Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 77
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Atvinnuauglýsingar
Staða sérfræðings
í verkefni vegna vatnastjórnunar
er laus til umsóknar
Veiðimálastofnun auglýsir eftir sérfræðingi í
verkefni er lúta að áhrifum virkjana á vatna-
líf og vegna vatnastjórnunar. Starfið felst í
vinnslu og framsetningu gagna um lífríki
vatna. Um tímabundið verkefni er að ræða
sem stendur í 1 ár. Möguleiki er á framhalds-
vinnu. Um fullt starf er að ræða og tilheyrir
staðan umhverfissviði stofnunarinnar.
Umsækjendur þurfa að hafa lokið háskóla-
prófi á framhaldsstigi á fagsviðum Veiði-
málastofnunar eða öðru námi sem nýtist í
starfinu. Starfið krefst mikillar vinnu með
öðrum sérfræðingum innan og utan stofn-
unarinnar. Æskilegt er að umsækjendur hafi
reynslu af rannsóknum og þróunarstarfi,
verkefnastjórn og vinnu með gagnagrunna.
Umsækjendur þurfa að búa yfir góðri færni í
mannlegum samskiptum og sjálfstæðum
vinnubrögðum. Æskilegt er að umsækjandi
geti hafið störf sem fyrst. Ekki eru notuð
sérstök umsóknareyðublöð. Umsókn ásamt
ítarlegri ferilskrá berist í síðasta lagi 23. nóv-
ember til Veiðimálastofnunar, Árleyni 22, 112
Reykjavík eða á netfangið sg@veidimal.is
Laun samkvæmt kjarasamningi ríkisins og
viðkomandi stéttafélags.
Nánari upplýsingar veitir Sigurður Guðjóns-
son (sími 5806310) forstjóri Veiðimálastofn-
unar sg@veidimal.is Öllum umsóknum
verður svarað.
Veiðimálastofnun er rannsókna- og ráðgjafar-
stofnun á sviði veiðinýtingar og vatnalíffræði.
Stofnunin er með 4 starfstöðvar og þar starfa
um 20 manns.
!"#$ $ %&' %!"!('!$
)
*+*
*
, -*
.
/* *
*
01
2 * 3
-
0
* **1 4*
*0
*5
60 1
Raðauglýsingar 569 1100
Fundir/Mannfagnaðir
Hollvinasamtök líknar-
þjónustu
Aðalfundur Hollvinasamtaka líknarþjónustu
verður haldinn í Safnaðarheimili Neskirkju
fimmtudaginn 12. nóvember 2015 og hefst
hann klukkan 20:00.
Dagskrá:
Ásdís Þórbjarnardóttir, hjúkrunar- og
lýðheilsufræðingur heldur erindi:
„Líknarþjónusta á Íslandi í alþjóðlegu ljósi.“
Að því loknu og kaffihléi hefjast venjuleg
aðalfundarstörf:
1. Skýrsla stjórnar og reikningar liðins
starfsárs.
2. Umræður um skýrslu og reikninga.
3. Lagabreytingar.
4. Kosning stjórnar fyrir komandi starfsár.
5. Kosning tveggja skoðunarmanna.
6. Önnur mál.
Stjórnin.
Til sölu
Sænsk raðhús úr timbureiningum
KomBo raðhúsin frá Mjöbäcks er
hagkvæmur og góður kostur,
hvort sem um er að ræða leiguíbúðir eða
eignaríbúðir. Stærðir eru 63, 71 og 83 m2.
Áhugasamir sendi póst á netfangið
sigurdur@talnet.is til að fá frekari
upplýsingar.
Jabohús | símar 581 4070 og 699 6303 | jabohus.is
Sveitarfélög - Verktakar
Veiði
Til leigu
Flókadalsá í Fljótum, efra svæði
Tilboð óskast í leigu á vatnasvæði veiði-
félagsins Flóka í Fljótum í Skagafirði veiði-
tímabilin 2016-2019.
Um er að ræða Flókadalsá, framan Flóka-
dalsvatns. Áin er bleikjuá, leyfilegt agn er
fluga og maðkur. Veiðitími er frá 15. júní til
15 september ár hvert. Leyfðar eru þrjár
stangir á dag og er heimilt að veiða 15 fiska
á hverja stöng á dag.
