Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
BAKSVIÐ
Þórunn Kristjánsdóttir
thorunn@mbl.is
Nýsköpunarverkefnið Butler, kerfi
sem hjálpar eldra fólki og fötluðum
að búa lengur sjálfstætt við meira
öryggi, er eitt af þremur íslenskum
verkefnum sem voru valin til að taka
þátt í keppninni The Nordic Inde-
pendent Living Challenge, sem
Nordic Innovation heldur. Liðin sem
taka þátt eru komin niður í 25 en
voru upphaflega 400 talsins frá öllum
Norðurlandaríkjunum. Keppninni
lýkur í júní á næsta ári, en markmið
hennar er að finna tæknilausn sem
auðveldar einstaklingum sem t.d.
búa við skerta færni að búa sem
lengst sjálfstætt.
Nýsköpunarverkefnið var upphaf-
lega samstarfsverkefni E-lab í Fjöl-
brautaskólanum í Breiðholti sem
nemar á rafvirkjabraut unnu í sam-
starfi við Nýsköpunarmiðstöð Ís-
lands og Reykjavíkurborg. E-lab var
stofnað fyrir tilstuðlan Nýsköpunar-
miðstöðvarinnar með styrk frá
menntamálaráðuneytinu. Hug-
myndasmiðirnir eru Halldór Axels-
son og Þorsteinn I. Sigfússon, pró-
fessor og forstjóri Nýsköpunar-
miðstöðvar Íslands.
Halldór er stærsti eigandi Butler,
ásamt Nýsköpunarmiðstöðinni og
öðrum smærri hluthöfum.
Butler er í samstarfi við tvö erlend
fyrirtæki; Falck í Danmörku, sem er
með markaðsráðandi stöðu í sjúkra-
flutningum og heimahjúkrun þar í
landi, og hollenska fyrirtækið Phil-
ips, sem framleiðir ýmis tæki til
lækninga og er einnig þekkt á raf-
vörumarkaði.
Butler er kerfi sem mælir eðlilegt
lífsmynstur heimilisins en gerir við-
vart ef breytingar verða á því. Aðal-
tækið er lítil tölva sem les boð frá
skynjurum sem hefur verið komið
fyrir á heimilinu. Butler er með
gervigreind og má segja að hann búi
yfir sjálfstæðum vilja því hann les
boð frá skynjurunum og út frá þeim
upplýsingum sendir hann boð til að-
standenda ef tilefni þykir til að
kanna líðan einstaklingsins betur.
Skynjar æðakerfi heimilisins
„Skynjararnir eru settir á staði
sem eru eins og æðakerfi heimilis-
ins, sem er vatn og rafmagn. Ef
ekkert dælist í æðakerfinu í
ákveðinn tíma túlkar kerfið
það þannig að eitthvað þurfi
að skoða. Fólk þarf t.d. alltaf
að fara á klósett og drekka
vatn yfir daginn. Ef enginn
hjartsláttur er á heimilinu er
eitthvað að,“ segir Gauti Mar-
teinsson, framkvæmdastjóri fyrir-
tækisins e21, sem á Butler, en Gauti
starfar einnig í Nýsköpunarmiðstöð
Íslands.
Eins og fyrr segir sendir tækið
boð í vefsvæði sem tengist tölvubún-
aði og hefur viðmót fyrir notanda,
aðstandendur, hjúkrunarfræðinga
og öryggisaðila um breytingarnar.
Þá er brugðist við með því að senda
SMS til fjölskyldumeðlima, t.d. um
að hringja heim í viðkomandi. Ef
ekki er svarað fer annað ferli af stað,
en það getur ýmist verið að hafa
samband við annan viðbragðsaðila
eða senda sjúkrabíl. Þetta ferli fer
allt eftir viðbragðsáætlun notand-
ans.
Kerfið er opið, sem þýðir að aðrir
skynjarar sem þegar er búið að
hanna geti mögulega tengst því á
einfaldan hátt. Þetta geta t.d. verið
neyðarhnappur, fallnemi, lyfja-
skammtari og dagbókarfærslur fyrir
fólk með alzheimer. „Við munum
meta það á hverjum markaði fyrir
sig, þar sem persónuverndarlög eru
mismunandi eftir löndum. Þegar við-
komandi kaupir vöruna samþykkir
hann að fylgst sé með ákveðnum
þáttum. Gögnin eru ekki nýtt heldur
eingöngu til ákvörðunar sem Butler
tekur,“ segir Gauti, spurður hvort
búnaðurinn brjóti í bága við per-
sónuverndarlög.
Í þessu samhengi bendir hann á að
gögnin sem Butler safnar saman séu
ekki geymd. Hann segir að í raun
svipi Butler til öryggisfyrirtækis
sem nemi hvort einhver fari inn í
byggingu þegar til þess er ekki ætl-
ast. Hins vegar geri búnaðurinn at-
hugasemdir við enga hreyf-
ingu, þ.e.a.s. vatns- og
rafmagnsnotkun.
