Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 32
32 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015 Tryggvagötu 18 - 552 0160 Pelsar - stuttir og síðir Mokkajakkar og -kápur Guðni Einarsson gudni@mbl.is „Ég búinn að gera 68 heimildamyndir á síðustu 25 árum,“ sagði Páll Steingrímsson kvikmyndagerð- armaður. Þessi ötuli heimildamyndasmiður verð- ur sjálfur viðfangsefni nýrrar heimildamyndar sem er í vinnslu. Vinnutitill myndarinnar er „Frá Heimaey á heimsenda“. Þar verður sagt frá fjöl- breyttri ævi Páls og kvikmyndagerð hans. Einnig verður slegið á létta strengi enda er Páll með lífs- glaðari mönnum. Að gerð myndarinnar standa Kvik ehf., Sagnheimar – Byggðasafn Vestmanna- eyja og Safnahús Vestmannaeyja auk undirbún- ingshóps vina Páls og samstarfsmanna. „Það er alltaf jafnmikið fjör. Ég sinni þessu alla daga. Það dettur enginn dagur úr nema kannski helst um jólin,“ sagði Páll. Heimildamyndir hans hafa verið sýndar víða um heim, bæði í Evrópu, Norður- og Suður-Ameríku og í Asíu. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir myndir sínar. „Ég hef mætt á 14 alþjóðlegar heimildamynda- hátíðir og hef alltaf, nema einu sinni, fengið ein- hverja viðurkenningu. Einu sinni fékk ég gull, annað skipti grand prix og tvisvar sinnum fyrstu verðlaun í mínum flokki,“ sagði Páll. Hann sagði að þessi árangur hefði gefið myndum hans byr. Þær eru orðnar margar sjónvarpsstöðvarnar sem hafa sýnt myndirnar. En er einhver heimilda- mynda hans í sérstöku uppáhaldi? Nokkrar myndir í uppáhaldi „Það er með mig eins og Laxness, sem þótti fjórar bækur bestar,“ sagði Páll og hló. „Myndin um hrafninn er mjög vel heppnuð. Hún er spuni af þjóðsögunni og hversu merkilegur fugl þetta er. Ég tamdi hrafna til að leika í myndinni og hafði mikið fyrir þessu þau tvö ár sem ég var að gera hana. Undur vatnsins er eins konar myndljóð sem mér þykir vænt um. Ég fór víða um heiminn við gerð myndarinnar um skarfinn, komst alla leið á Suðurskautslandið og upplifði margt í sambandi við þennan merkilega fugl. Eins og það að fá að fara á fleka með kínverskum fiskimanni sem veiddi fiska með tömdum skörfum.“ Páll hefur heimsótt allar heimsálfur og fjölda landa. Hann heldur sig gjarnan utan alfaraslóða á ferðum sínum og leitar uppi þau náttúrufyrirbæri sem hann fjallar um hverju sinni. Páll þekkir því þess að reyna að skera úr skrúfunni.“ Páll kafaði í kaldan sjóinn og bjargaði málunum. Það var ekki áhlaupaverk. „Ég var orðinn það stirður af kulda að ég gat ekki gengið og blár á puruna. Strákarnir fíruðu upp í kamínunni og settu mig upp í efstu koju en fóru sjálfir á ball!“ Páll á einnig gríðarmikið myndefni frá Vest- mannaeyjum sem sýnir staðhætti í Eyjum, lands- lag, náttúru og mannlíf. Þar eru úteyjaferðir fyr- irferðarmiklar, bjargferðir, lundaveiðar og rollustúss. Þá á Páll gríðarlega merkilegar kvik- myndir úr eldgosunum í Surtsey og Heimaey. Einnig gerði hann á sínum tíma heimildakvik- mynd um Þjóðhátíð Vestmannaeyja. Þar má m.a. sjá meistara þjóðhátíðarlaganna, Oddgeir Krist- jánsson og Ása í Bæ. Páll sagði að það væri ekkert lát á hugmynda- streyminu. Nú vinnur hann að heimildamynd um íslenskan uppfinningamann og nýstárlega vél sem hann hefur fundið upp. ekki síður til í ýmsum útnárum heimsins en í stór- borgunum. „Mér finnst ekki verra að heimsækja krumma- skuðin en það er líka gaman í heimsborgunum, New York til dæmis. Ég var svo upptekinn af djassinum,“ sagði Páll. Hann nam kvikmynda- fræði við New York University og er því hagvanur á þeim slóðum. Kvikmyndabútar frá annarri öld Páll ætlar m.a. að nýta í myndinni kvikmyndar- bút frá því hann var 17 ára og reri á Guðrúnu VE. Myndasmiðurinn var Sveinn Ársælsson. „Synir Sveins gáfu mér stubb þar sem ég var aðalleikarinn. Við vorum á lúðuveiðum við Hval- bak. Það