Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Samtals 2.300 af þeim 3.120 íslensku
ríkisborgurum sem fluttu frá land-
inu fyrstu níu mánuði ársins fóru til
Danmerkur, Noregs eða Svíþjóðar.
Þetta má lesa úr ársfjórðungs-
legum tilkynningum Hagstofunnar.
Tölurnar eru ekki sundurliðaðar
eftir áfangastað. Tölur um aðflutn-
ing eru hins vegar sundurliðaðar að
hluta. Niðurstaðan er sýnd hér til
hliðar. Flestir hafa komið frá Dan-
mörku, eða 530, og næst kemur Nor-
egur; þaðan hafa 480 Íslendingar
flutt heim fyrstu níu mánuði ársins.
Stór hluti brottfluttra
Taflan sýnir að 910 fleiri íslenskir
ríkisborgarar hafa flutt til þessara
þriggja landa í ár en flutt hafa heim
frá þeim. Til samanburðar fluttu
samtals 1.130 fleiri íslenskir ríkis-
borgarar frá landinu á fyrstu níu
mánuðum ársins en fluttu frá því.
Virðist straumur til hinna Norð-
urlandaþjóðanna vega þar þyngst.
Ásókn í danska styrki kann þar að
eiga hlut að máli, eins og rakið er í
grein um LÍN hér fyrir neðan.
Svonefndum útsendum starfs-
mönnum sem koma til starfa á Ís-
landi fjölgar mikið milli ára. Vinnu-
málastofnun heldur utan um
skráningar á útsendum starfs-
mönnum og hjá starfsmannaleigum.
Með útsendum starfsmönnum er átt
við fólk frá ríkjum EES-svæðisins
sem er sent tímabundið hingað til
lands í tengslum við veitingu þjón-
ustu erlends þjónustufyrirtækis og
fær laun sín greidd í heimaríkinu.
Stefnir í fjórföldun milli ára
Fjöldun útsendra starfsmanna og
starfsmanna hjá starfsmannaleigum
frá 2013 er sýnd hér til hliðar. Skv.
upplýsingum frá Vinnumálastofnun
hefur bróðurpartur skráninga á út-
sendum starfsmönnum í ár verið í
ágúst, september og október.
Unnur Sverrisdóttir, aðstoðarfor-
stjóri Vinnumálastofnunar, telur
þessar tölur ekki endurspegla heild-
arfjölda útsendra starfsmanna eða
starfsmanna hjá erlendum starfs-
mannaleigum.
„Það eru meiri líkur á að þetta sé
vanáætlun frekar en hitt. Svo virðist
sem erlendu fyrirtækin sem senda
fólk til starfa hingað til lands átti sig
ekki á þeirri skyldu sinni að skrá
starfsfólkið hjá Vinnumálastofnun.“
Leita til Norðurlandaþjóðanna
2.300 íslenskir ríkisborgarar fluttu til Danmerkur, Svíþjóðar og Noregs fyrstu níu mánuði ársins
Skráðir útsendir erlendir starfsmenn á Íslandi eru þegar nærri fjórfalt fleiri en allt árið í fyrra
Fjöldi skráninga hjá
Vinnumálastofnun
*Staðan til og með 10. nóvember 2015.
Heimild: Vinnumálastofnun.
2013 2014 2015*
Útsendir
starfsmenn 50 82 305
Starfsmenn
hjá starfs-
mannaleigum
10 28 81
Aðfluttir íslenskir ríkisborgarar frá Noregi,
Danmörku og Svíþjóð
Fyrstu 9 mánuði ársins 2015*
*Hér eru uppgefnar tölur fyrir hvert land í hverjum ársfjórðungi lagðar saman.
Samtalan kann að vera önnur en hjá Hagstofu Íslands vegna námundunar hjá Hagstofunni.
Heimild: Hagstofa Íslands. Bráðabirgðatölur.