Tækifæri á
Norðurlöndum
Gauti segist vongóður um að
sigra í umræddri keppni þó að
hann geri sér grein fyrir því að
hún sé hörð.
„Ef við sigrum fáum við leyfi til
að prófa þetta í borgunum á Norð-
urlöndunum og líkur verða á frekari
samstarfi. Við fáum þá einnig fjár-
magn til þess,“ segir Gauti.
Verðlaunaféð er 300.000 norskar
krónur, eða um 4,5 milljónir ís-
lenskra króna. Allar borgir Norður-
landanna taka þátt í keppninni, líka
Reykjavíkurborg.
Tvö önnur íslensk lið taka þátt í
þessari keppni og bjóða upp á annars
konar lausnir. Butler er eina liðið
sem er samansett af þátttakendum
sem eru ekki eingöngu frá einu
Norðurlandanna. Undanfarið ár hafa
keppendurnir hist reglulega á Noð-
urlöndunum og haldið áfram að þróa
og fullmóta verkefni sín. Í síðasta
mánuði var haldin vinnustofa í Osló.
Unnið er að því að kynna Butler,
en í byrjun mánaðarins var það
kynnt fyrir velferðarsviði Kaup-
mannahafnarborgar.
Kynna fyrir fjárfestum
Gauti, Halldór og fleiri sem tengj-
ast verkefninu eru staddir í Finn-
landi á tveggja daga ráðstefnu sem
nefnist Slush og er ein stærsta fjár-
festatengslaráðstefna í Finnlandi
fyrir nýsköpunar- og tæknifyrirtæki.
Öll liðin sem taka þátt í keppninni fá
boð á ráðstefnuna.
„Við ætlum að kynna vöruna okk-
ar eins mikið og við getum því við er-
um að leita að fjárfestum,“ segir
Gauti.
Eykur öryggi
sjálfstæðrar
búsetu aldraðra
Butler mælir eðlilegt lífsmynstur á
heimili og lætur vita ef breytingar verða
Morgunblaðið/Eva Björk
Nýsköpun Gauti Marteinsson, framkvæmdastjóri Butler, og Halldór Axelsson, frumkvöðull og aðaleigandi Butler.
Fyrsta frumgerðin verður próf-
uð í kringum jólin. Í fyrsta lagi
kemur varan á markað eftir ár
og það í besta falli, að sögn
Gauta.
Hann segir mikla vinnu fram-
undan í prófunum á tækinu,
t.d. þarf að kanna hvort það
sendi boðin örugglega þegar á
að senda þau. Þá þurfi varan
að vera öll CE-vottuð og það
taki tíma.
Þar sem fyrirtækið stefnir á
að starfa á erlendum markaði
fer Butler að öllum líkindum
fyrst á markað erlendis áður
en hann kemur til Íslands. Lík-
lega verður íslenski markaður-
inn notaður sem prufumark-
aður.
„Við lítum á þetta fyrst og
fremst sem íslenskt fyrirtæki
sem þarf ekki endilega að vera
í samstarfi við Falck og Philips
en við ætlum að byrja á því og
sjá hvernig samstarfið gengur,“
segir Gauti.
Butler er tæknifyrirtæki sem
veitir lausnir og samskipta-
viðmót en ekki þjónustu. Þjón-
ustan er það sem Falk veitir. Þá
er markmið Philips að þróa
sína viðbót við kerfið sem er
m.a. fallnemi. Hann greinir
hvort notandinn hafi dottið og
sendir þá boð á viðkomandi
viðbragðsaðila um hversu lengi
hann hefur legið og t.d. hvað
eigi að gera í framhaldi af því.
Í fyrsta lagi
eftir ár
ERLENDUR MARKAÐUR
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
• Almennur handhreinsir
sem byggir á náttúru-
legum efnum.
• Virkar jafnt með vatni
og án.
• Engin jarðolíuefni eru
notuð.
• Inniheldur aloa vera,
jojoba olíu og lanolin
til að mýkja húðina.
• Virkar vel á olíu, feiti,
blek, jarðveg, epoxy
og lím.
• Inniheldur fín malaðan
sand til að hreinsa
betur.
Gengur illa að þrífa
smurolíuna af höndunum?
Eru lófarnir þurrir og rispaðir?
holar@holabok.is — www.holabok.is
Í bókinni er tæpt á fjölmörgum
þjóðfélagsmálum á borð við
fátækt, einelti, ofbeldi í ýmsum
myndum, einsemd, sorginni,
gleðinni og endalokunum.
Holl lesning fyrir unga sem
eldri. Sögurnar nýtast m.a. vel
sem ísbrjótar fyrir samtal og
sameiginlegar vangaveltur.
Kveikjur
eftir sr. Bolla Pétur Bollason