Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 89
MENNING 89
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Fjórir ballettar
verða sýndir í
kvöld í Háskóla-
bíói á vegum
Senu, í samstarfi
við The Royal
Opera House í
Lundúnum. Upp-
færsla óperu-
hússins á Car-
men, Visceria,
Afternoon of a
Faun og Tchaikovsky pas de deux
verður sýnd og hefst sýningin kl.
19.15 og er þrjár klukkustundir og
20 mín. að lengd, samkvæmt vefn-
um eMiði.is. Aðeins er um þessa
einu sýningu að ræða.
Fjórir ballettar
í Háskólabíói
Ballettdansari á
kynningarmynd
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Tónlistarmaðurinn Ari Ma, réttu
nafni Ari Másson, sendi fyrir
skömmu frá sér á netinu býsna
merkilega plötu, Hugarfar, í sam-
starfi við tónlistarmanninn Muted,
þ.e. Bjarna Rafn Kjartansson. Tón-
listinni lýsir Ari sem „andlegu rappi
eða hippahoppi“ og textarnir eru
óvenjujákvæðir
þegar kemur að
rappi; ást og frið-
ur, innri ró og
lífsins fegurð
m.a. Ari segir
ástæður þess að
hann kalli sig
Ara Ma nokkrar.
Hann yrki á ensku og því verði út-
lendingar að eiga auðvelt með að
bera fram nafnið. Hann vilji einnig
afneita með því feðraveldinu og
þeirri hefð Íslendinga að kenna sig
við föður sinn, foreldrar hans heiti
Margrét og Már og því vísi Ma í
nöfn þeirra. Í þriðja lagið þýði orðið
„ma“ á sanskrít „að skapa“.
Í klifurþorpi í Taílandi
Samskipti Ara og blaðamanns
fara fram á Facebook þar sem Ari
er staddur í Taílandi og ekki til við-
tals í síma. Áður en hann kom til
Taílands var hann í Kambódíu. „Ég
var að heimsækja kærustuna mína
sem er að vinna þar í Phnom Penh
og núna er ég kominn til Taílands
þar sem ég ætla að vera í vetur,“
svarar Ari, spurður að því hvað
hann hafi verið að gera í Kambódíu.
„Ég er í litlu klifurþorpi með fjölda
klifrara frá ýmsum löndum. Hér er
mikið um jóga og hugleiðslu og
margir hippar og því gott að vera
hérna. Ég er hingað kominn til þess
að læra að klifra, ég er með allt klif-
urdótið mitt hérna og þar sem ég er
enn ungur ætla ég bara að klifra og
verða ógeðslega góður í því en líka
að vinna í listinni,“ segir Ari, léttur í
lund.
-Hvað hefurðu gert áður í tónlist?
Geturðu sagt mér stuttlega frá því?
Lærði að elska sjálfan sig
Ari Ma gefur út plötuna Hugarfar með Muted Frítt niðurhal á netinu
Jákvætt hugarfar, ást og friður í textum Stundaði hugleiðslu á Indlandi
Gjörbreyttur „Það má segja að ég hafi fundið sjálfan mig á Indlandi og ég
kom heim gjörbreyttur maður,“ segir tónlistarmaðurinn Ari Másson. Hér
sést hann með kátum krökkum á Indlandi fyrir fjórum árum.
„Ég hef svo sem ekki gert mikið
áður í tónlist, gefið út þrjú lög. Það
fyrsta gaf ég út fyrir u.þ.b. þremur
árum og setti á YouTube undir
nafninu Ari Másson. Annað, „Land-
námsmanninn“, gerði ég með vini
mínum, langt söguljóð um land-
námsmann og það tók mig heilan
vetur að yrkja ljóðið. Það er líka á
YouTube. Svo gaf ég út lag sl. vor
með vini mínum, það heitir „Ræð
minni ró“. Ég „beatboxa“ líka mik-
ið,“ segir Ari og gefur hljóðdæmi.
Eins og að koma heim
-Hugarfar er mjög óvenjuleg
rappplata, textarnir eru fullir af já-
kvæðni og hvergi minnst á kvenna-
far, fyllirí og þess háttar eins og al-
gengt er í rapptextum. Þú segir á
Facebook að tilgangur þinn hér á
jörðu sé að hjálpa öðrum að komast
í ákveðið hugarástand sem lýsi sér í
ró, friði, hjartahlýju og ástæðu-
lausri alsælu og segir að þú hafir
farið til Indlands og lært þar að
elska sjálfan þig. Segðu mér aðeins
frá þessu ferðalagi og þessari upp-
götvun.
„Þegar ég fór til Indlands fór ég
til þess að læra og uppgötva og það
var ótrúlega yndisleg upplifun. Ég
lærði svo margt, var að vinna í skóla
í þrjá mánuði með fátækum krökk-
um sem voru svo þakklátir og fólki
sem elskaði mig svo mikið. Þetta
var eins og að koma heim. Á Íslandi
eru allir svo kaldir, umhverfið allt
miklu kaldara. Að komast til Ind-
lands og finna hjartahlýjuna þar var
það sem ég þurfti.