Óskað er eftir tilboði til fjögurra ára.
Nánari upplýsingar gefa stjórnarmenn í
veiðifélaginu:
Ólafur Jónsson, sími 892-0852
Sverrir Júlíusson, sími 848-2244
Tilboð, merkt „tilboð í veiði hjá Flóka“
sendist á Ólaf Jónsson, Fossvegi 14,
580 Siglufirði fyrir 20. desember 2015.
Einnig er hægt að senda tilboð á netfangið:
olafurjons71@gmail.com.
Áskilinn er réttur til að taka hvaða tilboði
sem er eða hafna öllum
Stjórn veiðifélagsins Flóka.
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl .9, gönguhópur II kl. 10.15 og
vatnsleikfimi í Vesturbæjarlaug kl. 10.50. Myndlist og prjónakaffi kl. 13
og Bókmenntaklúbbur kl. 13.15. Jóga kl. 17, skráning hjá Signýju,
í síma 894 0383
Árskógar 4 Smíðar og útskurður með leiðbeinanda kl. 9-16. Handa-
vinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Botsía með Sigríði kl. 9.30-10.30.
Helgistund á vegum Seljakirkju. kl. 10.30-11.00. Söngstund með
Mæju. kl. 14-15 í dag. MS fræðslu-og félagstarf kl. 14-16.
Boðinn Handavinna kl. 9-12 (Bjarta sal), Botsía kl. 10.30-11.30. Brids
og kanasta kl. 13 og jóga kl. 15 (efri sal).
Bólstaðarhlíð 43 Myndlist kl. 9, leikfimi kl. 10.40, bókband kl. 13.
Kristján Ólafsson harmónikkuleikari kemur kl. 14 og leikur nokkur lög
fyrir okkur.
Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl.10.15, söngstund með
Sigrúnu Erlu kl. 14.
Dalbraut 27 Handavinnustofa kl. 8, botsía kl.14.
Furugerði 1 Handavinna með leiðbeinanda frá klukkan 8-16, harð-
angur og klaustur, perlusaumur, kortagerð og almenn handavinna.
Morgunmatur kl. 8.10-9.10. Leikfimi kl. 9.45-10.15. Hádegismatur kl.
11.30-12.30. Söngfuglar kóræfing kl. 13-14.30. Spil kl. 14. Kaffi kl.
14.30-15.30. Kvöldmatur kl. 18-19. Nánari upplýsingar í síma 411-2740.
Garðabær Qi gong í Sjálandi kl. 9.40. Vatnsleikfimi í Sjálandi kl. 7.30,
12.40, 13.20 og 15. Handavinnuhorn kl. 13 í Jónshúsi, karlaleikfimi
kl.10.55 og botsía kl.11.35 í Ásgarði, kóræfing í Kirkjuhvoli kl.16. Nám-
skeið í Hjálp í viðlögum mánudaginn 16. nóvember kl. 16.30, leiðbein-
endur frá Rauða krossinum, skráning í Jónshúsi.
Gerðuberg Handavinnustofa kl. 9-16. Postulínsmálun með
leiðbeinanda kl. 9-12. Umræðuhópur um lífið og tilveruna með presti
kl. 10.30, allir velkomnir. Leikfimi Milan og Maríu kl. 10.30. Starf
Félags heyrnarlausra kl. 11.30-15.30. Perlusaumur og bútasaumur kl.
13-16. Myndlist með leiðbeinanda kl. 12.45-15.45.
Gjábakki Handavinna kl. 9, rammavefnaður kl. 9, leikfimi kl. 9.10,
silfursmíði kl. 9.30, jóga kl. 10.50, bókband kl. 13, jafnvægisþjálfun kl.
14, létt hreyfing kl. 15 og myndlist kl. 16.10.
Gullsmári Handavinna kl. 9, jóga kl. 9.30, ganga kl. 10, handavinna
og brids kl. 13, jóga kl. 17.15
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, blöðin, púsl og tafl liggja frammi. Morgunleikfimi kl.
