Morgunblaðið - 12.11.2015, Blaðsíða 56
56 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 2015
Þann 5. nóvember
sl. birtir Jóhann
Unnsteinsson, endur-
skoðandi og fulltrúi
Félags löggiltra end-
urskoðenda í endur-
skoðendaráði, grein í
Morgunblaðinu um
hlutverk endurskoð-
endaráðs. Með grein
hans er loks rofin
a.m.k. 6 ára þögn
ráðsins við mikilli
gagnrýni á störf þess og harka-
lega framgöngu, sem ráðið hefur
fram til þessa kosið að afgreiða
með þögninni einni. Niðurstaða
Jóhanns er í stuttu máli sú, að
ráðið sé einungis að framfylgja
lögum og skilja má á grein hans,
að ekkert sé við störf ráðsins að
athuga.
Vart er um það ágreiningur að
fara ber eftir lögum. Í því sam-
hengi verður þó ávallt að hafa í
huga, að löggjafinn setti á sínum
tíma lög, sem oftast eru nefnd
stjórnsýslulög og eiga að tryggja,
að borgarar þessa lands eigi
ávallt rétt á sanngjarnri og hóf-
samri meðferð hins opinbera með
vald sitt. Í þessum lögum er m.a.
að finna reglu, sem oftast er
nefnd meðalhófsreglan og gengur
út á, að hið opinbera og stofnanir
þess skuli aldrei beita strangari
aðgerðum en nauðsynlegt er
hverju sinni. Í framgöngu endur-
skoðendaráðs hefur stundum
mátt ætla að meðlimum þess hafi
verið ókunnugt um þessa laga-
grein, enda var ráðið tekið ær-
lega á beinið af ráðherra vegna
vöntunar á hófsemi á
grunni þessarar
greinar í máli und-
irritaðs sl. vor. Segja
má því, að öll lög,
sem í gildi eru á Ís-
landi, séu ávallt með
stjórnsýslulögin sem
„aftursætisökumann“
sem verður að taka
tillit til.
Við undirbúning að
setningu laga um
endurskoðendur (nr.
79/2009 – tóku gildi 1.
janúar 2009) virðist
sem þess hafi verið vandlega
gætt, að enginn úr hópi einyrkja í
endurskoðun kæmi að undirbún-
ingi laganna, enda kom á daginn
að eftir setningu þeirra virtist
sem þeim hópi væri nánast gert
ókleift að sinna sínu fagi – upp
skyldi taka samstundis alþjóðlega
endurskoðunarstaðla sem í dag
mun vera háskólafag í 4-5 ár.
Engin „sólarlagsákvæði“ virtist
vera að finna fyrir eldri endur-
skoðendur. Við nánari skoðun er
þó eftirfarandi að finna í lögunum
í 9. grein: „Endurskoðandi skal
rækja störf sín í samræmi við al-
þjóðlega endurskoðunarstaðla og
alþjóðlega staðla um gæðaeftirlit
sem teknir hafa verið upp í ís-
lenskan rétt, sbr. 31. gr.“ Síðan
kemur í bráðabirgðaákvæði II:
„Þar til alþjóðlegir endurskoð-
unarstaðlar hafa verið teknir upp
í íslenskan rétt, skal endurskoðun
skv. 9. gr. fara eftir góðri endur-
skoðunarvenju“. Þetta ákvæði
hefði varla verið sett inn nema
eitthvað væri óklárt í þessari
framkvæmd og tvíþætt ástæða
þess er augljós: Staðlarnir hafa
Þögn endurskoðendaráðs rofin
Eftir Guðmund
Jóelsson » Siðferðisleg hlið
mála virðist ekki
hafa verið fyrirferð-
armikil í störfum endur-
skoðendaráðs.
Guðmundur
Jóelsson
Höfundur er löggiltur endurskoðandi.
ekki enn verið þýddir á íslensku
og ekki verið formlega birtir og
svo er enn í dag. Í grein sinni kýs
Jóhann að „sleppa“ því að minn-
ast á 9. greinina – vindur sér
beint í bráðabirgðaákvæðið og
dregur þá ályktun þar af, að al-
þjóðlegu staðlarnir séu einir í
gildi. Vitanlega verður að skoða
þessar tvær greinar í samhengi –
annars væri engin þörf fyrir
bráðabirgðaákvæðið.
Í grein sinni fullyrðir Jóhann,
án nokkurra röksemda, að yfir
90% endurskoðenda á Íslandi
vinni samkvæmt alþjóðlegum
stöðlum – reynir augljóslega að
láta líta svo út að aðeins sé um að
ræða nokkra „þverhausa“ sem
neita að vinna samkvæmt al-
þjóðlegu stöðlunum. Í þessu sam-
hengi skal aðeins á það bent, að í
bréfi formanns FLE til ráðherra
26. maí, 2014 í máli undirritaðs,
segir hann að u.þ.b. 2/3 endur-
skoðenda á Íslandi styðjist við al-
þjóðlega staðla. Það segir m.ö.o.
að einn af hverjum þremur gerir
það EKKI. Í sama bréfi við-
urkennir formaðurinn einnig hina
lagalegu óvissu, sem að nokkru
leyti er fyrir hendi í þessum mál-
um. Ekki verður sagt að mikil
reisn sé yfir málflutningi Jóhanns
í þessum efnum.
