Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Óli Björn Kárason ritaði greinum fjármál Reykjavíkur-
borgar í gær og sagði meðal ann-
ars: „Samkvæmt áætlun (svokall-
aðri útgönguspá meirihluta
borgarstjórnar) verða tekjur A-
hluta borgarsjóðs
rúmlega 18 þúsund
milljónum króna
hærri að raunvirði á
þessu ári en 2010.“
Þetta eru gríðar-legar viðbótar-
tekjur á þeim tíma
sem liðinn er frá því
að Dagur B. Egg-
ertsson og Jón
Gnarr tóku við
stjórnartaumunum,
en hverju hefur það
skilað?
Óli Björn svarar því til dæmismeð því að benda á skuldaþró-
unina: „Skuldir A-hluta verða um
22,3 þúsund milljónum hærri í lok
þessa árs en 2010 á verðlagi 2015.
Skuldaaukning borgarsjóðs nem-
ur 734 þúsund krónum á hverja
fjögurra manna fjölskyldu.
Fjárhagsáætlun 2016 gerir ráð
fyrir að skuldir aukist áfram og
hækki um 4,4 þúsund milljónir frá
upphafi til loka árs.“
Óli Björn bendir líka á að stöðu-gildum hjá borginni hafi fjölg-
að um 328 frá 2010 til 2014.
Allt eru þetta ótrúlegar tölursem sýna óráðsíu og aðhalds-
leysi, en að sögn Óla Björns talar
borgarstjóri um „tekjuvanda“ þeg-
ar hann ræðir erfiða fjárhagsstöðu
borgarinnar.
Og á sama tíma og borgin berstvið svo mikinn vanda eftir
stjórnartíð Jóns og Dags, sendir
borgarstjóri 12 manns á ráðstefnu í
París.
Var það virkilega nauðsynlegt?
Óli Björn Kárason
Má hvergi spara?
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Veður víða um heim 11.11., kl. 18.00
Reykjavík 4 skýjað
Bolungarvík 4 rigning
Akureyri -1 skýjað
Nuuk -8 léttskýjað
Þórshöfn 7 skúrir
Ósló 5 heiðskírt
Kaupmannahöfn 12 skýjað
Stokkhólmur 6 heiðskírt
Helsinki 6 skýjað
Lúxemborg 11 léttskýjað
Brussel 12 skýjað
Dublin 12 skýjað
Glasgow 11 alskýjað
London 15 skýjað
París 12 alskýjað
Amsterdam 12 skýjað
Hamborg 12 súld
Berlín 13 alskýjað
Vín 17 léttskýjað
Moskva 2 alskýjað
Algarve 20 heiðskírt
Madríd 21 heiðskírt
Barcelona 17 heiðskírt
Mallorca 18 heiðskírt
Róm 17 heiðskírt
Aþena 20 heiðskírt
Winnipeg -2 alskýjað
Montreal 7 skýjað
New York 11 alskýjað
Chicago 13 léttskýjað
Orlando 24 léttskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
12. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:47 16:38
ÍSAFJÖRÐUR 10:09 16:26
SIGLUFJÖRÐUR 9:53 16:08
DJÚPIVOGUR 9:20 16:03
Rjúpnaveiðimenn halda til fjalla í síðasta sinn
þessa helgi en á sunnudag lýkur rjúpnaveiði-
tímabilinu. Víða á Norðurlandi hefur ágætlega
veiðst, Mývetningar eru flestir ánægðir með veið-
arnar og fjölda fugla sem hefur veiðst. Á Vest-
fjörðum og víðar hafa menn gengið mikið en feng-
ið lítið.
„Ég hef heyrt að það sé dágott af rjúpu og
margir að fá í jólamatinn,“ segir Dúi Landmark,
formaður SKOTVÍS. Hefur hann heyrt tölur frá
einni og upp í 20. „Það er einn og einn veiðimaður
sem nær að veiða mikið og dettur í lukkupottinn.
Þegar á heildina er litið er þetta búið að vera mjög
gott.“
Hann segir að veðrið stjórni rjúpnaveiðum og
er ósáttur við að veiðimenn séu skikkaðir upp á
fjall í hvaða veðri og vindum sem er.
„Síðustu tvær helgar hafa verið rysjóttar en
einmuna blíða á mánudeginum. Þetta minnir
mann á það að yfirvöld hafa ekki ákveðið að hafa
öryggi veiðimanna í fyrirrúmi. Það er okkar skoð-
un í SKOTVÍS að með því að fjölga dögum verði
veiðarnar betri og öruggari án þess að veiddum
fuglum fjölgi.“
benedikt@mbl.is
Veiðimenn gengið mikið en lítið fengið
Síðasta rjúpnaveiði-
helgin framundan
Morgunblaðið/Golli
Skytta Nokkrir veiðimenn hafa verið heppnir.
Landsnet hefur samið við þrjú
orkufyrirtæki um kaup á 347 gíga-
vattstundum af rafmagni til að
mæta flutningstapi í raforkukerf-
inu á næsta ári. Heildarkostnaður
Landsnets vegna samninganna er
tæplega 1,6 milljarðar króna.
Landsnet fékk ekki tilboð í alla
þá orku sem áætlað er að þurfi til
að mæta flutningstöpum á árinu.
Samningarnir við HS Orku, Lands-
virkjun og Orku náttúrunnar duga
fyrir um 90% tapanna. Í tilkynn-
ingu frá Landsneti kemur fram að
leitast verði við að kaupa síðar þá
orku sem upp á vanti.
Meðalverð orkunnar sem Lands-
net semur um að kaupa er 18%
hærra en á síðasta ári. Hver kíló-
vattstund er keypt á 4,48 kr. eftir
útboðið nú en var 3,8 kr. í sambæri-
legu útboði fyrir ári. Flutningstöp
hafa aukist á síðustu árum, ma.
vegna mikil álags á byggðalínunni.
helgi@mbl.is
Verð á raf-
orku hækkar
Morgunblaðið/Einar Falur
Flutningur Töp í flutningskerfinu
fara vaxandi vegna mikils álags.
Ármúla 24 • S: 585 2800Opið virka daga 10 -18, laugardaga 11- 16. – www.rafkaup.is
Bazar veggljós