Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 28
VIÐTAL
Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
„Það er áskorun að standa á eigin
fótum og vera fjárhagslega sjálf-
stæður. Verkefnið er vandasamt en
yfirstíganlegt.“
Þetta segir Gunnar Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Almenna líf-
eyrissjóðsins, í formála bókar sinnar
Lífið er framundan, sem kemur út í
dag.
Í bókinni fjallar Gunnar um fjár-
mál ungs fólks og veitir ráðlegg-
ingar um leiðir í fjármálum fyrir þá
sem eru að byrja að búa og hefja
störf á vinnumarkaði og stefna að
fjárhagslegu sjálfstæði.
„Kveikjan var meðal annars sú að
mér fannst vanta samantekt um
fjármál ungs fólks og heimila miðað
við íslenskar aðstæður. Mig langaði
að bæta úr því,“ segir Gunnar um til-
urð bókarinnar.
Forðast að steypa sér í skuldir
„Mér hefur oft þótt umræða um
fjármál ungs fólks vera svolítið nei-
kvæð og margir hafa talað þannig að
nánast sé útilokað fyrir ungt fólk að
stofna heimili og koma sér þaki yfir
höfuðið. Ég get verið sammála því að
það er áskorun að vera fjárhagslega
sjálfstæður. Það er vandasamt en
yfirstíganlegt. Mig langaði því að
leggja mitt af mörkum í þessari um-
ræðu og benda á atriði sem gott er
að hafa í huga þegar kemur að því að
skipuleggja fjármálin,“ segir hann.
Í bókinni gefur hann ráð um hvað
þarf að hafa í huga m.a. þegar ein-
staklingar ráða sig í framtíðarstarf,
byrja að búa, finna húsnæði, byggja
upp eignir og sparnað, taka lán og
verja heimili fyrir persónulegum og
efnahagslegum áhættum.
Það er ráðlegt fyrir alla að mati
Gunnars að undirbúa fjármálin líkt
og ferðalangur sem hyggur á lang-
ferð og gerir ferðaáætlun. „Það
skiptir mjög miklu máli að hugsa
fram í tímann um leið og þú verður
fjárhagslega sjálfstæður. Það er til
dæmis mikilvægt að vanda sig fyrstu
árin og forðast að steypa sér í skuld-
ir áður en kemur að því að kaupa
íbúð,“ segir hann.
Fimm ráð eiga við á öllum tímabil-
um ævinnar að mati Gunnars: 1.
Ekki eyða um efni fram. 2. Borgaðu
sjálfum þér fyrst. 3. Reyndu að forð-
ast lántökur. 4. Hugsaðu til langs
tíma. 5. Gerðu ráð fyrir áföllum.
Spurður hvort hann telji að ungt
fólk fylgi þessum ráðum í dag segist
Gunnar hafa fulla trú á ungu fólki.
„Ég dreg þarna saman almenn ráð.
Ég er alls ekki að segja að unga kyn-
slóðin sé að gera eitthvað vitlaust en
bendi á atriði sem gott er að hafa í
huga. Það skiptir til að mynda máli
að leggja áherslu á að safna fyrir
eignum frekar en að taka lán fyrir
þeim. Auðvitað geta menn stundum
þurft að taka lán, námsmaður getur
ekki verið án tölvu og fjölskylda með
börn á erfitt með að vera á bíls, en ef
menn temja sér þann lífsstíl að jafn-
aði að leggja fyrir hlutunum frekar
en að taka lán fyrir þeim verður
þeim umbunað með rýmri ráðstöf-
unartekjum og meiri eignamyndun.“
Gunnar setur fram fjölmörg
markmið og dæmi sem hann segir
gott að hafa til viðmiðunar í
fjármálum svo auka megi
líkurnar á góðum árangri í
fjármálum einstaklinga og
fjölskyldna. Til dæmis sé
mikilvægt að reyna að gæta
þess að heildarskuldir séu
ekki meiri en tvöföld eða
þreföld árslaun á hverjum
tíma og skynsamlegt sé að
eiga varasjóð sem nemur
eins til þriggja mánaða
launum eftir aðstæðum.
Hann leggur einnig mikla áherslu á
mikilvægi langtímasparnaðar og
þess að safna viðbótarlífeyris-
sparnaði til að bæta við eftirlaunin.
Húsnæðismálin mjög erfið í dag
en eru þó yfirstíganleg
-Þrátt fyrir ástandið á húsnæðis-
málum í dag eru þau ungu fólki ekki
óyfirstíganleg að þínu mati?
,,Það hefur alltaf verið erfitt að
vera ungur og byrja að búa og koma
sér þaki yfir höfuðið. Ég get hins
vegar tekið undir að þetta er mjög
erfitt í dag og nægir að líta á þróun
húsnæðisverðs, sem hefur hækkað
mikið á liðnum árum og umfram
laun. En mitt mat er að það sé yfir-
stíganlegt,“ segir hann.
Í lok hvers kafla segir Gunnar
dæmisögu af tvennum hjónum sem
hann fylgir í gegnum lífið. Þau eru
með sömu laun og verja álíka miklu í
framfærslu. Þau fara ólíkar leiðir í
fjármálum en lifa þó bæði góðu lífi.
,,Það var mjög lærdómsríkt að
búa til það módel og reikna sig í
gegnum allt líf þeirra. Ég læt þau
fylgja meðallaunum og launaþróun-
inni miðað við hagtölur Hagstof-
unnar og þegar upp var staðið var
erfiðast að koma hjónunum í gegn-
um fyrstu tíu árin. Þá eru launin
lægst en útgjöldin mikil við að stofna
heimili. Það tókst en það var vanda-
samt,“ segir Gunnar að lokum.
Bókin verður kynnt á útgáfufundi
sem VÍB og Framtíðarsýn, sem gef-
ur bókina út, efna til í Norður-
ljósasal Hörpu í dag kl. 17.
Vandasamt en yfirstíganlegt
Gunnar Baldvinsson veitir ungu fólki ráðleggingar í fjármálum í bókinni Lífið er framundan
Ráðlegt er að undirbúa fjármálin líkt og ferðalangur sem hyggur á langferð og gerir ferðaáætlun
Höfundur Gunnar Baldvinsson
skrifar um fjármál ungs fólks.
28 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Nú færðu ab mjólk og létt ab mjólk frá Mjólku
í nýjum handhægum 1 lítra umbúðum.
ab mjólkí nýjumumbúðum
Dæmi um sparnað og lán við
bílakaup úr bókinni Lífið er
framundan:
,,Hugsum okkur að ein-
staklingur þurfi að safna 2 millj-
ónum til að kaupa bíl. Ef hann
leggur fyrir tæp 54 þúsund
krónur á mánuði í þrjú ár safnar
hann fyrir bílnum með því að
leggja fyrir samtals 1.931 þús-
und krónur miðað við 3% inn-
lánsvexti.
Ef hann ákveður hins vegar
að taka bílalán þarf hann að
greiða að meðaltali 65 þúsund
krónur á mánuði í þrjú ár eða
samtals 2.340 þúsund krónur
miðað við 1,02% útlánsvexti.
Mismunurinn er
409 þúsund krónur
sem eru 20% af
sparnaðar-
fjárhæðinni. Fyrir þá
fjárhæð má t.d.
kaupa fjórar IPAD-
tölvur eða greiða
fyrir rúmlega 102
leigubílaferðir að
fjárhæð 4.000 krón-
ur hver.“
409 þús. kr.
mismunur
DÆMI UM BÍLAKAUP