Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 34
34 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015 jafnar dagsveiflur á meðan vind- orkan er með breytilegar dags- veiflur en jöfn á ársgrundvelli. „Vatnsskortur getur því verið vandamál að vetrarlagi, en það er einmitt sá tími sem mesta orku er að fá úr vindinum. Væri þá hægt að nota vindmyllurnar til að létta á vatnsaflsvirkjunum og hægt að tala um að uppistöðulónin virki þá eins og rafhlöður á meðan og safni orku í formi vatns sem safnast upp í lón- inu,“ segir Birta. Draga úr göllunum En vindorkan er ekki gallalaus. Vindmyllurnar gnæfa yfir landslag- inu, geta valdið hljóðmengun og valdið skaða á fuglalífi. Birta segir tæknina í stöðugri þróun og fram- leiðendum vindmylla hafi tekist að bæta hönnunina til muna til að draga úr neikvæðu áhrifunum. Þá hafi rannsóknir leitt í ljós að íslenskum fuglastofnum stafar lítil hætta af vindmyllunum. „Gírkassalausar vindmyllur eru að ryðja sér til rúms, en með því að losna við gírkassann er bæði verið að minnka viðhalds- kostnað, auka endingartíma og minnka hljóðmengun,“ segir Birta. „Það eru einkum erlendum rán- fuglategundum sem stafar hætta af spöðum vindmyllanna, því þeir horfa niður fyrir sig þegar þeir fljúga, í leit að bráð. Hafa rannsóknir sýnt að aðrir fuglar fljúga í kringum vind- myllurnar. Þá hefur komið í ljós að með því að setja svarta rönd á einn af spöðum vindmyllunnar, og merk- ingar neðst á stólpana, taka ránfugl- arnir betur eftir vindmyllunum og fljúga síður á þær.“ Kuldinn á Íslandi er ekki vanda- mál í vindorkuframleiðslu. Þó að frysti og snjói breytast vindmyll- urnar ekki í risavaxna íspinna. „Í dag eru vindmyllurnar með afísun- ar- og ísvarnarbúnað. Mælar í vind- myllunni vakta hitastigið og hita spaðana þegar hætta er á ísingu. Er slíkur búnaður í vindmyllunum uppi á Hafi og hefur örsjaldan farið í gang á undanförnum þremur árum.“ Hvaða svæði viljum við hafa vindmyllulaus? Hitt er erfiðara: að draga úr sjón- menguninni og eðlilegt að fólki sé umhugað um að raska ekki ásýnd landslagsins. Segir Birta brýnt að ráðast í þá vinnu að leggja grunninn að skynsamlegri nýtingu vindorku. Hvergi liggi fyrir opinber stefna um nýtingu vindorku á Íslandi, né stefna um forsendur fyrir vali á svæði fyrir slík mannvirki, en for- dæmi fyrir slíkri vinnu er að finna hjá nágrannaþjóðum okkar í Skot- landi, Svíþjóð og Danmörku svo dæmi séu nefnd. Þurfi að skipu- leggja vandlega hvar vindmyllurnar mættu rísa, með tilliti til legu raf- orkukerfisins og áhrifa á náttúru, líf- ríki og samfélag. „Það væri skyn- samlegt að byrja að móta sérstaka stefnu um hvar við viljum ekki hafa vindmyllur og skapa vandaða um- gjörð utan um frekari uppbyggingu á þessu sviði, þar sem gæðin ráða för frekar en magnið.“ Birta segir brýnt að stíga varlega til jarðar í allri ákvarðanatöku um vindaflsvirkjanir. Stjórnvöld þurfi að marka stefnu og smíða lagalega umgjörð sem sveitarfélögin geta síð- an nýtt sem verkfæri þegar, og ef, að því kemur að kanna möguleika á nýtingu vindorkunnar innan þeirra landsvæðis. Regluverkið gæti t.a.m. gert sveitarstjórnum fært að mynda stefnu um nýtingu vindorku og ann- arra orkugjafa og innleiða í að- alskipulag sitt. Vindmyllur samkeppnishæfar  Brýnt að leggja grunninn að skynsamlegri nýtingu vindorku  Framfarir í hönnun hafa dregið úr neikvæðum áhrifum vindmylla  Skortur á lagalegri umgjörð sem sveitarfélögin geta byggt á Morgunblaðið/Eggert Orkuverkfræðingur Með hverju árinu verður ódýrara að beisla vindorkuna, segir Birta Kristín Helgadóttir. Vindmyllur hafa fleiri kosti en að framleiða rafmagn. Segir Birta að þegar vindmyllunum er komið fyrir verði að leggja vegi að þeim öllum til að sinna megi viðhaldi og viðgerðum. Með því verði oft til skemmtilegir slóðar fyrir útivistarfólk. „Á mörgum stöðum hafa vindmyllurnar bætt aðgengi fólks að nátt- úrunni og er efnt til vinsælla hlaupakeppna á vegunum sem tengja saman vindmyllurnar. Hún telur ósennilegt að gerðar verði róttækar breytingar á hönnun vindmyllna.. „Í dag felst framþróunin einkum í því að finna betri efni til að nota í sjálf blöðin, eða betrumbæta vélina til að draga úr sliti og hávaða- myndun.