Fyrsti ársfj. Annar ársfj. Þriðji ársfj. Alls
Noregur 110 120 250 480
Danmörk 120 140 270 530
Svíþjóð 60 100 220 380
Samtals 290 360 740 1.390
Brottfluttir samtals til
landanna þriggja 530 480 1.290 2.300
Mismunur á aðfluttum
og brottfluttum -910
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Umsóknum um námslán hjá Lána-
sjóði íslenskra námsmanna (LÍN)
fækkar töluvert milli ára. Hrafnhild-
ur Ásta Þorvaldsdóttir, fram-
kvæmdastjóri
sjóðsins, segir
enga einhlíta
skýringu á þess-
ari þróun.
Spurð um þró-
un umsókna um
lán segir Hrafn-
hildur Ásta að
talsverðar breyt-
ingar séu milli
ára.
„Það hafa bor-
ist töluvert færri umsóknir um
námslán fyrir skólaárið 2015-16 en
fyrir síðasta skólaár, ef miðað er við
umsóknartölur á sama tíma í byrjun
nóvember. Fækkun umsókna á Ís-
landi er um 16%, eða 1.000 nemend-
ur. Umsóknum vegna náms erlendis
hefur fækkað um 120 eða um 7% í
heildina. Þetta er þó misjafnt eftir
löndum, þar sem umsóknum hefur
sums staðar fjölgað en fækkað ann-
ars staðar. Áfram er talsverð fækk-
un stúdenta í Danmörku eins og síð-
astliðin ár,“ segir Hrafnhildur Ásta.
Hún segir marga þætti kunna að
hafa áhrif á þessa þróun.
„Það er engin einhlít skýring á
þessari fækkun á Íslandi þar sem
nemendum í íslenskum háskólum er
ekki að fækka samkvæmt upplýsing-
um þaðan. Að hluta til eru áhrif efna-
hagshrunsins að minnka. Á árunum
eftir hrun voru atvinnulausir á Ís-
landi hvattir af stjórnvöldum til að
fara í nám frekar en að vera á at-
vinnuleysisbótum, með átakinu
„nám er vinnandi vegur“. Námi eða
endurmenntun þessara einstaklinga
er væntanlega að ljúka eða er lokið.
Yfir 1.000 að læra í Danmörku
Hvað varðar nám erlendis þá eru
nú rúmlega 1.000 Íslendingar við
nám í Danmörku á svokölluðum SU-
styrk frá danska ríkinu, samkvæmt
upplýsingum frá SU í Danmörku, og
hefur það farið stigvaxandi undan-
farin ár. Því má segja að íslenskum
nemendum í námi erlendis sé í raun
ekki að fækka og er heildarfækkun
nemenda því minni en hér hefur
komið fram og gera mætti ráð fyrir
út frá umsóknartölum sjóðsins,“
segir Hrafnhildur Ásta og vísar til
talna frá Statens Uddannelsesstøtte
(SU), systurstofnun LÍN í Dan-
mörku.
Spurð hversu þungt þessir 1.000
Íslendingar vega í heildarsamheng-
inu svarar Hrafnhildur Ásta því til
að fækkun umsækjenda á Íslandi,
sem er nú um 1.000 manns, jafngildi
u.þ.b. 75% af umsækjendum erlendis
eins og staðan var í byrjun nóvem-
ber, eða 13% af öllum umsækjend-
um. Hún segir engar augljósar skýr-
ingar á fækkun umsókna á Íslandi.
Hrafnhildur Ásta bendir svo á
umræðu um hvort nýnemar dvelji nú
ef til vill einhverjum árum lengur í
heimahúsum þar sem skortur sé á
leiguhúsnæði við hæfi eða greiðslu-
getu. Þá megi athuga hvort umræða
í þjóðfélaginu varðandi háar náms-
lánaskuldir að námi loknu og sam-
anburður við styrkjakerfi á Norður-
löndunum ýti undir varkárni náms-
manna við töku námslána.