Siðferðisleg hlið mála virðist
ekki hafa verið fyrirferðarmikil í
störfum endurskoðendaráðs. Í
grein í Morgunblaðinu 27. mars
sl. fjallaði undirritaður nokkuð
um skipan endurskoðendaráðs og
setti fram þá skoðun, að ekki sé
nóg fyrir þá sem ráðið skipa að
vera með hreint sakavottorð –
ætlast verður til að bakgrunnur
þessara einstaklinga sé með þeim
hætti að vinna þeirra skapi skil-
yrðislaust traust. Í þessu sam-
hengi skal enn bent á, að tveir
meðlimir endurskoðendaráðs
(fulltrúar FLE) eru í beinni sam-
keppni við undirritaðan á verk-
efnamarkaðnum og hinn þriðji
(fulltrúi Viðskiptaráðs) er sóttur
nánast beint inn í stjórnir ákveð-
inna hrunfyrirtækja, sem ollu
fjölda fólks gríðarlegu tjóni. Bent
hefur verið á, síðast í grein Vil-
hjálms Bjarnasonar alþing-
ismanns í Morgunblaðinu nýlega,
að því sé fjarri að endurskoð-
endastéttin á Íslandi hafi gert
upp sinn hlut í aðdraganda hruns-
ins og eftirminnileg er tilvitnun
hans í setningu Nóbelsskáldsins
um þögnina. Með þetta í huga er
það nokkuð sérstakt, að þessa
dagana eru einyrkjar í endurskoð-
endastétt að fá, í gæðaeftirlits-
skyni á vegum endurskoð-
endaráðs, heimsókn frá
endurskoðanda, sem áritaði árs-
reikning Landsbanka Íslands
2007 fyrirvaralaust „korteri“ fyrir
hrun. Ekki skal efast um að við-
komandi sé með hreint sakavott-
orð en er það nóg og er þetta
vinnulag líklegt til að skapa
traust á störfum endurskoðenda-
ráðs?
Samskiptum undirritaðs við
endurskoðendaráð hafa verið gerð
mjög góð skil af Agnesi Bragdótt-
ur í greinum í Morgunblaðinu og
má skoða þær á Facebook-síðu
minni tengdri við heimasíðu FLE.
Reyndar hefur þetta félag „mitt“
ekki séð ástæðu til að minnast
einu orði á deilu mína við ráðið á
sinni heimasíðu þrátt fyrir til-
lmæli og segir það sína sögu. Ég
get ekki stillt mig um að segja
hér frá einu atviki til viðbótar. Í
einu tilviki lá svo mikið við af
hálfu ráðsins að koma í mínar
hendur hótunarbréfi í tengslum
við gæðaeftirlitið að ekki dugði
minna til en að senda leigubíl-
stjóra að heimili mínu með bréfið
þar sem hann sat fyrir mér til að
bréfið kæmist nú örugglega í
hendur þrjótsins! En samkvæmt
grein Jóhanns er þetta vinnulag
eflaust bara í samræmi við gild-
andi lög og óaðfinnanlegt!
Að lokum þetta:
Á aðalfundi Félags löggiltra
endurskoðenda þann 31. október
sl. tók til máls Sigurður Tóm-
asson, fyrrverandi formaður
FLE. Áttræður heiðursmaður í
stétt endurskoðenda sem allir
virða og leggja við hlustir, þegar
hann kveður sér hljóðs. Sigurður
fjallaði um störf endurskoð-
endaráðs og gagnrýndi þau
harkalega – kvað framgöngu ráðs-
ins í máli undirritaðs ekkert ann-
að en einelti yngri félagsmanna
gegn einstaklingi, sem senn verð-
ur 67 ára gamall. Sigurður lauk
máli sínu með því að skora á þá
þrjá endurskoðendur, sem sitja í
ráðinu, að segja af sér. Eftir við-
brögðum umræddra er nú kallað.
Ég held bara, að ég sé alveg
sammála Sigurði.
www.fr.isEmail sylvia@fr.is
Sylvía G.Walthersdóttir
Löggiltur fasteignasali
Salvör Davíðsdóttir
Sölufulltrúi
María K. Jónsdóttir
Sölufulltrúi
SjöfnÓlafsdóttir
Skrifstofa
Brynjólfur Þorkelsson
Sölufulltrúi
ENGARSKULDBINDINGAR
HRINGDUNÚNA
8208081