við Ægisgarð í nóvember 1986 Hvalur 6 og 7 mara í hálfu kafi eftir að þeim hafði verið sökkt við bryggjuna. Fyrir aftan má m.a. sjá Grindvíking GK. Morgunblaðið/Eggert Í Hvalfirði Elstu hvalbátunum var lagt skammt frá Hvalstöðinni fyrir fjór- um árum. Þar eru þeir tryggilega festir og tengdir rafmagni og hitaveitu. Kristján Loftsson Hvalbátunum var sökkt aðfaranótt sunnudagsins 9. nóvember 1986 og voru botnlokar beggja skipanna opnaðir. Talið var að tveir menn sem tengdust Sea Shepherd, David Howitt og Rod Coronado, hefðu unnið skemmdarverkin, en þeir komust úr landi að morgni sunnudagsins. Paul Watson, talsmaður samtakanna, sagði að gripið hefði verið til þessara aðgerða vegna þess að Íslendingar hefðu brotið samþykktir Al- þjóða hvalveiðiráðsins. Sömu helgi unnu samtökin mikið tjón á búnaði í Hvalstöðinni í Hvalfirði. Einnig skemmdir í Hvalstöðinni ÞEIR SEM SÖKKTU HVALBÁTUNUM KOMUST AF LANDI BROTT www.rekstrarland.is Mörkinni 4 | 108 Reykjavík | Sími 515 1100Rekstrarland er byggt á fyrrum rekstrarvörudeild Olísog er dótturfyrirtæki Olíuverzlunar Íslands hf. Samsettir fjáröflunarpakkar eða sérsniðnir eftir óskum hópsins Öflug fjáröflun fyrir hópinn Hafðu samband við sérfræðinga okkar í Rekstrarlandi í síma 515 1100 eða næsta útibú Olís og leitið tilboða.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.