Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 24
SVIÐSLJÓS
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Allar leiðir liggja til Berlínar. En
hvað skapar annars vinsældir ein-
stakra borga sem ferðamenn sækja
heim? Við þessu er ekki til einhlítt
svar, en almennt hafa túristar
áhuga á að sjá sögustaði og fallegar
byggingar, geta komist í verslanir
og á góð veitingahús, þeir vilja að
verð á vöru og þjónustu sé sann-
gjarnt og að hótel séu nærri mið-
borg. Jafnframt að ekki sé langt að
fara og að flugið að heiman sé ekki
meira en þrír til fjórir klukkutímar
skiptir miklu sömuleiðis.
Allir tala um Berlín
Segja má að flest þetta uppfylli
þýska höfuðborgin. Tugir þúsunda
Íslendinga hafa á síðustu árum far-
ið til Berlínar. WOW hóf reglulegt
flug þangað árið 2011 og Air Berlin
nokkru síðar. Flug þessara félaga
er loftbrú milli Íslands og Berlínar
og því standa ferðaskrifstofur fyrir
þangað.
Sína sögu segir að á kaffistofunni
í vinnunni, í matarboðum, úti í búð
og annars staðar þar sem fólk hitt-
ist ber borgina oft á góma. Ýmist er
fólk að koma, er á leiðinni eða iðar í
skinninu að bregða undir sig betri
fætinum á skemmtilegan stað. Það
eru allir að tala um Berlín.
Berlín er borg andstæðna. Þó að
rúmur aldarfjórðungur sé liðinn frá
falli múrsins, sem skipti borginni í
tvennt, eru skilin greinileg. Bygg-
ingarnar í vesturhlutanum eru ný-
tískulegar og vestrænn svipur yfir
öllu. Í austurhlutanum eru 20 hæða
verkamannablokkir áberandi; húsa-
skjól sem fólki í fyrirmyndarríkinu
var úthlutað. Þarna er margt frekar
hrörlegt borið saman við vest-
urborgina.
Hin mikla markalína
Berlínarmúrinn, hin mikla
markalína, skar borgina í tvennt og
gerði líf í hvorum hlutanum um sig
sem á ólíkum pláhnetum væri.
Vesturhlutinn, hvar lögmál lýðræð-
isins giltu, var eyja í rauðu hafi og á
yfirráðasvæði sósíalismans. Múrinn
stóð frá 1961 til 1989 og var um 150
kílómetra langur. Í dag standa um
tveir kílómetrar af múrnum sem nú
er einskonar minnisvarði um veröld
sem var.
Blaðamaður Morgunblaðsins var
í Berlín um síðustu helgi og gisti á
Hotel Leonardo Royal við Alexand-
erplatz, sem er fjölfarið umferð-
artorg í austurborginni. Við það
stendur sjónvarpsturninn, hæsta
bygging borgarinnar og eitt af
þekktari kennimörkum hennar.
Frá torgi Alexanders eru raunar
þægilegar fjarlægðir til áhugaverð-
ustu staðanna í miðborginni, sem
áin Spree þverar. Þarna er svo-
nefnd safnaeyja; þar eru fjölmörg
sögusöfn, dómkirkja og aðrir mark-
verðir staðir. Um miðja austurborg-
ina er breiðstrætið Unter den Lind-
en og við enda þess er Branden-
borgarhliðið, sem var austanmegin í
gömlu Berlín. Hliðið er nú eins-
konar sameiningartákn Þjóðverja.
Kvika og kæti
Skammt frá Brandenborgarhlið-
inu er minnismerki eftir bandaríska
arkitektinn Peter Eisenman um
gyðinga sem teknir voru af lífi í síð-
ari heimsstyrjöldinni; þar sem alls
2.711 steinkössum er raðað á torgið
eftir kúnstarinnar reglum. Víðar í
borginni eru listaverk sem hafa
þetta sama inntak, eru uppgjör við
söguna og fyrirbyggjandi aðgerð
svo hryllingssaga Hitlerstímans
endurtaki sig ekki.
Í Berlín mætast stefnur og
straumar úr ólíkum áttum. Það
dugar að ganga um götur borg-
arinnar til að skynja þar skemmti-
lega gerjun, í borg þar sem viðhorf
dagsins eru síbreytileg. Kemur þar
meðal annars til að Berlín er há-
skólaborg. Þar eru margar góðar
menntastofnanir, til dæmis á sviði
lista og verkfræði og hefur starf-
semin þar skapað þá kviku og kæti
sem lokkar svo marga til borg-
arinnar þar sem búa um 3,5 millj-
ónir manna.
Múrinn Mynd af Leonid Brezhnev Sovétleiðtoga og Erich Honecker, forseta Austur-Þýska-
lands, er máluð á múrinn eftir heimsfrægri ljósmynd. Japönsk stúlka talar í símann, sem sýnir
vel andstæður og breytingarnar í forðum rauðu landi sem lengi var nánast lokað umheiminum.
Lystireisur Trabant var áberandi bíll á tímum alþýðulýðveldisins. Nú eru slíkar bifreiðar orðn-
ar sjaldséðar, en ferðamönnum býðst í dag að fara í skemmtiferðir á þessum eðalkerrum um
götur Berlínarborgar, sem er ein vinsælasta ferðamannaborgin í Evrópu nú um stundir.
Í Berlín mæt-
ast stefnur
og straumar
Skil austurs og vesturs enn greinileg
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Alexanderplatz Heimsklukka á torginu og sjónvarpsturninn, þekkt kenni-
mark, í baksýn. Tíminn flýgur hratt, á gervihnattaöld, var sungið forðum.
Táknmynd Við minnismerki um
hermenn sem féllu á vígvellinum.
Götulist Í borginni er iðandi mannlíf á hverju götuhorni og hæfileikafólk í
glysklæðum og grímubúningum leikur listir sínar með sápukúlublæstri.
Brandenborgarhliðið Sögustaður
og ein táknmynda Þýskalands.
24 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Laugavegi 53 | Sími 552 3737 | Opið mán.-fös. 10-18, lau. 10-17
DIMMALIMM
Mikið úrval af
Jólafötum,
kápum, úlpum,
útigöllum,
húfum,
náttkjólum
og náttfötum
www.dimmalimmreykjavik.is