Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 35
FRÉTTIR 35Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Hafnargarðarnir sem grafnir voru
upp við Reykjavíkurhöfn verða
sýnilegir í bílakjallara væntanlegra
húsa og einnig frá göngugötum í
gegnum gler, að sögn Gísla Stein-
ars Gíslasonar, stjórnarformanns
Landstólpa þróunarfélags.
Þetta er niðurstaða viðræðna á
milli þróunarfélagsins og Minja-
stofnunar. Annar hafnargarðurinn
er meira en 100 ára gamall og frið-
aður en deilur hafa verið um friðun
hins garðsins, sem er frá 1928 og
sem Minjastofnun skyndifriðaði
fyrr á árinu.
Við framkvæmdirnar verða
garðarnir teknir í sundur og fjar-
lægðir. Þeim verður síðan komið
fyrir á nýjan leik og þá undir eftir-
liti Minjastofnunar, fornleifafræð-
ings og sérfræðings í hleðslum.
hjortur@mbl.is
Hleðslurn-
ar verða
sýnilegar
Samkomulag um
framtíð hafnargarða
Morgunblaðið/Golli
Minjar Gömlu garðarnir voru undir
bílastæði við Hafnarstræti.
„Íshellirinn er eftirtektarvert verk-
efni og dæmi um draum sem verður
að veruleika. Það þarf dug, kjark
og þor til að nýta jökul sem afþrey-
ingarmöguleika í ferðaþjónustu,“
segir í tilkynningu frá Samtökum
ferðaþjónustunnar sem í gær veittu
Íshellinum á Langjökli, öðru nafni
Into the Glacier, Nýsköpunarverð-
laun SAF árið 2015.
Dómnefnd segir að í þessu verk-
efni fari saman hugsjón, áhugi,
ástríða og kraftur frumkvöðla
ásamt þekkingu vísindafólks, verk-
fræðinga og björgunarsveitarfólks,
og fjármagn til að skapa einstaka
upplifun og afþreyingarmöguleika
sem eigi ekki sinn líka í heiminum.
Hafi hellirinn eflt framboð afþrey-
ingar á Vesturlandi og gefið ferða-
fólki ærið tilefni til lengri dvalar á
svæðinu.
Telja samtökin mikilvægt að
horfa til þess hvernig hægt sé að
bjóða fjölbreyttari afþreyingu og
nýjar ferðavörur í ljósi mikillar
fjölgunar ferðafólks á Íslandi.
Mikilvægur þáttur sé einnig
dreifing ferðafólks víðar um landið
og auknir möguleikar ferðaþjón-
ustuaðila til að efla heilsársþjón-
ustu og þar með auka framlegð
greinarinnar.
Tólftu nýsköpunarverðlaunin
Ragnheiður Elín Árnadóttir iðn-
aðar- og viðskiptaráðherra afhenti
verðlaunin við hátíðlega athöfn á
Hilton Reykjavík Nordica. Er þetta
í 12. sinn sem verðlaun SAF eru af-
hent. Verðlaunahafar frá árinu
2010 hafa verið Gestastofan á Þor-
valdseyri, Saga Travel, Pink Ice-
land, KEX hostel og Íslenskir fjalla-
leiðsögumenn.
Íshellirinn á ekki sinn líka
Magnað Náttúruleg sprunga þverar íshellinn í Langjökli og vekur athygli.
Fékk Nýsköpunarverðlaun Samtaka ferðaþjónustunnar
Samninganefndir ríkisins og Kjara-
félags viðskiptafræðinga og hag-
fræðinga (KVH) undirrituðu í fyrra-
kvöld samkomulag um breytingar
og framlengingu á kjarasamningi og
er gildistími samningsins frá 1. mars
2015 til 31. mars 2019.
Fram kemur á vefsíðu stéttar-
félagsins að með samningnum hafi
meginmarkið KVH náðst um að
samningurinn fæli í sér sömu launa-
hækkanir og Gerðardómur kvað á
um vegna aðildarfélaga BHM, fyrir
fyrri hluta samningstímans, auk
þess sem samningurinn er aftur-
virkur frá 1. mars síðastliðnum.
„Launahækkanir síðari hluta gildis-
tímans eru í samræmi við forsendur
og yfirlýst markmið ríkis og flestra
aðila vinnumarkaðarins, um sam-
eiginlega launastefnu til ársloka
2018 og þá framtíðarsýn um megin-
stoðir nýs íslensks samningalíkans,
sem stefnt er að,“ segir um nýja
samninginn.
Rafræn atkvæðagreiðsla um
samninginn á að hefjast síðdegis í
dag og ljúka á hádegi næstkomandi
mánudag.
Nýr samning-
ur afturvirkur
frá 1. mars
VIÐKVÆM HÚÐ?
PRÓFAÐU
ALLA LÍNUNA…
ÞVOTTAEFNI | HREINLÆTISVÖRUR | HÚÐVÖRUR | ANDLITSLÍNA | BARNAVÖRUR
ASTMA- OG OFNÆMISFÉLAG ÍSLANDS
MÆLIR MEÐ VÖRUM FRÁ NEUTRAL
…fyrir heimilið, fjölskylduna og þig.
Neutral er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma húð og inniheldur
engin ilmefni, litarefni eða paraben – þannig hjálpar Neutral
þér að vernda húð allra í fjölskyldunni.
Skoðaðu allar Neutral vörurnar í næstu verslun eða kíktu á Neutral.is
ÍS
L
E
N
SK
A
SI
A
.I
S
N
A
T
71
68
2
02
/1
5