Hrafnhildur Ásta segir að hafa
þurfi í huga að mánuður sé þar til
umsóknarfresti vegna haustannar
skólaárið 2015-16 lýkur og því geti
endanlegar umsóknartölur breyst á
þeim tíma. Gert sé ráð fyrir að út-
borguð lán sjóðsins muni endur-
spegla þessa þróun.
Umsóknir hjá LÍN
færri en í fyrrahaust
Um 16% fækkun á Íslandi Margir leita í danska styrki
Hrafnhildur Ásta
Þorvaldsdóttir
Verktakar og ráðgjafar á vegum
tryggingafélags dýpkunarskipsins
Perlu og útgerðar hennar, Björg-
unar hf., eru að ganga frá áætlun
um að lyfta skipinu af botni
Reykjavíkurhafnar og koma henni
í burtu. Fjárhagsleg ábyrgð á
verkinu er komin að mestu leyti á
herðar tryggingafélagsins.
Ný áætlun um aðgerðina er
væntanleg til Faxaflóahafna síð-
degis í dag, að sögn Gísla Gísla-
sonar hafnarstjóra. Hún verður yf-
irfarin og vonast hann til að hægt
verði að hefja aðgerðir fljótlega,
annaðhvort á morgun eða laug-
ardag. Ekki tókst að ná skipinu
upp þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir
fyrir og um helgina. Var ákveðið
að undirbúa næstu atrennu betur.
Eins og fram hefur komið hefur
verið unnið að undirbúningi verks-
ins á ýmsan hátt, meðal annars
með því að létta skipið. Sérfræð-
ingar eru að reikna út þyngd og
stöðugleika og skoða verklagið við
að lyfta skipinu af botni hafn-
arinnar.
„Í næstu atrennu munu menn
hafa þau tól, tæki og þekkingu
sem duga til að verkefnið lukkist,“
segir Gísli Gíslason. helgi@mbl.is
Morgunblaðið/Eggert
Tilraun Perla náðist ekki upp úr Reykjavíkurhöfn í síðustu viku.
Aftur reynt við
Perlu næstu daga
Ný áætlun er væntanleg í dag
Unnið er að skipulagi á Óseyr-
artanga við brúna yfir Ölfusárósa.
Þar er fyrirhugað að reisa rúmlega
60 herbergja hótel.
„Þetta er ofboðslega flott stað-
setning. Húsið rís upp úr svörtum
sandinum. Útsýni er út á hafið og ós-
inn er hinum megin þannig að það er
eins og haf sé beggja vegna,“ segir
Kristinn Bjarnason, framkvæmda-
stjóri innflutningsfyrirtækisins Mak-
ron, sem unnið hefur að verkefninu.
Að því standa einstaklingar.
Lóð hótelsins er Þorlákshafn-
armegin við veitingahúsið Hafið
bláa, á lóð úr landi jarðarinnar
Hrauns. Óseyrartangi er vinsæll við-
komustaður fólks í norðurljósa-
skoðun.
Nafn hótelfyrirtækisins vísar til
norðurljósanna, NL hotels ehf.
Kristinn segir þó margar aðrar hug-
myndir í umræðunni.
Á neðri hæð hótelsins verða 60
herbergi og móttaka í miðrými. Á
efri hæð, sem er yfir hluta bygging-
arinnar, er gert ráð fyrir fjórum
svítum. Kristinn segir að fram-
kvæmdir verði hafnar um leið og
byggingarleyfi fáist. Það verði von-
andi með vorinu. helgi@mbl.is
Hótel á Óseyrartanga
Rís á svörtum
sandi á milli hafs
og Ölfusárósa
Framkvæmd Norðurljósahótelið verður við veginn um Óseyrarbrú, á milli
Þorlákshafnar og Eyrarbakka, innan marka sveitarfélagsins Ölfuss.
JERÚSALEM
NÁNAR Á UU.IS
8.-19. APRÍL 2016
Hér er á ferðinni einstök sögu- og
menningarferð til Jerúsalem með
Sr. Hirti Magna Fríkirkjupresti.