“ Til verða vinsæl- ir útivistarstígar VINDMYLLUVEGIR Morgunblaðið/Árni Sæberg Vindmillur við Búrfell Vindmyllurnar sem snúast við Búrfell eru hluti af rannsóknar- og þróunarverkefni Landsvirkjunar um hagkvæmni vindorku. VIÐTAL Ásgeir Ingvarsson ai@mbl.is Nú eru liðin um það bil þrjú ár frá því fyrstu raforkuframleiðandi vind- myllurnar voru settar upp á Íslandi. Birta Kristín Helgadóttir, umhverf- is- og orkuverkfræðingur hjá Eflu, segir tilraunaframleiðslu á raforku með vindafli hafa gengið vonum framar. „Í heiminum öllum er með- al-nýtingarhlutfall vindmylla 28% en hefur farið yfir 40% á Hafinu, slétt- unni fyrir ofan Búrfellsvirkjun, þar sem Landsvirkjun lét koma fyrir tveimur vindmyllum.“ Birta segir þessa miklu nýtingu meðal annars stafa af því að aðstæð- urnar á tilraunasvæðinu eru ekki ósvipaðar því sem gerist á hafi úti: landslagið er slétt og fátt sem dreg- ur úr styrk vindsins. Leika æ stærra hlutverk Heyra má á Birtu að vind- orkuvirkjanir geti, áður en langt um líður, átt veigamikinn þátt í raf- orkuframleiðslu á Íslandi. Væri það í takt við þróunina í öðrum löndum en í dag verða um 4% allrar raforku í heiminum til með beislun vindsins, og í Evrópu er hlutfallið komið upp í 10%. „Vatnsaflið er enn ódýrasti virkj- unarkosturinn hér á landi en með hverju árinu verður ódýrara að beisla orkuna sem býr í vindinum og eru vindmyllur nú þegar að verða samkeppnishæfar við jarð- varmavirkjanir í kostnaði á hverja framleidda kílóvattstund. Nálgast vindorkan það hratt að geta keppt við óhagkvæmustu vatnsaflsvirkj- anakostina hérlendis,“ útskýrir Birta. Vindorkan gæti líka hjálpað til að nýta vatnsaflið betur. Margir halda að vatnið streymi jafnt og þétt allan ársins hring en í raun eru miklar sveiflur í vatnsrennslinu og vatns- rennslið að jafnaði minnst á veturna. Birta lýsir því þannig að vatnsorka sé breytileg á ársgrundvelli en með Ólafur S. Ástþórsson, aðstoðarforstjóri á Hafrannsókna- stofnun, flytur í dag erindi sem nefnist „Lífshættir ískóðs á Íslandsmiðum“. Erindið verður flutt kl. 12.30 í fyrirlestrarsal á fyrstu hæð á Skúlagötu 4. Allir eru vel- komnir. Ískóð er hánorræn, smávaxin þorskfiskategund (20-30 cm) sem útbreidd er umhverfis norðurheimskautið og jafnframt sú fisktegund sem hefur veiðst hvað nyrst í Norður-Íshafinu. Ískóð heldur sig aðallega við botn og þá oft í þéttum torfum en stundum finnst það einnig ofar í sjónum. Ískóð er ein af örfáum hánorrænum fiskteg- undum sem finnast við Ísland og við landið eru suður- mörk útbreiðslu þess í norðaustanverðu Norður-Atlantshafi. Fram að þeirri rannsókn sem hér er kynnt var lítið vitað um lífshætti ískóðs við Ísland umfram upplýsingar um einstaka fundarstaði. Niðurstöður sýndu að ískóð veiðist í botnvörpu aðallega á ytri hluta landgrunnsins undan norðvesturströnd Íslands. Þá var útbreiðsla ískóðs víðáttumeiri í köldum árum en heitum og einnig voru vísbendingar um að þá væri fjöldi fiska á stöð einnig meiri. Lífshættir ískóðs á Íslandsmiðum Ólafur S. Ástþórsson ...sem þola álagið! TRAUSTAR VÖRUR... VIFTUR Í MIKLU ÚRVALI Það borgar sig að nota það besta! • Bor›viftur • Gluggaviftur • I›na›arviftur • Loftviftur • Rörablásarar • Ba›viftur • Veggviftur Dalvegi 10–14 • 201 Kópavogi • Sími: 540 7000 • www.falkinn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.