kom á okkur veður og við fengum ból- færið svo illa í skrúfuna að við þurftum að fara á seglum til Norðfjarðar. Báturinn var of stór fyrir slippinn og það kostaði árslaun allrar skipshafn- arinnar að fá kafara úr Reykjavík! Ég bauðst til Heimildamyndasmiðurinn  Heimildamynd um Pál Steingrímsson kvikmyndagerðar- mann er í smíðum Morgunblaðið/Styrmir Kári Heimildamyndir Páll Steingrímsson hefur gert 68 heimildamyndir á 25 árum. Myndir hans hafa verið sýndar víða og hlotið fjölda verðlauna. Nú er unnið að gerð heimildamyndar um Pál. Hann var lengi kennari og lagði stund á myndlist en helgaði sig svo kvikmyndagerðinni. Helgi Braga- son, lög- fræðingur og bróður- sonur Páls Steingríms- sonar, held- ur utan um fjármögnun heimildar- myndar- innar um Pál. Hann sagði að myndefnið væri að mestu leyti fyrirliggjandi og búið að stilla því upp í grófum drátt- um. Gert er ráð fyrir að myndin kosti um sjö milljónir í fram- leiðslu. Nú þegar er búið að kosta um helmingi þeirrar upphæðar til gerðar myndar- innar. Búið er að sækja um styrki í ýmsa sjóði og er beðið svara við umsóknunum. „Við ætlum einnig að leita eftir stuðningi hjá fyrir- tækjum og einstaklingum. Sú fjármögnunarvinna hefst í byrjun desember,“ sagði Helgi. Hann sagði að auk þess að afla styrkja frá fyrirtækjum væri ætlunin að selja myndina á DVD í forsölu til ein- staklinga. „Ég er bjartsýnn á að við náum að klára þetta næsta sumar,“ sagði Helgi. „Vinnan við myndina er komin vel á veg. Hugmyndin er að hún verði tilbúin á 86 ára afmælis- degi Páls þann 25. júlí 2016.“ Unnið er að fjármögnun LEITA EFTIR STUÐNINGI Helgi Bragason „Maður getur ekki annað en dáðst að honum Palla Steingríms fyrir að hafa enst í heimildamyndagerð ára- tugum saman,“ sagði Páll Magnús- son fjölmiðlamaður, vinur Páls kvik- myndagerðarmanns, fyrrverandi nemandi og þulur í mörgum mynda hans. Hann á sæti í undirbúnings- hópi heimildamyndarinnar og sagði að ætlunin væri að gera þar grein fyrir merkilegu ævistarfi nafna síns. „Páll Steingrímsson hefur eflaust gert fleiri heimildakvikmyndir en nokkur annar Íslendingur og fengið fjölda viðurkenninga fyrir þær,“ sagði Páll. „Margt sem Palli hefur gert finnst mér á meðal þess besta sem maður hefur séð á þessu sviði. Hann hefur gert mikið af náttúru- lífsmyndum og sérsvið hans er sam- skipti mannsins og villtrar náttúru. Palli hefur keppt á kvikmyndahátíð- um við fremstu heimildamynda- gerðarmenn heimsins og oft haft sigur. Það er merkilegt í ljósi þess að hann hefur ekki haft úr miklu að spila. Ætli vinnan og fjármagnið á bak við hverja samsetta mínútu í heimildamynd frá BBC sé ekki svona þúsundfalt meira en Palli hef- ur haft? Það sem Palla hefur skort á í fjármunum hefur hann unnið upp með ástríðu sinni og hug- myndaauðgi.“ Enn að kenna náttúrufræði Páll kvaðst hafa verið nemandi nafna síns Steingrímssonar í Gagn- fræðaskóla Vestmannaeyja. „Það var ekki endilega legið mik- ið yfir bókum í tímum hjá Palla Steingríms. Stundum kom hann með fiska eða fugla sem við krufð- um. Hann fór með okkur út í nátt- úruna og kenndi okkur að lesa hana. Palla tókst að gera kennsluna líflega og hann hélt svo áfram að kenna með heimildamyndunum.“ Páll Steingrímsson hefur gjarnan fengið nafna sinn til að lesa inn á heimildamyndir hin síðari ár. „Ég hef alltaf haft gaman af þessu og þetta hefur gert mér kleift að kynnast verkum hans betur en ella,“ sagði Páll Magnússon. Heimildamyndin mun byggjast á samtölum þeirra nafna og brotum af því besta sem Páll Steingrímsson hefur gert í heimildamyndum auk fjölbreytts annars efnis. Aðdáunarverð elja Ljósmynd/Kvik/Friðþjófur Helgason Samstarfsmenn Páll Magnússon og Páll Steingrímsson við gerð heim- ildakvikmyndar um ginklofann sem geisaði í Vestmannaeyjum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.