Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 10
10 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
af vatnslitamyndum, sem troðfylltu
allar skúffur á heimilinu, og setja
upp sýningu,“ segir Guðrún Svava,
sem á árum áður var í stjórn Nor-
rænu akvarell-samtakanna og í far-
arbroddi Akvarell á Íslandi. Verk
hennar komu síðast fyrir sjónir al-
mennings á samsýningu með hópn-
um fyrir tólf árum.
Tilfinningar og
leikur með liti
„Uppistaðan á sýningunni í
Smiðjunni eru vatnslitamyndir, eða
svokallaðar akvarellur, sem ég mál-
aði þegar ég dvaldi hjá Hlíf systur
minni í Arnhem í Hollandi um alda-
mótin og hafði þar fínustu aðstöðu.
Sumar myndirnar eru málaðar undir
áhrifum frá ljóðum Jóhanns Sigur-
jónssonar, því komið hafði til tals að
ég myndskreytti ljóðabók eftir hann,
þótt ekkert yrði af útgáfunni. Allar
myndirnar fjalla um tilfinningar,
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Guðrún Svava Svavarsdóttirmyndlistarmaður er ný-flutt frá Íslandi til dönskueyjunnar Ærø ásamt eig-
inmanni sínum, Sigurði Karlssyni
tónlistarmanni. „Önnur tilraun okk-
ar hjóna til að flytja frá Íslandi, þar
sem við vildum þó helst búa,“ segir
hún. „En því miður; dæmið gekk
ekki upp fyrir okkur á Íslandi,“ bæt-
ir hún við.
Komum að því síðar. Í dag opn-
ar Guðrún Svava sýningu á um
fjörutíu akvarellum í Smiðjunni
Listhúsi. Hún er stödd á landinu til
að fylgja sýningunni úr hlaði. Svo fer
hún aftur til Ærø þar sem hún
hyggst eldast í rólegheitum og
rækta garðinn sinn.
„Í miðjum búferlaflutningunum
fékk ég þá hugmynd að dusta rykið
Listakonan sem fluttist til
Las Vegas norðursins
Myndlistarkonan Guðrún Svava Svavarsdóttir, sem
á árum áður var einn forsprakka Akvarell á Íslandi,
opnar í dag sýningu á um fjörutíu akvarellum í
Smiðjunni Listhúsi. Hún sýndi síðast á samsýningu
með hópnum árið 2003, en síðan hafa verk hennar
ekki komið fyrir almenningssjónir, enda venti hún
sínu kvæði í kross og lærði fótaaðgerðir Danmörku
þar sem hún rak stofu í mörg ár.
Á Ærø Guðrún Svava og Sigurður ásamt nágrannahundinum Samson.
Alla fimmtudaga er opið hús hjá
Samtökunum 7́8 en þau eru til húsa í
Suðurgötu 3 í Reykjavík. Í kvöld verð-
ur blásið til laufléttrar spurn-
ingakeppni, pub-quiz, þar sem einn
eða þrír geta verið saman í liði. Engin
ástæða er til að láta það stoppa sig
að mæta ein/n/tt, því fundnir verða
liðsfélagar fyrir fólk sem það kýs. Og
fólk þarf heldur ekki að taka þátt
ferkar en það vill, það má líka alveg
mæta og skemmta sér við að fylgjast
einfaldlega með.
Tekið skal fram að hjá Samtök-
unum er ekki vínveitingaleyfi en
hægt er að kaupa gos, kaffi, te og
sætindi á staðnum. Einnig er fólki
velkomið að sötra sínar eigin veigar
sem það tekur með sér.
Í húsi Samtakanna er gott aðgengi
fyrir fólk með hreyfihömlun.
Spurningakeppnin hefst kl. 20.
Opið hús alla fimmtudaga
Pub-quiz Gaman og góð stemning.
Spurninga-
keppni hjá
Samtökunum