Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 82

Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 82
82 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015 Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Elí Freysson rithöfundur á Akur- eyri hefur sent frá sér bókina Eld- mána, fimmtu fantasíuskáldsöguna á jafn mörgum árum. Hann hefur í nógu að snúast því samhliða hefur Elí þýtt eigin verk á ensku til út- gáfu. Nýjasta bókin er sú síðasta í þrí- leiknum um unglingsstúlkuna Kötju. Hann segir Kötju þó eiga eftir að koma fyrir oftar. „Já, ætl- unin er að enda seríuna í heild sinni á þrí- eða fjórleik um alla að- alkarakterana mína þrjá; Kötju, Mikael og Kody. Það verður þó ekki strax því nú er ég búinn að snúa mér að því að gefa út á ensku,“ seg- ir Elí við samtali við Morgunblaðið Tvær komnar út á ensku Hann hefur þegar þýtt tvær bæk- ur sínar yfir á ensku og gefið út sem rafbækur á Amazon. Það eru Kallið og Kistan, sem hann nefnir The Call og A Clash of Shadows. „Svo er ég að byrja á nýju verk- efni núna, að skrifa smásagnaseríu í vísindaskáldskapargeiranum og ætla að gefa það út á nettímaritum; senda tímariti sögur eins og höf- undar gerðu í gamla daga og fá þær birtar. Ég fékk þessa hugmynd og varð að gera eitthvað úr henni. Er að skoða málið og er viss um að ef ég kemst inn verður það góð leið til að vekja frekari athygli.“ Hann kall- ar nýju sögurnar geimóperu; fant- asíur sem gerast úti í geimnum. Í nýjustu sögunni, Eldmána, kemur sagan af Júkaia og ríki henn- ar smám saman í ljós. Þegar Elí er spurður hvort hann hafi velt því fyrir sér að skrifa þá sögu sérstak- lega svarar hann því til að baksaga þessa heims gerist á þúsund árum „og ég get vel ímyndað mér að ég eigi eftir að fara aftur í tímann og skrifa meira um það, en það yrði reyndar ekki strax. Ég hef líka hugsað mér að fara fram í tímann, af því að Katja er ódauðleg; gæti þess vegna skrifað sögu sem gerist hundrað árum síðar og séð hvað hefur breyst í millitíðinni. Svo er ég bæði með hugmyndir um óskylda seríu í öðrum stíl og sem gerist á öðrum tímabilum og um aðra hluti. En ég get bara gert eitt í einu og sé til með þetta.“ Elí segir ganga þokkalega að gefa út á ensku. „Það eru mjög margir að gera það nákvæmlega sama og ég og það tekur tíma að byggja upp lesendahóp; það er að hluta til ástæðan fyrir því að ég ætla að prófa nettímarit. Þegar saga birtist þar vekur það athygli en ég veit að þetta er langhlaup.“ Elí er byrjaður að skrifa geim- óperuna, sem hann kallar svo. „Þetta eru í raun tíu smásögur sem gerast á tíu árum og fjalla um tíu mismunandi persónur, sem sjá at- burði stríðs frá mismunandi sjónar- hornum; hver og einn upplifir sitt litla ævintýri. Þegar þetta verður allt tekið saman verður það á lengd við góða skáldsögu.“ Skrifar áfram og jafnvel í skóla Elí hefur verið með mörg járn í eldinum undanfarið en ætlar nú að breyta vinnulaginu. „Ég rak mig á það núna að það að undirbúa eina bók undir útgáfu á ís- lensku, þýða aðra yfir á ensku og vera að skrifa þá þriðju – allt á sama tíma – er allt of mikið vesen. Ég ætla því ekki að gefa út á ís- lensku á næsta ári heldur einbeita mér að enskunni og sjá hvernig fer.“ Hann þýddi eigin bækur fyrir út- gáfuna á Amazon sem fyrr segir en skrifar smásögurnar á ensku og segir það ganga vel. „Enska var mitt langbesta fag í framhalds- skóla.“ Elí hefur í nokkur ár unnið fulla vinna, á lagernum hjá Nettó, jafn- framt því að skrifa en íhugar að breyta til. „Ég ætla að reyna að finna mér hálfa vinnu svo ég geti einbeitt mér meira að því að skrifa og er alvarlega að hugsa um að fara í háskólann næsta haust. Mér líst best á nútímafræðina.“ Elí fær endalausar hugmyndir  Sendir frá sér fimmtu fantasíuna á jafn mörgum árum  Hefur þegar gefið út tvær bækur á ensku Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Fantasía Elí Freysson gefur nú út fimmtu bókina á jafn mörgum árum og skrifar bæði á íslensku og ensku. Jólavörurnar eru komnar í Álnabæ Álnabær Allt fyrir gluggann… úrval, gæði og þjónusta. Síðumúla 32, Reykjavík ▪ Tjarnargötu 17, Keflavík ▪ Glerárgötu 32, Akureyri alnabaer.is ▪ Opnunartími: Virka daga 10 til 18 og til jóla laugardaga frá 11 til 14 Jólagardínur, jóladúkar og jólaefni 50% afslátt ur af allri jóla vöru
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.