9.45, spilað botsía kl. 10, matur kl. 11.30, baðþjónusta fyrir hádegi.
Handavinnuhópur kl. 13, spiluð félagvist kl. 13.15, kaffisala í hléi,
fótaaðgerðir, hársnyrting.
Hæðargarður 31 Við hringborðið kl. 8.50, málað á steina kl. 9, leik-
fimi með Guðnýju kl.10, lífssöguhópur kl. 10.50, Selmuhópur kl. 13,
Sönghópur Hæðargarðs kl. 13.30, hress og skemmtilegur gesta-
leiðbeinandi kemur í dag, allir velkomnir í skemmtilegan sönghóp.
Línudans með Ingu kl. 15-16, síðdegiskaffi kl.14.30, allir velkomnir.
Nánar í síma 411-2790.
Íþróttafélagið Glóð Í Kópavogsskóla Ringó kl. 17 og línudans kl.18,
framhaldsstig 3 (2x í viku), kl.19 framhaldsstig 2 (2x í viku)þ Uppl. í
síma 564-1490 og á www.glod.is
Korpúlfar Dans með Sigvalda kl. 11 í Borgum, útskurður á Korpúlfs-
stöðum kl. 13 og bókmenntahópur Korpúlfa kl. 13 í Borgum.Tekin
fyrir bókin Náðarstund eftir Hannah Kent, umræður, upplifanir og
umfjöllun um bókina. Gaman ef gestir velja sér kafla til að lesa upp úr
bókinni eða til að tala um sérstaklega. Styrktarleikfimi í Borgum kl. 17
í dag.
Laugarból Nýtt í Ármanni: Leikfimi fyrir 50+ og eldri borgara. Leik-
fimi kl. 11 mánudaga, þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga.
Fjölbreyttar æfingar. Allir velkomnir.
Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja, listasmiðja með leið-
beinanda kl. 9-12, morgunleikfimi í borðsal kl. 9.45, bókabíllinn kl. 10-
10.30, upplestur kl. 11, opin listasmiðja með leiðbeinanda kl.13-16,
ganga m. starfsmanni kl. 14, tölvu-og snjalltækjakennsla kl. 15.30.
Uppl. í s. 4112760.
Selið Kaffi og dagblöð kl. 8.30, leikfimi með Guðnýju kl. 9, framhalds-
saga kl. 10, hádegisverður kl. 11.30, söngur með Sighvati kl. 13.30,
línudans með Sigvalda kl. 15.
Seltjarnarnes Vatnsleikfimi kl. 7.15. Bókband Skólabraut kl. 9.
Billjard Selinu kl. 10. Kaffispjall í króknum kl. 10.30. Jóga salnum
Skólabraut kl. 11. Bingó og ástarpungar í golfskálanum í dag kl. 14.
Sætaferðir frá Skólabraut kl. 13.30. Allir velkomnir. Karlakaffi í safn-
aðarheimili kirkjunnar kl. 14.
Stangarhylur 4, FEB Reykjavík Zumba gold kl. 10.30, leiðbeinandi
Tanya Dimitrova. Akstur á efri árum, námskeið annar dagur kl. 13.
Síðdegisdans kl. 16-18. Stjórnendur Matthildur og Jón Freyr.Tónlist
leikin fyrir margskonar dansa, gömlu dansa, samkvæmisdansa,
línudans og hringdansa.
Vesturgata 7 Fótaaðgerð kl. 9. Hárgreiðsla kl. 9. Kertaskreyting (úr
vaxi) kl. 9.15, Vigdís. Glerskurður (Tiffany´s) kl. 13, Vigdís.
Vitatorg Bókband og postulínsmálun kl. 9, upplestur framhaldssögu
kl. 12.20, handavinna með leiðsögn kl. 13.30, frjáls spilamenska og
stóladans kl. 13, prjónaklúbbur kl. kl. 13.30.
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Atvinnublað alla laugardaga
ER ATVINNUAUGLÝSINGIN ÞÍN
Á BESTA STAÐ? Sendu pöntun á augl@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569-1100
Allar auglýsingar birtast bæði í
Mogganum og ámbl.is