Eftir þessa þrjá mánuði flakkaði
ég um landið í fjóra mánuði með
vini mínum Hlyni. Við fórum á hug-
leiðslunámskeið, vipassana, sem er
það besta sem ég hef gert. Þetta
var 10 daga námskeið og engin
trúarbrögð þar á ferðinni, bara hug-
leiðsla. Manni var kennt að horfa
inn á við og vinna í sjálfum sér. Það
má segja að ég hafi fundið sjálfan
mig á Indlandi og ég kom heim
gjörbreyttur maður,“ segir Ari.
Ádeila á áliðnaðinn
-Þú vannst plötuna með Muted,
Bjarna Rafni. Hvernig lágu leiðir
ykkar saman?
„Muted er algjör snillingur.
Frændi minn benti honum á að
hlusta á lagið mitt, „Landnámsmað-
urinn“, og eftir að hafa gert það
vildi hann endilega vinna með mér
og hafði samband við mig á netinu.
Við smullum strax saman og ætl-
uðum fyrst að prófa að gera nokkur
lög en úr varð heil plata. Það má
segja að hann sé minn músíkalski
sálufélagi,“ segir Ari.
Þó að boðskapurinn sé jákvæður
á plötu Ara og Muted er þó eitt lag
með ádeilubroddi, lagið „Ál“. „Það
er ádeilulag á áliðnaðinn og Kára-
hnjúkavirkjun, ferlið sem fór þar í
gang og spillinguna í kringum þenn-
an iðnað,“ segir Ari. Andri Snær
Magnason rithöfundur hafi léð hon-
um rödd sína og talað inn á lagið.
„Ég las bókina hans Draumalandið
og lærði mikið af henni og hann var
til í að taka þátt í þessu,“ segir Ari.
En kemur platan eingöngu út á
netinu? „Hingað til hefur hún bara
komið út á netinu, það er hægt að
hlaða henni niður og svo er hún á
YouTube og Spotify. Ástæðan er sú
að ég hef sjálfur ekki notað geisla-
diska í svona 12 ár. Ég held að ungt
fólk í dag sé ekki að hlusta á diska
og ég nennti ekki að standa í því að
búa til disk. Hún er bara á netinu til
niðurhals ókeypis og gjörið svo vel!
Ekkert flókið,“ segir Ari eldhress
og óskar blaðamanni að lokum ástar
og friðar.
Plötunni má hlaða niður á mu-
ted.is/arima/ og einnig má hlusta á
hana á YouTube og Spotify. Alla
texta plötunnar má finna á slóðinni
genius.com/artists/Ari-ma-and-
muted.
Perlur úr kvikmyndasögu Pól-
lands verða sýndar í Bíó Paradís
til og með 16. nóvember og hefst
kvikmyndaveislan í kvöld kl. 20
með flutningi hljómsveitarinnar
Apparat Organ Quartet á frum-
saminni tónlist við þöglu myndina
Mocny człowiek, eða Harðjaxl, frá
árinu 1929. Myndin er byggð á
skáldsögu Stanislaws Przybys-
zewski. Eftir seinni heimsstyrjöld-
ina var sýningareintak kvikmynd-
arinnar talið glatað en fannst svo í
Brussel og var sent til Kvik-
myndasafnsins í Varsjá. Kvik-
myndin er talin með þeim dýr-
mætari í því safni.
15 pólskar kvikmyndir verða
sýndar og frá ólíkum tímum.
Pólsku kvikmyndadagarnir eru
samstarfsverkefni Kvikmynda-
safns Póllands, Bíós Paradísar og
Reykjavík Film Academy og á
undan hverri sýningu mun kvik-
myndagagnrýnandinn Michal
Chacinksi reifa sögulegt samhengi
hverrar myndar fyrir sig.
Tveir viðburðir verða í boði fyr-
ir börn og unglinga, annars vegar
vinnusmiðja þar sem sýndar eru
nokkrar sniðugar leiðir til að gera
hreyfimyndir án myndavélar og
hins vegar sýningar á kvikmynd-
inni Mr. Blot́s Academy, eins og
segir í tilkynningu. Aðgangur að
öllum viðburðum er ókeypis og má
finna dagskrá og upplýsingar um
kvikmyndirnar á bioparadis.is.
Pólskar kvikmynda-
perlur í Bíó Paradís
Harðjaxl Stilla úr opnunarmynd pólskrar kvikmyndahátíðar í Bíó Paradís.
lÍs en ku
ALPARNIR
s
Allt frá fjöru til fjalla
FAXAFENI 8, SÍMI 534 2727
alparnir.is
Frábær verð á alla fjölskylduna!
100% merino ull
SPECTRE 5,7,8,10(P)
JEM AND THE HOLOGRAMS 5:30
CRIMSON PEAK 10:30
SICARIO 8
HOTEL TRANSYLVANIA 2 5
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
POWERSÝNING
KL. 10
SÝND Í 4K!
-The Times -The Gaussian -Telegraph